Smiley face
630.350.icke_dees

Enginn fjandans leikur

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Dulspeki

Davíð Icke hefur í yfir tvo áratugi verið í fararbroddi þeirra sem vara við yfirvofandi heimríkisstjórn fasista og kommúnista, en fréttir dagsins í dag eru eins og bergmál af aðvörunum hans.

Í upphafi hlógu menn sig máttlausa og fundir hans hefðu ekki getað fyllt símaklefa, eins og hann segir stundum sjálfur.  Í dag á hann í erfiðleikum með að finna sali af réttri stærð fyrir fundi sína og er að íhuga risaleikvanga eins og flottustu poppstjörnurnar nota fyrir tónleika sína.

Davíð afhjúpar í nýútkominni bók sinni, “Remember Who You Are” net nokkurra fjölskylnda sem á alþjóðavísu stýra stóru bönkunum, stóru líftæknifyrirtækjunum, stóru matvælakeðjunum, stóru fjölmiðlarisunum, stóru lyfjarisunum, og svo auðvitað, stóru gáfnabönkunum sem leggja ríkisstjórnum heimsins línurnar.  Hann afhjúpar eðli raunveruleika okkar, sem er raunar alls ekki massífur, heldur nánast efnislaus þegar nánar er skoðað.  Allur heimurinn er raunar svipað raunverulegur og internetið… samsettur af orku og tíðni sem við svo túlkum með skynfærunum okkar fimm.

Ef lesendur eru nú farnir að brosa út í annað, þá er rétt að benda á að Icke hefur rétt fyrir sér, vísindalega.  Ef blýklumpur er skoðaður í nægri stækkun, þá sést að hann er byggður úr atómum.  Atóm eru svipað efnismikil og sólkerfið okkar, það er kjarni (sól) og nokkrar elektróður sveimandi í kring um kjarnann, en mestmegnis… tóm.

Að auki eru hugmyndir hans um að við séum hluti af guði eins og alda sem frussast upp á steini í fjörunni er samt hluti af hafinu, að við séum öll samtengd, nokkurs konar guðleg meðvitund sem er í skemmtigarðinum sem kallast jörð, þær hugmyndir eru raunar nokkurs konar spegilmynd af trúarbrögðum elítunnar, aðeins minna af djöflagangi og svörtum satanisma, en í grunninn, sömu hugmyndir og þeir sem ráða á bak við tjöldin hafa og hlutar þessara visku eru í boði fyrir frímúrara og aðra kuklara sem basla í allskyns athöfnum og dulspekinámi þar sem nokkur korn af þessari visku eru gefin í verðlaun.

Viðtöl við Icke eru sjaldan leiðinleg, hér er heill klukkutími þar sem tveir skemmtilegir henda hugmyndum á milli sín og ræða hluti langt fyrir utan ‘boxið’.

 

630.icke.cc.stef

David Icke fer á kostum

Höfundur bjorn þann . Flokkur Dulspeki, Hin nýja heimsmynd

David Icke er af mörgum talinn ruglaður og kannski er hann það.  En sú rannsóknarvinna sem hann hefur gert á bankahruninu og hverjir stjórna raunverulega alþjóðastjórnmálum er ómetanleg.  En svo vandast málið.  Því það er ekki raunverulega venjulegt fólk sem stjórnar þessu samkvæmt Icke.  Heldur eðlur frá annarri vídd eða eitthvað álíka geggjað.

Í þessu viðtali útskýrir hann hvernig raunverulega er í pottinn búið ef þú vissar það ekki.  Blóðfórnir, eðlu DNA vs spendýra DNA, Rockefeller, Bush, sauðfé, nornir og margt fleira kemur við sögu.

