Smiley face
630.chemtrails

Hnattrænar loftslagsbreytingar af mannavöldum

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Efnaslóðir og tíðnivopn

NASA tilkynnti fyrir 5 árum 20% samdrátt á sólarljósi á jörðinni yfir 10 ára tímabil.

John P. Holdren vísindakommissar viðurkennir nú, eftir 16 ára afneitun, að stjórnvöld hafi stundað “tilraunir” til að hafa áhrif á loftslag jarðar með úðun á baríum söltum, áli og öðrum eitruðum efnum.

Leynilegt verkefni er í gangi á heimsvísu sem miðar að því að breyta loftslagi jarðar.  Stjórnvöld viðurkenna það, en vilja ekki útskýra af hverju þau stunda þessa iðju.

 

 

HAARP loftnet í Alaska.  Mynd CC: HAARP.

Veðurfarsbreytingar af mannavöldum

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Efnaslóðir og tíðnivopn

Hér er stuttur bútur úr mynd History Channel um HAARP tæknina.

Þar eru bein áhrif HAARP á andrúmsloftið skýrð ágætlega og hvernig þessar stöðvar geta með óbeinum hætti haft áhrif á háloftastrauma og þar með breytt veðurfari á stórum svæðum jarðar. 

Það eru þá veðurfarsbreytingar af mannavöldum, en ekki í þessum hefðbundna sektarstíl, þar sem almenningi er kennt um og sektin notuð til að réttlæta endalausa skatta á hin forboðnu gæði.  Nei, þessar veðurfarsbreytingar eru af völdum illmenna í hergagnamaskínunni og fá því gott næði frá kastljósi fjölmiðla og annara kjaftaklúbba.

Áhrif HAARP eru ekki takmörkuð við þessi frekar einföldu beinu áhrif á lofthjúpinn.  HAARP er einnig tíðnivopn, bylgjurnar frá stöðinni eru bæði hátíðni og svo ELF (mjög lág tíðni) og endurkastast til baka á jörðina og eru taldar hafa áhrif bæði á fólk (hægt að róa eða  örva það) og ekki síður á jarðskorpuna.  Þannig hafa stórmenni eins og Chaves kommúnistaforingi sagt opinberlega að jarðskjálftinn á Haítí hafi verið af mannavöldum, og gefur í skyn að honum hafi verið komið af stað með HAARP tíðnivopninu.

Það kemur ekki vel fram í þessum stutta búti, en á Íslandi eru tvær mini-HAARP stöðvar, svokallaðar Super-DARN (eða Ofsa-FJANDI) stöðvar sem eru staðsettar í Þykkvabæ og á Stokkseyri.

 

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Japönsk stjórnvöld kúguð um 60 billjón yen

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Efnaslóðir og tíðnivopn

24. maí 2011, The European Union Times

Japanski forsætisráðherran blauði Naoto Kan greiddi 60 billjónir yena til glæpasamtakanna Seðlabanka Bandaríkjanna hf strax eftir að landið varð fyrir HAARP árás og í kjölfarið, kjarnorkuhryllingi, samkvæmt heimildarmönnum innan japönsku öryggislögreglunnar. 

Lausnargjaldið var greitt í framhaldi af hótun um að koma eldgosi af stað í Fuji fjalli.  Fyrir þá sem eru svo  heiladofnir af áróðri að telja slíkt ómögulegt, gerið ykkur greiða og lesið þetta eftirrit sem er á heimasíðu varnarmálaráðuneytisins bandaríska:

www.defense.gov/Transcripts/Transcript.aspx?TranscriptID=674

Það vísar í William Cohen varnarmálaráðherra sem sagði opinberlega árið 1997 að:

“Aðrir stunda jafnvel umhverfishryðjuverkastarfsemi þar sem þeir geta breytt veðurfari, komið jarðskjálftum og eldfjöllum af stað úr fjarlægð með notkun rafsegulbylgna.”

Sérfræðingar við Tókýóháskóla og á Ítalíu tóku eftir HAARP merki sem beindist að Fukushima nokkrum klukkustundum áður en jarðskjálftinn og svo flóðbylgjan riðu yfir svæðið.  Samskonar bylgjur hafa svo sést beinast að Fujifjalli, og þar hitnar nú vatn í jörðu.  Auk þess hafa 5 aðilar haft samband við The European Union Times og varað við því að Japan væri að sökkva í sæ.

Samfélag Hvíta Drekans hefur brugðist við þessari ógn með því að senda GPS hnit allra HAARP stöðva til viðeigandi aðila. 

http://www.eutimes.net/2011/05/japanese-government-pays-60-trillion-yen-to-stop-more-h-a-a-r-p-attacks/

Þessi grein er hressilega langt úti á jaðrinum og á næstum því bara heima á Vantrúarvefnum, en ég gat ekki annað en gert smá ágrip á henni, vegna þess að

a) HAARP er grunsamlegt og getur valdið jarðskjálftum, eldgosum, veðurfarsbreytingum og breytingum á hugarástandi fólks, og svo

b) af því að The European Union Times er svo rosalega flott nafn á fjölmiðli, nafnið eitt nægir til að færa efnið inn fyrir jaðarinn.

capt.freedom

WTF er HAARP?

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Efnaslóðir og tíðnivopn

Á kvöldvakt Kryppunnar eru allar línur rauðglóandi og tölvupósturinn spýtist úr yfirfullum pósthólfum og út um 1.44 Mb disklingadrifin vegnar fréttar frá því fyrr í kvöld um tengsl HAARP stöðva og þessa endalausa roks sem er að gera alla vitlausa.

Lesendur vilja vita, hvað í fjandanum er þetta HAARP?  Það hefur ekkert með tónlistarhúsið að gera, en samt höfum við tvær HAARP stöðvar hér á Íslandi!  Meira um það síðar, en hér er stutt kynning á HAARP frá Kafteini Frelsi (Running Man), eða Jesse Ventura, flotaselnum gamla sem varð ríkisstjóri og dúllar nú við sjónvarpsþáttagerð, ritstörf, golf og brimreiðar frá nýju heimili sínu einhversstaðar í Mexíkó.

Skrípó