Stórfyrirtæki borga milljónir dollara til verkefna í almannatengslum svo að viðskiptavinir tengi vörumerki þeirra við hlýjar og ánægjulegar tilfinningar. Það er áríðandi að fela sálarlaust og í eðli sínu gráðugt eðli stórfyrirtækisins á bak við fjölskylduvæna framhlið. En sum fyrirtæki gefa bara skít í það. Þau hata þig og fjölskyldu þína og sérstaklega köttinn þinn, og þeim er alveg sama þó þú vitir það. Þessi fyrirtæki skarta meira að segja illsku sinni í merkjum sínum. Hér á eftir er listi Árvökula borgarans yfir 5 verstu merkin.
#5 – Alfa Romeo – lesa
#4 – Vodafone – lesa
#3 – Council on Foreign Relations

Council on Foreign Relations, skammstafað CFR, er ekki fyrirtæki en merki þess verður að ræða í þessu samhengi. Ef þú þekkir eitthvað til alþjóðastjórnmála eða fyrirætlana um nýja heimsmynd, þá þekkir þú mjög sennilega til CFR. Það hefur verið sagt “heimsins áhrifamesti gáfnabankinn um utanríkisstefnu” af alþjóðlegum blaðamönnum. Félagatal þess er athyglisvert svo ekki sé of djúpt í árina tekið, því þar á meðal eru gríðarstór nöfn úr heimi stórfyrirtækja, fjármála og stjórnmála. Nokkur dæmi: ABC fréttastofan, American Express, Boeing, Coca-Cola, Ford Motor, Google, Zbginiew Brzezinski (‘ráðgjafi’ Óbama), Hillary Clinton, Dick Cheney, John McCain og Davíð Rockefeller. Margir rithöfundar segja þennan hóp vinna að myndun alþjóðlegrar ríkisstjórnar og margir meðlimir hafa ekki neitað þeirri staðreynd. Nýlega skipaði Obama forseta CFR, Richard Haass, ásamt öðrum háttsettum CFR meðlimum, Richard Holbrooke og Dennis Ross sem sérstaka erlenda erindreka og ráðgjafa í utanríkismálum.
Á merkinu sjáum við nakin mann ríða örgum hesti og hann er að gefa einhvers konar miðaldaútgáfu af gengjamerki. Myndir þú biðja slíkan náunga um ráðgjöf í utanríkismálum? Nei. Jæja, kannski myndir þú gera það, svona þér til skemmtunar. Myndin á merkinu inniheldur mörg tákn sem þarfnast afkóðunar.
Hvíti hesturinn á myndinni er líklegast tilvísun til fyrsta hestsins í Opinberunarbókinni. Biblíuversið hljómar svona:
Ég leit upp og sjá: Hvítur hestur. Sá sem á honum sat hélt á boga og honum var fengin kóróna og hann fór út sigrandi og til þess að sigra.
- Opinberunarbókin 6,2
Maðurinn sem situr hestinn er nakinn og táknar það þá staðreynd að hann er villtur og hefur engin tengsl við neinn menningarheim. Handmerkið sem hann gefur nefnist “Sign of Admiration”, merki um aðdáun, eitt af mörgum dulspekilegum handmerkjum sem elítan er sífellt að veifa framan í andlit okkar án þess að við áttum okkur á því. Hér er Napóleon (frímúrari og illúministi) að gefa sama merki.

Skjölun á athöfnum frímúrara segja það hluta af athöfnum 6. stigs skoska siðarins.

Í þessari sömu athöfn eru meðlimir beðnir að endurtaka “Því hann er góður” sex sinnum, svo er “for he meroy endureth forever” (eitthvað frá honum endist að eilífu – “meroy” er orð sem þýðandi skilur ekki) endurtekið einnig sex sinnum. Að lokum eru þeir beðnir að rísa á fætur og leika jafnvægislist, sex sinnum. Þú getur dregið eigin ályktanir um merkingu þessarar athafnar. Hér eru skrif Texe Marrs um efnið:
Hand og handleggskveðja hins nakta manns CFR á baki hvíta hestinum er í handbókum frímúrara kölluð “Merkið um aðdáun”. Skýring þess er sögð rakin til fornra heiðinna siða í musteri postula Sólomons konungs í Ísrael. En í raun er þetta leynilegt merki þeirra sem tilheyra söfnuði Satans. Kveðjan er gerð til heiðurs leiðtoga þeirra og konungs, Lúsifers, sem heilög ritning kallar “vilja valdsins í loftinu” (Prince of the Power of the Air).
Er hann alveg úti að aka, eða kannski bara rétt að krafsa í yfirborðið?
Að lokum má finna á merki CFR orðið “Ubique”, sem þýðir “allsstaðar”. Er hægt að vera meira eins og Stóri bróðir? Með öðrum orðum, þú getur ekki flúið hinn nakta riddara. Hann gæti birst sem maður friðar á hvíta hestinum, en hann er fulltrúi hinna duldu leynisamtaka sem vinna gegn hagsmunum þínum.
Comments
Powered by Facebook Comments