SDC11187

Saga frímúrarareglunnar á Íslandi

Höfundur eythor þann . Flokkur Dulspeki, Ísland

Frímúrara húsið í Hafnarfirði

Fyrsta frímúrarastúkan var stofnuð hér á landi 6. janúar 1919; það var St. Jóh.stúkan Edda, innan Den Danske Frimurerorden. Stofnandi frímúrarareglunnar á Íslandi var Ludvig Kaaber(f.  1878-d. 1941) sem var kaupmaður sem átti og stofnaði mörg fyrirtæki t.d. Sjóvá, Ó. Jónsson & Kaaber og einn af stofnendum Eimskips. Kaaber var fyrsti stórmeistari reglunnar(æðsta stig sem hægt var að ná) og var það til dauðadags, frímúrarareglan varð mjög mikilvæg samtök fyrir íslensku iðnaðar-,banka- og stjórnmálaelítuna og mjög valdamiklar persónur voru meðlimir.

Valdamestu einstaklingarnir á þeim tíma voru t.d. Sveinn Björnsson sem var forsætisráðherra og fyrsti forseti Íslands 1941-1952, var líka einn af stofnendum og Ásgeir Ásgeirsson forseti 1952-1968. Báðir urðu stórmeistarar innan frímúrara reglunnar.

Grunnur valda frímúrarareglunnar kom frá bankastofnunum þar sem meðlimir voru bankastjórar, stjórnarformenn og almennir bankastarfsmenn. Sem dæmi var Landsbankinn á tímabilinu 1918-1960 með ellefu bankastjóra og sjö af þeim voru í frímúrara reglunni og tveir fyrstu bankastjórar Seðlabanka Íslands voru frímúrarar.

Allar þær nefndir innan ríksins sem gáfu út leyfi og stjórnuðu innflutningi og útflutningi voru stjórnaðar af frímúrurum. Á tímabilinu 1927-1987 voru frímúrarar í ríkisstjórn í 50 ár og 36 ár sem fjármálaráðherrar. Fjármálaráðherra eru æðsta staðan innan bankageirans því má segja að frímúrara reglan hafi sameinað fjármálavöldin innan ríkis og einkageirans og miðstýrt efnahagslífi landsins.

Sem dæmi um það hversu menn gátu komið sér vel fyrir ef þeir þekktu réttu einstaklinganna innan reglunnar er hægt að nefna Villhjálm Þór.  Hann var snemma meðlimur í frímúrarareglunni og náinn vinur Sveins Björnssonar sem var forseti Íslands, Vilhjálmur samtvinnaðist á mörgum sviðum samfélagsins við Ludvig Kaaber og urðu þeir umsvifamiklir á starfsævi sinni.

Vilhjálmur Þór hætti í skóla 12 ára gamall til þess að gerast sendill hjá KEA. Hann var orðinn kaupfélagsstjóri þess 23 ára. Hann var bankastjóri Landsbankans 1940-42, utanríkis- og atvinnumálaráðherra í utanþingsstjórn Björns Þórðarsonar 1942-44, en tók þá aftur við bankastjórastarfi til ársins 1946 þegar hann varð forstjóri Sambandsins. Á örskömmum tíma gjörbreytti hann ásýnd fyrirtækisins og innviðum. Hann var skjótur til ákvarðana og hafði bæði fjármagn og vald á bak við sig. Vilhjálmur sá að olía myndi koma í stað kola sem hita- og orkugjafi. Hann stofnaði Olíufélagið og lét útgerðarmenn hafa meirihluta í fyrstu stjórn þess og keypti olíustöðina í Hvalfirði af Sölunefnd varnarliðseigna í félagi við Hval hf. Eftir árið var Olíufélagið komið með þriðjung af olíuviðskiptum í landinu og komst fljótlega upp í 40%. Árið 1946 stofnaði Vilhjálmur Þór Samvinnutryggingar og fór eins að. Hafði samstarf við ýmsa aðila utan samvinnuhreyfingarinnar til að koma fyrirtækinu á laggirnar. Innan örfárra ára voru þetta orðin stærstu fyrirtæki á landinu í sinni grein.

