Clinton bullar meðan bullur berja andófsmann


Bullur börðu gamlan friðarsinna

Þetta er kaldhæðnislegt og óraunverulegt atvik sem stórstraumsmiðillinn hunsar eins og honum sé borgað fyrir það.

Frú Clinton er í myndbandinu hér fyrir neðan að tala í George Washington háskólanum göfuglega um það hversu mikil skoðanakúgun viðgangist hjá múslimunum og villimönnunum.  En í miðju kafi birtast öryggisfantar og fjarlægja mann á áttræðisaldri, sem er að mótmæla kerlu og kerfinu með þöglum og friðsömum hætti.

Maðurinn sem var fjarlægður og blóðgaður er ekki bara nafnlaus klikkhaus, heldur fyrrum starfsmaður í greiningardeild CIA, Ray McGovern, sem hefur gerst virkur friðarsinni í ellinni. 

Þó vestrænir stórstraumsmiðlar hafi algerlega hunsað þessa frétt, þá talaði íranska fréttastofan PressTV við kappann og hann sagði meðal annars eftirfarandi um atvikið:

Ég var að vekja athygli á því að Hillary Clinton er manneskja sem er klappstýra allra stríða sem hún hefur komist í kynni við.  Hún studdi Íraksstríðið dyggilega, jafnvel þó hún vissi betur, því ég sagði henni hvílík hörmung það yrði.  Hún styður dyggilega við stríðsreksturinn í Afganistan, þar sem þúsundir hafa látist, og hún er í fararbroddi þeirra sem berjast fyrir stríði við Íran.

Ég var furðu lostinn, eftir að ég losnaði úr fangelsi og gat látið gera að sárum mínum og las svo ræðu hennar, sem hún flutti þegar ég var fjarlægður með ofbeldi þar sem ég var með friðsömum hætti að mótmæla.

Ræðan fjallaði um mótmæli, og hér er ég með ræðuna og ætla að lesa nokkrar setningar, sem hún flutti rétt eftir að ég var fluttur blóðugur á brott:

“Í þessari viku er Íran enn með ofbeldi gegn mótmælendum sem vilja njóta grundvallarréttinda.  Fólk mótmælir.  Það stendur með spjöld sín, og það gengur og sönglar.  Yfirvöld fylgjast með þeim, standa í vegi fyrir þeim og handtekur það.”

Ray hlær og segir, “Hún er að lesa þetta, þrem málsgreinum eftir að hún lét eins og ekkert væri meðan hún horfði á mig, á fjórða bekk, barinn af þessum föntum og svo dreginn út og fangelsaður frá samkomunni.  Það er eitthvað Kafkaískt við þetta allt saman.”

Sannarlega rétt.  Hér fyrir neðan má enn sjá útsendingu CNN frá árásinni á Ray, en viðtal PressTV við hann hefur verið fjarlægt af Youtube “vegna brota á höfundarrétti”.

Hinsvegar má sjá við talið í fréttaþætti Corbetts, sem fjallar að mestu um þetta fáránlega atvik.  Tengill á þáttinn má finna hér neðst.

http://www.corbettreport.com/sunday-update-20110220/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments