Smiley face

Róbótar með alvöru heila

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Sjálfvæðing mannsins, Stríð

Teymi vísindamanna á spena hergagnaiðnaðarins hefur gert vél sem hefur virkni sem svipar til mannsheilans og gæti gert drónum kleift að hugsa og framkvæma á eigin forsemdum.  Það er National Defence Magazine sem segir frá þessu og ræðir við James K. Gimzewski efnafræðiprófessor við háskólann í Kaliforníu í Los Angeles.

Þeir nefna kerfið líkamsgreind (physical intelligence) og það getur án nokkurrar forritunar í ætt við það sem hefðbundnir drónar þurfa, framkvæmt aðgerðir svipaðar og fólk gerir, og þar með opnast möguleikinn á fyrstu kynslóð dróna sem geta starfað algerlega sjálfstætt, án innlagnar frá mönnum.

Það sem setur þetta tæki algerlega í sérflokk eru nanóvírar sem bjóða upp á milljarða tenginga eins og eru til staðar í mannsheilanum og þannig getur tækið ”munað” upplýsingar, skrifar Sandra I. Erwin.  Hver tenging er synthetísk taugamót.  Taugafrumur nota taugamót (synapse) til að senda raf eða efnaboð til annarrar frumu.  Vegna flækjustigsins á þessu ferli þá hefur sjaldan tekist að líkja eftir því með hefðbundinni gervigreind.

Hugsið ykkur bara Predator dróna sem sveima yfir okkur og skjóta flugskeytum að geðþótta á þá sem þeim þykja leiðinlegir.  En það er auðvitað gott að vissu marki, þessi óskapnaður mun áreiðanlega ekki hafa neina samvisku til að gera hann geðveikann eftir að hafa framið stríðsglæpi í þágu alþjóðlegu bankamafíunnar á vígvöllum dagsins, sem í dag eru miðausturlönd og Afríka, en vafalaust rata þessir drónar fljótlega heim til Bandaríkjanna og Íslands.

Eflaust er svo hægt að framleiða nýjar tegundir dróna til að taka að sér önnur verkefni sem leggjast þungt á samvisku sérsveitamanna, lögfræðinga og annarra þjóna sem enn bera þó einhvern guðlegan neista mannsandans og samkenndar í brjósti.  Löggæsludrónar, starfsdrónar í pyndingastöðvum og bólusetningadrónar koma upp í hugann.

Vísindahórkarlar hergagnaiðnaðarins vinna að þessu mikilvæga verkefni í ýmsum stofnunum og með allskonar nálgunum.

Þannig hafa aðrir ötulir púkar fundið leið til að tengja saman tvo (eða fleiri) rottuheila í “ofurheila” sem getur þá væntanlega tekist á við flóknari verkefni en meðalrottan getur leyst.  Þannig gætu stýriflaugar framtíðarinnar fundið skotmörk sín með hjálp samstillts hóps samtengdra rottu og apaheila.

Mynd CC Eneas

Skothelt skinn, nýung frá helsinnum

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Sjálfvæðing mannsins

Mynd CC Eneas

Við höfum áður sagt frá því hvernig brjálaðir vísindamenn hafa dundað sér við að búa til óskapnaðinn geitarköngulór, en nú hitnar í kolunum með tilraunum með kímruna manna og köngulóa.

Hollenska listakonan Jalila Essaïdi fékk innblástur úr fregnum af geitarköngulóm og þeim mikla styrk sem köngulóavefur hefur miðað við þyngd.  Hún hafði kynnt sér hugmyndir um að nýta geitarköngulær til að framleiða köngulóasilki sem nota má í brynjur sem eru mun léttari eða sterkari heldur en sambærilegar kevlar brynjur, en hún hugsaði, hvers vegna ekki að fara alla leið, og skapa skothelt skinn fyrir menn?

Það er nú í lagi fyrir listamenn að hugsa svona, án þess að hugsa út í þá afskræmingu á tegund okkar sem um er að ræða, að hugsa um að skapa nýjan mann sem er að hluta til skordýr…

En vísindamönnum finnst þetta greinilega svakalega flott hugmynd og því er listaverkefni Júllu orðið að alvöru vísindaverkefni, sem hugsanlega mun færa okkur nýja tegund af her og lögreglumönnum, þeir verða skotheldir og hugsanlega með svipaða siðferðis og samúðareiginleika og skordýr.

Sem er kostur fyrir elítuna.

Mynd Bandaríkjaher

Sjálfskipt stríð með skriðstilli

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Sjálfvæðing mannsins, Stríð

Mynd Bandaríkjaher

Þó vaxandi hernaðarumsvif um allan hnöttinn snerti milljónir manns, þá er sjálft hernaðarferlið í vaxandi mæli að verða sjálfvirkt og ómannað.

Flugþjarkar: Ómönnuð eftirlitsför en einnig vopnuð ómönnuð tæki hafa sótt í sig veðrið á síðustu árum og gert fjarstýrð dráp möguleg, oft úr þúsunda mílna fjarlægð.  Tölvuleikjamenningin hefur sannarlega aðstoðað við að aftengja orsök og afleiðingu í huga okkar, hnappinn sem þrýst er á og sundursprungna dauða brúðkaupsgesti.  Nýjasta nýtt í þessum geira eru fljúgandi sjálfsmorðsþjarkar á stærð við bakpoka, sem geta sjálfvirkt leitað að skotmörkum, eða eru fjarstýrðir.

Róbótar og ómannaðir bílar: Þúsundir róbota fylgja landhernum og eru notaðir til að leita að og aftengja sprengjur, fara í eftirlitsferðir og þjóna sem sjálfvirkur liðsauki.  Ómannaðir skriðdrekaturnar (sjálfvirkir) hafa verið hannaðir til að saga óvini niður með vélbyssuskothríð, en auk þess ýmis faratæki og jafnvel hernaðarfleytur sem geta haft ómannað eftirlit með hafsvæðum.

Flutningar: Lockheed Martin hefur nýlega tilkynnt mikinn árangur í notkun K-MAX sjálfvirkra og fjarstýrðra þyrlna, sem geta flutt birgðir á bardagasvæði.  Þetta kerfi gæti hugsanlega unnið sjálfvirkt með ómönnuðum bardagavélum og þar með tekið manninn alveg út úr myndinni.

Nanótækni: Möguleikar í smækkun þjarkanna virðast ótæmandi.  Heilu svarmarnir af sæborg skordýrum geta njósnað inn í jafnvel hertustu byrgi.  Óbama sker fjármögnun á Nanótæknirannsóknum ekki við nögl og þetta er framtíðin í hernaði án manna.  DARPA hefur verið að prófa nanó-blendinga í brynjur fyrir fótgönguliða og faratæki og með því tekið fyrstu skrefin að alvöru útvíkkun á manninum með samruna lífríkis og véla.

Sæborgir:  Nútíma vísindi og óþrjótandi fjárlög til hernaðar hafa tekið höndum saman um að gera sæborgirnar úr vísindaskáldsögum mögulegar í náinni framtíð.  Skordýrasæborgir eru þegar í notkun og stutt í skothelt skinn fyrir þá fáu “menn” sem eftir verða á vígvellinum.  Þróun vélíhluta fyrir menn hefur tekið risastökk með XOS ytri-beinagrindinni, sem skapar alvöru járnkarla með ofurkrafta og styrk.  Risaverktakinn Honeywell er fremstur í verkefnum sem miða að samtvinnun heila og tölva (Augmented Cognition Technology), en sú tækni býður alhliða tengsl milli tölvu og líkama hermanna, til að meta og hugsanlega forrita líkamlegt og andlegt ástand.

Tölvur og netstríð:  Samtvinnun raun og sýndarheima gæti gert mennina óþarfa í stríðsrekstrinum.  Öryggismiðstöð Heimalandsins hefur tilkynnt með skýrum hætti að nethryðjuverk séu næsta stóra ógnin.  Þeir hafa einnig sagt að netvígstöðvarnar verði líkan af raunverulegu vígstöðvunum, þar sem tölvuárásir muni kalla á viðbrögð frá raunheimum.  Það gæti orðið síðasta skrefið í samþættingunni þegar tölvur og samskiptanet beintengjast við stríðsvélarnar og mannkynið situr eftir með sárt ennið og íhugar hvernig málin gátu farið svo hrikalega úrskeiðis.  Munu stríð framtíðarinnar verða háð einungis af þjörkum?  Hve langt er í að við missum tökin í sjálfvirknivæðingu þeirra? 

Heimurinn er að minnsta kosti farinn að verða hættulega líkur tölvuleikjunum, þar sem leikmenn sitja við stjórntækin fjarri vígvellinum.  Leynileg hernaðarverkefni á svörtum fjárlögum eru áratugum framar þeirri tækni sem almenningur þekkir.  Þannig að þegar við vitum að ómannaðar stríðsvélar eru orðnar að raunveruleika, þá getum við varla ímyndað okkur hvað kemur næst!

Þýtt af vefsíðu Activist Post.

http://www.activistpost.com/2011/09/6-technologies-for-de-humanizing-war.html

crp.Steve_Jobs_and_iPhone.cc.Kremlin.ru

Hið illa Apple – skilaboð til Jobs

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólk, Sjálfvæðing mannsins

Steve Jobs lét af störfum sem foringi Apple tölvufyrirtækisins í síðustu viku.

Í tilefni af því hafa vændisfjölmiðlarnir lofsungið líf og starfsferil þessa brautryðjenda í einkavölvuvæðingunni, en Jobs stofnaði Apple tölvufyrirtækið í bílskúr á 8. áratugi síðustu aldar ásamt Steve Wozniak og Apple I tölvan í viðarkassa var fyrsta einkatölvan sem hægt var að panta samsetta árið 1976.  Hún var seld á $666.

En Alex Jóns veltir upp nokkrum spurningum sem hann vill að Steve Jobs svari, svona áður en hann yfirgefur þetta tilverustig.

Meðal annars, hvers vegna er tíðni sjálfsmorða margfallt hærri í verksmiðjum Apple í Kína heldur en í verksmiðjum í Bandaríkjunum, og margfallt hærri en í öðrum verksmiðjum í Kína?

Hvers vegna púkkar Apple upp á Al Gore og hefur þennan mörð í stjórn fyrirtækisins, auk þess að þrýsta á svikavagn kolefnishagkerfisins?  En á sama tíma blæs Apple út gríðarlegu magni koltvísýrings frá netþjónabúum sínum, án þess að leita til dæmis til Íslands eftir “grænni” kostum.

Jóns segir við Jobs – Í stað þess að lesa yfir fólki með gervivísindum um hnattræna hlýnun á sama tíma og þú ræður einna verstu þrælahaldara og starfsmannaníðinga heimsins til að framleiða fyrir þig, ef þú myndir aðeins sjá af nokkrum dollurum af hverri framleiddri einingu, þá gæti Apple orðið leiðandi á heimsvísu í nýrri byltingu siðræns kapitalisma.

Svo fer Jóns yfir í tengsl Apple og ‘transhúmanista’, þeirra sem trúa á (og vinna að) samruna manna og véla, og þá ekki bara í skilningnum gervilimir eða augu, eyru eða álíka, heldur flögu í hvern haus, eða jafnvel meðvitundin flutt í tölvuheiminn og líkaminn yfirgefinn:

Fyrr á árinu sagði Steve Wozniak, hinn hlutinn af upprunalega stofndúói Apple, að “framtíð mannkynsins er lítil önnur en að gerast gæludýr” þegar gervigreindin nær sér á strik.

Jóns fer á flug þegar hann svo lýsir því hvernig kínverskir starfsmenn þurfa að hlekkja börn sín við grindverk fyrir utan verksmiðjurnar sem Apple tölvur eru framleiddar í (engin ókeypis dagvistun þar), meðan þeir þræla langan starfsdag í von um að eignast nógu marga aura til að kaupa mat handa sér og börnunum.

Hvað um að hætta þessum þykjustuleik með að vera mannvinur og gerast alvöru mannvinur?  Hvað um að breyta framleiðsluferlinu í til betri vegar, þá getur Apple kannski farið að líma miða á vörur sínar sem fullyrða að ekkert fólk hafi skaðast við framleiðsluna, eins og sumir sjampóframleiðendur monta sig af því að engin dýr hafi skaðast við framleiðslu og prófunarferilinn.

“Hei, hvar fékkstu lifrina þína, Steve?”  Spyr Alex, en hann hefur margoft fjallað um líffærasölu kínverskra stjórnvalda til auðmanna.  Þar eru fangar drepnir og líffæri þeirra sett á ís í sérstökum “sjúkrabílum” á leiðinni út á flugvöll, svo auðmenn sem geta borgað fái þau sem ferskust til vestrænna sjúkrahúsa, ef þeir vilja þá ekki bara fá þau volg úr nýslátruðum föngum á kínverskum lúxusheilsugæslum fyrir elítuna.

630.RFID_125_KHz_Glass_Tag

Sjúklingar “flegnir” við innritun

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Klórað í yfirborðið, Sjálfvæðing mannsins

Nú er hægt að smella örþunnri plastflögu á enni eða handarbak sjúklinga um leið og þeir eru innritaðir á sjúkrahúsið.

Plastflagan er örþunn og límist við skinnið eins og gervitattúin sem börn leika sér með.  Þetta tattú er samt fullkomnara, rökrásir úr sveigjanelgu efni eru prentaðar á þessa þunnu flögu, hún er sjálfbær um orku (sólar, örbygljur eða sníkir orku af fórnarlambinu), hugsanlega með þráðlausu netsambandi og allskyns njósnabúnaði.

Tengt:

Með tölvur á heilanum

Hospital patients now being microchipped with “electronic tattoos”

Lesið meira: http://www.naturalnews.com/033427_electronic_tattoos_microchipped.html#ixzz1W3v4MUvC

cyborg.cc.JD.Hancock

Með tölvur á heilanum

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Sjálfvæðing mannsins

Rökrás á gerviskinni getur fylgst með hjartslætti jafn vel og hefðbundin tæki, en hún er örlétt, þráðlaus og nánast ósýnileg.

Steve Connor skrifar í vísindadálk Íhaldsmannsins The Idependant: “Bráðum kann að verða mögulegt að bera tölvuna sína eða farsímann undir erminni með þessari nýju tækni últra þunnra og sveigjanlegra rökrása sem hægt er að líma á skinnið eins og gervitattúin sem börnin leika sér með.”

Nýungin felst í þessum sveigjanleika rökrásanna.  Hefðbundnar rásir eru harðar og ósveigjanlegar, þessar mjúkar og sveigjanlegar.  Með þeim er hægt að byggja mjög öflugan tölvubúnað sem getur skrapað orku úr umhverfinu og átt samskipti við aðrar tölvur með þráðlausum fjarskiptum. 

Tónninn í grein Íhaldsmannsins er íhaldsamur, þeir halda sig við hugmyndir um að rásin geti mælt lífsmörk svo sem hjartslátt eða greint tal með hreyfingum eða titringi í kring um barkann án þess að notandinn gefi frá sér hljóð, sem gæti verið gagnlegt fyrir fatlaða, eða leynispæjara sem vilja ekki láta aðra heyra hvað þeir eru að segja við “röddina í eyranum”.

Íhaldsmaðurinn opnar samt ekkert á neikvæða vinkla, eins og til dæmis að nú er viðurkennt að þráðlaus fjarskipti hafa slæm áhrif á okkur og fólki ráðlagt að nota hátalarann á farsímanum sínum í stað þess að halda honum upp að eyra.  Hversu gott er það þá þegar þráðlaus samskipti og önnur rafræn útgeislun á sér stað á filmu sem límd er á skinnið okkar?