 

Saga Vilhjálms

Saga frímúrarareglunnar

Networks of financial power in iceland (bls 62-64)

order.of.death

Dauðareglan, heimildarmynd um Frelsislund

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Bækur og myndir, Dulspeki

Það var árið 2000 sem útvarps- og kvikmyndagerðamaðurinn Alex Jóns tókst að komast inn í Frelsislund og taka videomyndir af dulspekiathöfninni “Bálför umhyggjunar”.

 Í framhaldi gaf hann út heimildarmyndina Dark Secrets in the Bohemian Grove, eða Dimm leyndarmál Frelsislundar.  Sú mynd olli straumhvörfum í blaðamennsku um þessa samkomu elítunnar.  Áður var nánast grafarþögn, en eftir að myndskeið hans frá afkárlegri sviðsettri fórnarathöfn hafði verið sent út í fréttum bæði vestan hafs og í Evrópu, þá losnaði um málbeinið hjá kerfisfjölmiðlunum, en þó var reynt að snúa þessu öllu upp í einhver ærsl og kjánaprik hjá ofvöxnum menntaskólastrákum.

5 árum seinna gaf Alex út aðra mynd, þar sem hann greinir betur þau gögn sem hann átti þátt í að upplýsa og þróun umræðunnar um Frelsislund síðan fólki varð betur ljóst hvað á gengur á þessari furðulegu samkomu.

Sú mynd heitir The Order of Death, eða Dauðareglan, og er að mínu mati skemmtilegri áhorfs, þó hin fyrri sé vissulega nauðsynlegur bakgrunnur fyrir þá sem vilja skynja andrúmsloftið í lundinum.

Hér er útgáfa í meðalgæðum á youtube af Dauðareglunni, en ég bendi á að Alex Jóns er nú með tilboð til áskrifenda fréttabréfs síns, þar sem hægt er að fá DVD með báðum myndunum á aðeins 10 dollara auk sendingarkostnaðar.



George_W__Bush_toasts_Elizabeth_II_2007.crp

Samsæri eðlufólksins

Höfundur bjorn þann . Flokkur Dulspeki, Klórað í yfirborðið

Hinum vestræna heimi er stjórnað frá miðlægum punkti. Af sögulegum ástæðum er hann í Evrópu. Höfuð köngulónnar er í formi valdamikilla ætta eins og t.d. Rothschild. Þessa þrjá þætti gætu flestir verið sammála um eða a.m.k. rökrætt þá út frá staðreyndum. En David Icke og ýmsir með jafnvel ýktari sýn en hann á raunveruleikann telja að framandi verur utan úr geimnum eða öðrum víddum ráði för. Og veldi þeirra megi rekja aftur til Egyptana sem byggðu píramidana.

Devil_worship_and_cannibalism_in_South_America,_by_Caspar_Plautius,_1621

Kannibalismi kóngafólksins

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Dulspeki

Þau eru þekkt fyrir galahlaðborð og konunglegar mataruppskriftir.  En minna er talað um notkun þeirra á mannaholdi sem fóðurbæti og snyrtivöru.

Á sama tíma og kóngafólkið fordæmdi villimenn fyrir mannaát í nýja heiminum, þá gengu þeir í, báru þeir á sig, drukku eða borðuðu muldar egypskar múmíur, mannafitu, flesk, bein, blóð, heilavef og skinn.

Þessi mannátstengda fæðubótahefð var ekki bundin við kóngafólkið eitt, heldur var útbreidd meðal fína fólksins.  Almenningur sætti svo færis við aftökur, sérstaklega þegar menn voru hálshöggnir, þá komu múgurinn með bolla sína og koppa til að ná blóðsopa handa börnunum að drekka.

http://www.dailymail.co.uk/news/article-1389142/British-royalty-dined-human-flesh-dont-worry-300-years-ago.html

Skrípó