Danski forsætisráðherran vissi það

Guliani og Poul Nyrup Rasmussen vissu með 5 – 10 mínútna fyrirvara að tvíburaturnarnir væru að hrynja, en slökkviliðsmenn og hjálparstarfsmenn fengu enga aðvörun og margir létu lífið vegna þess.

Það er margt sem kemur upp úr kafinu eftir flókna og kolsvarta aðgerð eins og átti sér stað fyrir 9 árum, þann 11. september 2001. 

Rasmussen var ekki eina mikilmennið sem fékk aðvörun um yfirvofandi voða.  Gúlíani var varaður við og hann kom sér úr voða og frelsaði nokkra á leið sinni til lífsins með því að segja þeim að koma með sér út. 

Öðrum fórnarlömbum var hinsvegar sagt um hátalarakerfi bygginganna að vera bara kyrrir í skrifstofum sínum eftir að fyrri vélin lenti á byggingunni kl. 8.46 fyrir hádegi.

Sumir, ekki er ljóst hve margir, snéru til baka til skrifstofa sinna eftir tilkynninguna í neyðarkerfi byggingarinnar, segir í frétt USA Today með undirfyrirsögninni “Tilkynningar ollu dauða,” og þar segir einnig að sumum hafi fundist þessar tilkynningar hljóma eins og skipanir, en ekki tillaga.

Sú staðreynd að fulltrúar vissu að turninn væri um það bil að hrynja með allt að 10 mínútna fyrirvara var fullkomlega hunsuð af pólitísku 11. sept rannsóknarnefndinni.  Ef sömu aðvörun og mikilmennin fengu hefði verið varpað um hátalarakerfið til þeirra sem enn voru inni í turninum, þá hefði mátt bjarga hundruðum mannslífa.

Lesið meira og heyrið mikilmennin Gúlíver og Rasmussen játa að þeir hafi vitað þetta allt saman fyrirfram.

Danish Prime Minister Knew WTC Would Collapse

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: