CFR mælir með árásarstríði gegn Íran

Bandaríska baktjaldamafían Council on Foreign Relations virðist telja tíma til kominn að ráðast á Íran.
Flestir valdamestu menn bandaríkjanna úr báðum (og öllum) flokkum eru meðlimir í CFR. Þetta ráð er í raun einflokkurinn á bak við leikritið um tví-einflokkinn, bandarísku útgáfuna af fjórflokknum okkar, þar sem allir útlimir flokksmaskínunnar, hvort sem þeir nefnast sjálfstæðis, framsóknar, vg eða samfó, vinna samstill að markmiðum hinnar nýju heimsmyndar, alveg sama hvað almenningur kýs hverju sinni. Það einfaldlega taka nýir bræður við keflinu ef kjósendur “refsa” þeim sem eru við völd, og þeir vinna allir í sama liði. Liðinu sem er á móti almenningi.
Í Janúar/Febrúarhefti Foreign Affairs, riti CFR, þá reifar Matthew Kroenig kosti þess að ráðast á Íran. Hann setur umræðuna upp í Hagelíska þrætubókarlist, sama og stórstraumsfjölmiðlarnir gera, þannig stýrir hann niðurstöðu lesandans að fyrirfram ákveðnu marki.
Það er hættulegra hagsmunum Bandaríkjanna að láta Íran óáreitt, segir snillingurinn, þó afleiðingarnar séu sárar. Stríð er illskársti kosturinn.
Hver ætti líka að efast um ráðgjöf frá stofnun sem notar reiðmann á hvítum eða fölum hesti sem merki sitt?
Á merkinu sjáum við nakin mann ríða örgum hesti og hann er að gefa einhvers konar miðaldaútgáfu af gengjamerki. Myndir þú biðja slíkan náunga um ráðgjöf í utanríkismálum? Nei. Jæja, kannski myndir þú gera það, svona þér til skemmtunar. Myndin á merkinu inniheldur mörg tákn sem þarfnast afkóðunar.
Lesið CFR – Riddari á hvítum hesti
http://www.foreignaffairs.com/articles/136917/matthew-kroenig/time-to-attack-iran








