Varadekk fjórflokksins
Jónas Kristjánsson blaðafaðir vill jaðarflokkana á þing. Alla nema “varadekkið”. Hann vill hreinsa til og sópa ”bófunum” út. Því miður virðist hinn almenni kjósandi ekki eins vel á verði. Jú, sjálfstæðisflokkurinn hrynur í fylgi, VG líka, Samfylkingin er lasburða og án þess að það hryggi Jónas.
Varadekkið er væntanlega Björt framtíð, flokkur Steingrímssonar framsóknarprins, uppgjafar Samfylkingarmanna, Bestaflokksbulla og einhverra nýliða. Varadekkið virðist ekki hafa neina stefnu, nema vera vinur allra. Er varadekkið gert út af fjórflokknum til að takmarka það tjón sem gæti orðið ef fólk vill ekki kjósa gamla flórinn? Fólk kýs “Bjarta framtíð”, en endar með Svarta framtíð, bútasaum Framsóknar og kunnuglegra nafna sem áður marséruðu undir trommum fjórflokssins.
Merki Bjartrar framtíðar gæti verið merki fjórflokksins. Það hefur fjögur blöð og lítur kannski við fyrstu sýn út fyrir að vera blóm, fjöguralaufasmárinn sem börn leituðu að áður en internetið var fundið upp, sér til dægurstyttingar. Sagt var að sá sem finnur fjöguralaufasmára geti fengið ósk sína uppfyllta. Jafnframt er merkið á skildi, það er skjaldarmerki. Skjöldur er vörn, skjöldur felur þann sem er á bak við.
En við frakari athugun sést að ekki er um fjögurralaufasmára að ræða, blöðin eru krókar, krókur á móti bragði, blekking, crooked, eins og þeir segja á ensku.
Merkið hentar vel til að tákna varadekk, það felur í sér hreyfingu, hjólhreyfingu afturábak, það er að segja, gegn sólarganginum, þá væntanlega gegn framförum, aftur til 2007?
Raunar er merkið mjög lítið breyttur hakakross, já skoðaðu það bara. Hakakross sem hefur lent í miklum hita og bráðnað og bognað. Réttu úr krókunum og þú hefur upprunalega merkið.


















