Smiley face

Bilderberg fundur 2013 haldinn í Bretlandi

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Ný heimsmynd, Stjórnun

Þó ekki hafi fengist staðfesting frá heimildarmönnum meðal fundargesta, þá þykir nú næsta víst að Bilderberg fundur ársins 2013 verði haldinn í nágrenni London, helgina 6-9 júní.

Það er gamli fréttaforinginn Jim Tucker sem var fyrstur með þessa frétt, en Jim var einna fyrstur fréttamanna til að vera með reglubundna og nákvæma árlega umfjöllun af þessum fundum.  Nú síðari ár hafa jaðarfjölmiðlar og fleiri alvöru fréttamenn bæst í hópinn, en ekki er svo langt síðan að fjölmiðlar og valdamenn létu eins og þessir fundir væru bara helber samsæriskenning.  Á Íslandi var þó undantekning, því hér vorum við svo stollt af mikilvægi okkar að þegar Íslendingar voru boðaðir á þessa fundi, svo sem Davíð Oddsson, Björn Bjarna og fleiri, þá var því slegið upp í fréttum, á jákvæðan hátt að sjálfsögðu, enginn hér sá neitt skrítið við að topp valdamenn og auðmenn hittust í trúnaði og ræddu (mótuðu) stefnu í efnahags og utanríkismálum án þess að fjórða valdið sinnti sínu hlutverki.

Talið er að fundurinn verði á Grove hótelinu í Hertfordshire sveit, en hótelið er aðeins 20 mílur frá London.  Hótelið er á stórri sveitalóð sem telst mikill kostur fyrir fundagesti, því þá er hægt að láta skattborgara kosta gríðarlega öryggisgæslu á jaðrinum og þannig halda forvitnum fréttamönnum og linsum þeirra í skefjum.

Allt hótelið ásamt þremur veitingastöðum og heilsuræktarstöð eru fullbókuð þessa helgi og þeir sem eiga kort í ræktinni hafa verið látnir vita að stöðin verði lokuð þessa helgi.

Síðast var Bilderberg fundur haldinn í Bretlandi árið 1998, en fundirnir eru haldnir nokkuð reglulega til skiptis í Bandaríkjunum og Evrópu, síðasti fundur var í Chantilly, Virginia fylki.

Meðal afreka Bilderberg hópsins eru talin val á ýmsum stöndugum stjórnmálaforingjum, stofnun sameiginlegs gjaldmiðils í Evrópu (evran), þeir eru taldir hafa seinkað innrás í Írak sem átti að verða sumarið 2002 en var frestað til mars næsta árs, sú ákvörðun hafði þó ekkert að gera með friðarvilja fundargesta, heldur hafa umbjóðendur þeirra þurft meiri tíma til að hámarka hagnað eða forða skaða vegna innrásarinnar.  Þeir eru orðaðir við skipulag fjármálahrunsins sem hófst með falli Lehmann bræðra og nýlega (febrúar) óskaði ítalski lögmaðurinn Alfonso Luigi Marra eftir því að saksóknari Rómar myndi rannsaka hvort hópurinn hafi gerst sekur um glæpsamlegt athæfi þegar hann hittist í Swiss árið 2011 og vélaði um kjör Mario Monti sem forsætisráðherra Ítalíu.  Ítalirnir eru röskir þessa dagana og fyrr í vikunni sakaði heiðursforseti hæstaréttar Ítalíu og fyrrum Sérstakur Rannsóknardómari Ferdinando Imposimato Bilderberg hópinn um að hafa skipulagt hryðjuverk með hryðjuverkaneti Nató sem gekk undir dulnefninu Gladíó verkefnið.

aryan.guard.israel.cc.thivierr

Kynnt undir kynþáttahatri

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Stjórnun

Nýnasistar í Aryan Guard mótmæla meðferð Ísraela á Palestínumönnum, mynd CC thivierr.

Eftir að hvítur eða spænskættaður sjálfboðaliði í nágrannavörslu skaut svartan pilt til bana, hugsanlega í sjálfsvörn, en hugsanlega einnig fyrir misskilning, þá hefur Óbama forseti Bandaríkjanna tjáð sig með óvarlegum og tilfinningaþrungnum hætti sem ekki hæfir þeirri stöðu sem hann gegnir.  

