Smiley face

Eiturefnasúpa í súpermarkaðnum

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Innlendar fréttir, Matvæli, Mengun

RÚV: Fólk kemst í snertingu við tugi efnasambanda á degi hverjum. Umhverfisstofnun hefur síauknar áhyggjur af svonefndum kokteiláhrifum, það er áhrifn af samverkun efnanna.  Venjulega manneskja kemst í samband við helling af efnum á hverjum degi, ekki síst á morgnana, en þá eru margir sem bera á sig krem. Í einni kremdollu getir verið mörg efnasambönd. Flestir bursta líka í sér tennurnar og það er ekki minna af efnum í tannkremstúbunni.

Í tannkremstúbunni er til að mynda skordýraeitrið flúor sem skaðar heilann og gerir fólk sljótt, undirgefið, framtakslaust og auðvelt í meðförum.  Í heilsubúðum fæst tannkrem án flúor.  Kostar að vísu eins og 4 eiturtúbur, en er vel þess virði.  Flúor ver ekki gegn tannskemmdum, ef það virkaði, þá hefði dregið úr tannskemmdum hjá börnum jafnt sem fullorðnum.

Þessi frétt RÚV minnir óneitanlega á plott úr gamalli Batman mynd.  Djókerinn hefur blandað eiturefnum í snyrtivörur sem eru til sölu í Gotham borg.  Hann segir frá því á sinn skemmtilega hátt í sjónvarpsauglýsingu.  Fólk getur notað eina eða tvær af þessum vörum án vandræða, en þegar ákveðinn fjöldi tegunda blandast saman, þá tekur við glott dauðans.

Djókið fyrir innanbúðarmenn er auðvitað það að þarna er verið að segja sannleikann.  Við lifum í efnasúpu sem nagar í heilsu okkar.  Þegar kerfin yfirhlaðast, þá steypumst við í líffæraskaða, krabbamein og dauða.  Samt allt tilviljun, sko.

 

Skjaldkirtilvandamál rjúka upp vegna Fukushima

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Mengun

Börn sem fæddust á vesturströnd Bandaríkjanna þegar mökkurinn frá Fukushima gekk yfir reynast hafa 28.8% meiri líkur á vandamálum tengdum skjaldkirtli heldur en börn sem fæddust ári fyrr.

Rannsóknin sem sýnir þessar niðurstöður birtist í tímaritinu Open Journal of Pediatrics og var gerð á börnum víða um Bandaríkin.  Rannsóknin hófst einni viku eftir hörmungarnar í Fukushima og stóð í fimmtán vikur.

Ríkjandi vindar í Fukushima báru strókinn að mestu út á Kyrrahafið, en hinum megin við það eru Bandaríkin.

Geislavirkt joð veldur skjaldkirtilsvandamálum, en helmingartími þess er stuttur og ólíklegt að Fukushima blási miklu af geislavirku joði héðan af, nema aftur fari að hitna í kolunum.  Önnur og jafnvel ógeðfeldari geislavirk efni fylgja þó með í stróknum, þó þau séu í eðli sínu þyngri og berist því síður langar leiðir.  Þessi efni hafa lengri helmingunartíma, sum jafnvel árþúsundir.

Það er því óhætt að bæta geislavirkum ögnum á listann yfir ástæður til að forðast bandarísk matvæli, en á þeim lista eru aðrar ástæður eins og flúorblöndun vatns sem gæti síast í ávexti og aðrar matvörur, ómerkt erfðabreytt innihaldsefni í matvörum og fóðri dýra, hormónabúskapur, skordýraeitur, RoundUp ógeð,  og óheft sýklalyfjanotkun á verksmiðjubúum.

Report: Third of US West Coast Children Hit With Thyroid Problems Following Fukushima

cooling.towers.pd.Petr.Kratochvil

Geislun “mun meiri en búist var við”

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Mengun

Mynd: Petr Kratochvil

Geislun frá Fukushima er “mun meiri en búist var við og neikvæð áhrif hennar munu koma fyrr í ljós heldur en frá Chernobyl… og þau verða verri,” segir líffræðingur við NSNBC fréttastöðina.

Líffræðingurinn er að tala sérstaklega um fuglalíf og áhrif geislunar á slysasvæðunum Chernobyl og Fukushima á heilbrigði og lífaldur fugla sem koma til baka á geislavirkar varpstöðvar.

