Holland er þekkt fyrir víðsýn viðhorf stjórnvalda til ýmissa mála, svo sem vændis, eiturlyfjaneyslu og líknardrápa. Það leiðir þróun í dauðamenningu ásamt Sviss, en Sviss hefur verið ögn framar síðasta kastið, þar sem fólki er leyft að innrita sig á heilsugæslu dauðans, Dignitis, eða Reisnarstaði, þar sem það er aðtoðað við að ná varanlegu sambandi við eftirlífið með eitruðum drykk sem það verður þó að svolgra sjálft niður.
Nú vilja þeir borgarar Hollands, sem þykir vænt um dauðann, færa mörkin ögn lengra. Líknardráp eru nú þegar leyfileg, en Sviss heldur á kyndli upplýsingar og hefur forystuna eins og er með Reisnarsetrinu sínu. Þá er hægt að upphugsa næsta skref, og það hafa þeir gert.
Baráttusamtök fyrir dauðaþjónustu hafa safnað 112.500 undirskriftum (frá sjálfum sér) á einum mánuði og skora á þingið að leyfa “aðstoð við sjálfsvíg” fyrir eldriborgara. Þannig gætu allir 70 ára og eldri sem telja sig hafa lokið erindum sínum hér á jörðu fengið reisupassan með aðstoð dauðaþjóna og þurfa ekki að leita í erfiðar eða óáreiðanlegar sjálfsvígstilraunir á eigin vegum.
Þetta er allt fegrað í frásögn Mail Online, enda er þetta dagskráin fyrir okkur öll, ekki bara einhverja hollenska og svissneska perra með goth- dauðaást. Þar eru tekin dæmi um dauðvona fólk sem vill mæta dauðanum með reisn og á heimavelli, fólk sem syrgir maka sinn og vill flýta endurfundum og svo framvegis.
Dauðaþjónarnir þurfa ekki að vera læknismenntaðir, en ættu að vera samþykktir af stjórnvöldum. Til að byrja með gæti þetta verið aukavinna fyrir hjúkkur og sjúkraliða, svo þegar málin þróast, þá liggja sérsveitarmenn og aðrir böðlar vel við þessum starfa.
Lítil áhersla er lögð á það að flestir geta framið sjálfsvíg ef þeir vilja. Þó aðferðirnar séu óáreiðanlegar, þá geta þeir sem virkilega vilja, tékkað sig út og ólíklegt að stjórnvöld hindri það af einhverri festu.
Enda er þetta dauðamarsinn, svipaður mottumarsinum, allir þramma í takt, heilalausir og með enga sýn þramma þeir í takt við bumbur mikilmenna og hugumstórra samfélagshönnuða.
Hvað tekur við þegar “aðstoð við sjálfsvíg” er leyfileg? Við getum séð svipaða baráttu í bólusetningarheiminum. Eins og staðan er í dag, þá er fólki “leyft” að fá allskyns viðbjóði sprautað í sig til að veikja ónæmiskerfið og stuðla að styttra lífi með meiri viðskiptum við lyfjarisana. En þeir vilja fara lengra. Margir þrjóskast við og niðurrifsrit eins og Kryppa.COM benda fólki á sannleikann í þessum sjúka heimi. Þess vegna vilja þeir taka næsta skref, sem er nauðabólusetningar. Þær hugmyndir voru viðraðar í svínaflensufárinu falsaða, en eins og allir mega nú vita, þá var sú veiki af pólitísku sæði sprottin. Það gekk ekki, fólk sagði nei við bólusetningunni í miklum massa og með afgerandi hætti um nánast allan heim, nema hér á Íslandi.
Sama er uppi á teningnum með dauðaþjónustuna. Lenín útskýrði þetta vel, við byrjum með þjónustur í samfélaginu sem svo breytast í yfirvöld. Lögregluþjónar breytast í lögregluyfirvöld, heilbrigiðsþjónusta breytist í heilbrigðisyfirvöld, dauðaþjónar breytast í dauðayfirvöld.
Þegar kreppan dýpkar (já – ‘batinn’ er bara enn eitt áróðursbragðið) og vaxtagreiðslur vegna upploginna skulda Íslands eða aðgerðapakka annarra landa aukast, þá verður farið að huga að því að skera burtu dauðyflin, afæturnar sem framleiða ekkert lengur en taka bara upp pláss, mat, spúa út hinum “eitraða” koltvísýringi, og eru bara almennt fyrir.
Þangað stefnir þessi dauðalest.
Holland proposes giving over-70s the right to die if they ‘consider their lives complete’
Ég vil vita, Er Kryppan á móti Mottumars?
Svá góðr
0
Skil ég það rétt að Kryppan sé á móti líknardrápum yfir höfuð?
Svá góðr
0