Georg Zimmermann notaði hluta frístunda sinna til að ganga um hverfið sitt, hafa eftirlit með eignum nágranna sinna og fylgjast með grunsamlegum mannaferðum.  Það var á einni slíkri eftirlitsferð sem hann varð var við mann sem stóð í rigningu og góndi á hús í hverfinu.  Zimmermann hringi á lögregluna, en lögreglan brást ekki sérlega hratt við, enda ef til vill ekkert glæpsamlegt enn að gerast.

Trayvon Martin sem stóð í rigningunni og góndi á hús varð var við eftirlit Zimmermans.  Hann varð ef til vill reiður yfir afskiptasemi hans og gekk til hans með skömmum og hótunum.  Zimmermann dró upp byssu og skaut piltinn einu skoti, en það varð honum að bana.

Gerði Zimmerman mistök?  Sennilega.  Var hann úti að “veiða svertingja”?  Nei, það verður ekki séð í fljótu bragði.  Í upptöku af símtali hans til neyðarlínunnar er hann spurður um kynþátt þess grunsamlega og hann segist fyrst ekki vita það, en segir svo síðar að um svartan karlmann sé að ræða.

Í kjölfarið hefur Óbama forseti látið eins og griðungur.  Hann hefur sagt þann látna eins og soninn sem hann aldrei eignaðist.  Hann fordæmir og nánast froðufellir, þó þetta sé bara eitt af mörgum manndrápum í því landi þar sem hann á að kallast sameiningartákn þjóðarinnar.  Það er ekkert grín, þegar maður sem hefur tekið sér vald til að dæma án dóms og laga og taka fólk af lífi, þegar sá maður horfir á einhvern einstakling froðufellandi af reiði.

Faðir Zimmermans kom fram í sjónvarpi og reyndi að bera blak af syni sínum.  Fyrisögn Drudge Report, eins helsta fréttamokara internetsins í dag er vísun í pápa: “SO MUCH HATE COMING FROM THE PRESIDENT,” svo mikið hatur sem geislar frá forsetanum.

Það er enginn að réttlæta aðgerðir Zimmermans.  Hann kann að hafa gert mistök.  Hann kann einnig að hafa bjargað lífi sínu í sjálfsvörn.  En hvers vegna er forsetinn að blanda sér í þetta mál?  Af hverju þykist hann heilagur núna, en ekki heyrist píp frá honum til dæmis um collateral murder atvikið, þar sem Crazy Horse á þyrlunni skaut fréttamann og nokkra borgara í Bagdad úr 1-2km færi með árásarþyrlu?  Hvað með allar dauðaþjarkaárásirnar sem gerðar eru með samþykki Óbama á jarðarfarir og brúðkaup í Afganistan og Pakistan?  Er Óbama ekkert brugðið vegna þeirra?

Það er heldur ekki eins og Zimmermann sé eini Bandaríkjamaðurinn sem verður fólki af öðrum kynþætti að bana, óvart eða viljandi.  Ofbeldi svartra gegn hvítum þekkist líka.  Hvað myndi fólk hafa sagt ef Búsh hefði tryllst eftir atvik þar sem hvítur var drepinn af svörtum?

Það er raunar annað mál í fréttunum um þessar mundir, þar sem svartur glæpapiltur, Shawn Tyson 17 ára,  situr nú fyrir rétti og sýnir enga iðrun þó hann þurfi að horfa á svipmyndir frá uppvexti drengjanna tveggja, sem grátbáðu Tyson um að þyrma lífi sínu án árangurs.

Óbama sá engin pólitísk stig í því að eyða nokkrum mínútum í að tjá sig um það mál, þó foreldrar drengjanna hafi sent honum þrjú erindi þess efnis.

Sannleikurinn er nefnilega sá að Óbama er áreiðanlega jafn mikið sama um blökkupiltinn Trayvon Martin eins og hvítu bresku nemendurna sem drepnir voru af Shawn Tyson.  Honum er sama um svörtu piltana og þá hvítu, honum er sama um Breta og Bandaríkjamenn sem falla eða koma heim með sár á sálinni í endalausum stríðum sem háð eru á ábyrgð Óbama.

En hann vill endilega að við einblínum á einhver svona atvik og fyllumst hatri hvert á öðru.  Frekar en að fyllast hatri á stjórnmálastéttinni og bankamafíunni sem fjármagnar Óbama og félaga.

http://www.telegraph.co.uk/news/worldnews/northamerica/usa/9173820/Parents-of-murdered-British-students-criticise-Barack-Obama.html

http://www.youtube.com/watch?v=LnEQQnj7eXo&feature=g-logo&context=G25e6b8fFOAAAAAAAEAA

 

 

 

 

 

sp111

Barnavændishringur elítunnar upprættur

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Stjórnun, Tekknókratar

Enn einn barnavændishringur elítunnar hefur verið upprættur þegar upp komst um Önnu Gristina, 44 ára gamla og fjögurra barna móður, sem rak vændishring frá heimili sínu í New York.

Rekstur vændisþjónustunnar fór fram frá íbúð í New York, heimili Önnu, en hún treysti á aðstoð og ‘vernd’ lögreglunnar við að sjá auðugum viðskiptavinum fyrir ólögráða einstaklingum til kynmaka.

Meðal viðskiptavina voru valdamiklir stjórnmálamenn, toppar í lögreglunni, áhrifamiklir lögfræðingar, bankamenn, forstjórar úr skemmtanaiðnaðinum, viðskiptamenn úr Fortune 500 fyrirtækjum auk þónokkurra vellauðugra evrópskra viðskiptavina, segir New York Post.

Sum þessara viðskipta voru ekki aðeins með ólögráða einstaklinga (yngri en 18), heldur hreinlega með börn, samkvæmt Charles Linehan, aðstoðarsaksóknara á Manhattan.

Fréttasíðan infowars.com hefur um árabil rakið mál og bent á hvernig alþjóðlegir barnavændishringir eru aðallega reknir vegna eftirspurnar frá ríku elítufólki og valdamönnum.  Dæmi eru til um slíkt frá Portúgal, Austurríki, Frakklandi, Chile, Belgíu og Bosníu, og öll benda þau til þátttöku áberandi einstaklinga í vændishringjum, sadómasókísku kynsvalli og jafnvel morðum.

Í nánast öllum tilvikum kynlífsþrælkunar á börnum eru mál felld niður eða þau færð á aðrar brautir (villigötur) þegar tengsl við elítufólkið koma í ljós.

Á tíunda áratug síðustu aldar byggði dæmdur barnaníðingur að nafni Marc Dutroux leynilega dyflissu í kjallara sínum í bænum Charleroi og þar hélt hann ungum stúlkum í gíslingu samkvæmt boðum frá því sem hann kallaði “stóra glæpahringnum,” sem talinn var tengjast sumum af topp pólitíkusum, dómurum og lögreglumönnum Belgíu.  Ástæða þess hve seint gekk að ná Dutroux var einmitt sú að sömu aðilar hindruðu rannsókn og vernduðu hann.

Lylilvitni í þeim réttarhöldum lýsti “kynlífsteitum með börnum þar sem meðal gesta voru dómarar, stjórnmálamenn, bankamenn og meðlimir konungsfjölskyldunnar.”  Fórnarlömb sem komust af, en flest voru drepin eftir nauðganirnar, staðfestu þessar sögur.

Lögreglan heimsótti meira að segja heimili Dutroux meðan á rannsókn málsins stóð og heyrði hjálparóp barnanna sem læst voru niðri í kjallara hans, en tóku samt skýringu Dutroux gilda, en hann sagði hrópin koma frá börnum að leik úti á götu.

Dutroux var að lokum dæmdur fyrir verk sín, en tengsl elítunnar við vændishringinn voru aldrei rannsökuð af neinni alvöru.

Fleiri, fleiri sögur á infowars.com.

New York Prostitution Ring Provided Minors For Wealthy Elitists

 

lego

Stríð og LEGO stelpur

Höfundur bjorn þann . Flokkur Klórað í yfirborðið, Stjórnun

Í frétt DV um svokallað stelpu Legó má sjá videó þar sem farið er yfir sögu Legó og sýndar auglýsingar fyrirtækisins frá upphafi.  Til að byrja með voru bæði strákar og stelpur sýnd leika sér saman.  Byggjandi hús og bíla eða hvaðeina sem hugurinn girnist.   Upp úr 1985 breytist þetta og Legó sérstaklega markaðssett fyrir stráka.  Kannski eðlileg viðskiptaákvörðun en það er líka eitt annað.  Eftir því sem árin færast yfir Legó þá virðast heilalaus stríð og ofbeldi verða fyrirferðameiri hjá þessum danska uppalanda.  Í framhaldinu má velta fyrir sér hvort þetta er bara algjör tilviljun eða meðvituð ákvörðun.