En í tilvitnun í Todd Coleman prófessor við háskólan í Urbana Champaign, Illinois, sem stýrði rannsóknateyminu sem hannaði þessar rásir gefur vísbendingu um framhaldið:

“Við teljum þetta áríðandi þróun í hugmyndafræði tölvubúnaðar sem fólk ber á sér, að ná að búa til eitthvað sem notandinn tekur varla eftir.  Þessi tækni getur tengt þig við raunheiminn og netheima á mjög eðlilegan og þægilegan hátt.”

Hvernig ætlar þú að eiga samskipti við netheima með rökrás sem er límd á skinnið þitt?

Til að byrja með kannski með því að horfa á hallærisskjá á handleggi, og pota í hann með fingrunum, eins og iPod sími hafi verið kraminn og límdur á skinnið á þér.

En ég held að tæknin muni ekki þróast í þá átt.  Frekar komi linsur með skjáviðmóti.  Þær eru “eðlilegri” og “þægilegri” auk þess að nota væntanlega minni orku.

Dæmi um slíka útfærslu má sjá í grein okkar:
Veruleiki í boði fyrirtækjasamsteypa

Þessi nýja tækni er enn ein varðan í átt að því sem við nefnum “flöguna”, eða “the chip” á ensku.  Flagan eru skil milli tölva og taugakerfis mannsins.  Bein tenging milli tölvu og heila mannsins.  Til að byrja með verður það kynnt sem “þægilegt” og “eðlilegt” og tölvan er þjónn þinn, þú gleymir aldrei neinu lengur því tölvan flettir andlitum og kennileitum upp um leið og þau nálgast þig og þá veistu nöfn á fólki sem þú umgengst sjaldan, þú veist hvar skakki turninn er í þinni fyrstu ferð til Köben, og svo framvegis.

Æðislegt, “þægilegt” og “eðlilegt”.  Þangað til samskiptunum er snúið við.  Þegar Al Gore eða aðrir stjórnunarbrjálæðingar lauma hugmyndum inn í heila ykkar.  Allt í einu trúið þið á hnattræna hlýnun.  Að hrunið sé ykkur sjálfum að kenna vegna þess að þið keyptuð flatskjái. 

En hvers vegna að standa í þess háttar pjatti?  Þegar fólk verður almennt komið með flögu undir sitt fagra skinn, þá slökkva stjórnunarbrjálæðingarnir bara á okkur, eða flytja meðvitund okkar í draumaheiminn.  Man einhver eftir The Matrix?  Mér finnst betra að spyrja, því mörgu virðist fólk gleyma ansi hratt.  En ólíkt The Matrix, þá þurfa líkamar okkar ekkert að liggja í einhverjum hallærishyllkjum.  Þeir geta gengið um og unnið störf fyrir elítuna.  Meðvitundin er á kynlífs og áfengissukki á Hawaii, í draumaheiminum auðvitað, en líkaminn mokar skurði og borðar fóður úr loðnumjöli og sefur í ríkisskálum.  Eða sefur bara ekki, só what þó einn og einn, eða milljón og milljón deyi?  Hvað heldurðu að sé sett í þessa skurði sem verið er að moka?  Staðardagskrá 21 frá Sameinuðu þjóðunum segir að okkur verði að fækka um 85%.

Raunar ganga sögusagnir um að flagan sé nú þegar tilbúin.  Það er bara samfélagslegi þátturinn sem þarf að undirbúa betur.  Gera hugmyndir um flöguna “eðlilegri” og “þægilegri.”  En það verk er svo sannarlega keyrt áfram á fullum þrýstingi, bæði í fréttum, afþreyingu og sérstaklega barnaefni.

http://www.independent.co.uk/news/science/how-computers-will-soon-get-under-our-skin-2336246.html 

Mynd CC JD Hancock

Skrípó