Skilaboð fyrirtækisins í dag eru strákar berjast og stelpur baka eða lakka á sér neglunar.  Þegar ég var að alast upp voru auðvitað til Legóbyssur og sverð.  En það var ekki verið að þvinga upp á mig einhverjum úldnum söguþræði til að fara eftir.  Í dag sé ég ekki betur en 80-90% af vörum fyrirtækisins snúist um árásir eða einhverskonar stríð.  Kannski er ég að ýkja aðeins en tveir heimar sem ættu að vera friðsamir og leggja kannski áherslu á vísindi og rannsóknir gera það alls ekki.

Í Dino heiminum sem er greinilega stæling á sjónvarpsþáttunum Terra Nova ert þú ekki að rannsaka eitt eða neitt.  Af sjö mismunandi pökkum í boði eru sjö þar sem þú átt að byggja einhverskonar stríðstól og drepa risaeðlunar.  Engin færanleg rannsóknarstofa á hjólum, ekki einn einasti vísindamaður eða Indjána Jónes týpa.  Nei, krakkar í Dyno heimi snýst lífið um að elta risaeðlur og fanga þær áður en þú verður étin.

Faró Legóið er lítið skárra en byggir á samnefndum tölvuleik.  Af sex pökkum sem eru í boði snúast þeir allir um að berjast við einhver skrímsli úr leiknum.  Í staðin fyrir risaeðlunarar fá krakkanir froðufellandi múmíur með þurran munninn í hefndarhug.  Faró heimurinn er þó ekki með öllu vondur því góði gæinn er sjálfur Djóni Djóns eða Jake Raines upp á dönskuna.

Fyrir þá sem héldu upp á tæknilegóið í gamla daga hef  ég góðar fréttir.  Það er ennþá til!  Bara smá galli ef galla skyldi kalla.  Kubbarnir eru allir sérhannaðir fyrir bílinn eða tækið.  Fyrir vikið lítur græjan vel út en þú getur andað alveg rólega því þú smíðar lítið annað.  Hugmyndaflug eða eitthvað í þá áttina er ekki lengur til hjá Legó. Ekkert af því sem gerði Legóið skemmtilegt er lengur til staðar.

Skilaboð fyrirtækisins til krakka í dag eru eftirfarandi þ.e.a.s. ef þú ert strákur.  Þú þarft að verja borgina þína gegn árásum hryðjuverkamanna og glæpahunda.  Vísindi og eigið hugmyndaflug er fyrir einhverja aðra.  Þegar þú þarft að fara út úr borginni er það til að stela fjársjóðum sem einhver annar á og er að passa.  Gættu þín og taktu stóru byssuna með.  Ef þú ert stelpa hafðu þá engar áhyggjur.  Löggustrákanir passa þig og þú getur haldið áfram að baka kökur eða lakka á þér tærnar.

 

 

 

 

stalincount

Klúðruðu talningu á 53 atvkæðum!

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Stjórnun

Eðvarð True, 28 ára gamall talningarmaður í einni af kosningamiðstöðvum Repúblikanaflokksins, varð hissa þegar opinberu tölurnar úr Iowa prófkjörinu stemmdu ekki við þær sem hann hafði krotað niður sér til minnis.

Þegar True bar saman tölurnar sem hann hafði krotað sér til minnis við opinberu tölurnar, þá hafði atkvæðafjöldi til stuðnings Romney hlaupið úr 2 yfir í 22.

“Romney vann með 8 atkvæða mun [í fylkinu], en samkvæmt mínum athugunum fékk hann 20 atkvæðum of mikið á mínum kjörstað.  Það eitt og sér myndi þýða að hann hafi ekki unnið í prófkjörinu.”

Í Moulton sýslu mættu 53 kjósendur og því ættu þeir að hafa í mesta lagi 53 atkvæði, en opinberu tölurnar segja 79 hafa greitt atkvæði.  Það bendir til þess að 6 atkvæði til viðbótar hafi verið notuð til að “massa” gögnin til.

http://www.infowars.com/iowa-vote-count-observer-claims-fraud-helped-romney-win/

slave.pd

Af hverju að hlýða yfirvöldum?

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Sögulegt og orðaskýringar, Stjórnun

Alræðisríki treysta á hlýðni fjöldans.  En hvað er það sem tryggir þessa hlýðni?  Greining á frægum félagsfræðitilraunum, Stanford fangelsistilraunin frá 1971 og Milgram rafstuðsæfingin hjálpar til við að skýra sálfræðina á bak við hlýðni almennings og sjúklega sókn ríkisbáknsins í sífellt meiri völd.

Skrípó