“Chernobyl svæðið er eins og niðurfallssvelgur fyrir fuglastofninn, eða lífræðileg gildra, fuglarnir koma til baka árlega en við það minka lífslíkur þeirra,” segir Tim Mousseau, einn af höfundum skýrslunnar frá háskóla Suður Karólínu við msnbc.com.

“Chernobyl er með öðrum orðum ekki sá Eden aldingarður fyrir lífríkið eins og sumir hafa haldið fram,” og vísar þar í kenningar öfgasinnaðra mannræktarsinna og fólksfjöldafóbíukreddukarla sem telja að mannkyn sé krabbamein á jörðinni sem þurfi að skera burt.

Höfundar rannsóknarinnar segja geislun í kring um Fukushima mun verri heldur en búist var við og áhrif hennar muni fyrr koma í ljós og verða verri heldur en í kring um Chernobyl.

Það eru þó nokkur atriði sem ekki er talað um í frétt msnbc.

Til dæmis er ekki verið að skoða hafið unan ströndum Fukushima, en gríðarlegt magn af geislavirkum efnum barst út í hafið með kælivatni og úrfelli sem blés að mestu af landi og féll niður í hafið.

Það er heldur ekkert talað um áhrif þessarar mengunar í sjó og á landi á fólkið í Japan og á vesturströnd Bandaríkjanna, jafnvel á öllu norðurhveli.

Fewer female birds after Chernobyl, study finds; same true at Fukushima?

 

 

 

Japan_Fukushima_Spent_Fuel

Skoðunarferð um eldsneytistjarnirnar

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Mengun

Er kjarnorkuslysinu í Fukushima lokið?  Já er það ekki, myndu fréttaþolar RÚV, mbl og stórstraumsins segja.  En því fer fjarri, ástandið er enn mjög slæmt og ekki sér fyrir endan á vandræðunum. 

Hér að ofan má sjá “snilldarlega” hönnun General Electric á Mark I kjarnaofnunum, en það voru sex stykki í Fukushima og fjölmörg svipuð undur eru svo um allar jarðir.  Fyrir ofan kjarnaofninn eru laugar fyrir notað kjarnorkueldsneyti, en það þarf að geyma í kælingu áratugum saman eftir að það er notað áður en hægt er að flytja það í minni gjörgæslu.  Ofnarnir í Fukushima höfðu 40 ára birgðir af notuðu eldsneyti í þessum laugum, sem nú er haldið uppi af sundursprungnum burðarvirkjum og gætu hvernær sem er hrunið, eða byrjað að leka svo mikið að ekki sé hægt að halda vatni í laugunum.

Ef þú hefur ekki fylgst með Fukushima málinu, þá er mjög góð samantekt á ástandinu á bloggi Washingtons frá því í dag.  Mæli með þessu efni.

A Visual Tour of the Fuel Pools of Fukushima

tobak.cc.bsterling

Monsanto og Marlboro kennt um fæðingagalla

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Mengun

Tóbaksplöntur, mynd CC bsterling

Argentínskir tóbaksbændur hafa höfðað mál á hendur tóbaksframleiðandanum Phillip Morris, öðrum bandarískum tóbaksframleiðendum og efnavopnarisanum Monsanto fyrir að hafa viljandi eitrað fyrir bændum og valdið hrikalegum fæðingagöllum hjá afkvæmum þeirra.

Tóbaksframleiðendurnir fengu bændurna til að rækta aðra tegund tóbaks og með henni þurfti að nota mun meira magn af eitruðum arfaeyði og skordýraeitri.  Þeim var sagt að nota vörur frá Monsanto, svo sem Roundup, og að þær væru algerlega skaðlausar.  Monsanto og Phillip Morris auðhringirnir hvöttu til að nota þessi efni í óhófi og fræddu þá ekki um skaðsemi, né létu þeim í té nauðsynlegan hlífðarbúnað.

Meðal þeirra fæðingagalla sem nefndir eru í stefnu þessara nokkurra tuga bænda eru heilalömun, hreyfihamlanir, flogaveiki, mænuklofi, þroskahamlanir, meltingarsjúkdómar, meðfæddir hjartagallar, Downs heilkenni, fingur sem vantar og blinda.

Monsanto auðhringurinn sem margir vilja nefna Monsatan framleiddi meðal annars efnavopn eins og Agent Orange og er stærsti framleiðandi erfðabreytts útsæðis, eins og maís og soyja, sem meðal annars má finna í íslenskum matvörum og sælgæti eins og Nóa kroppi og Hrís.

Monsanto and Big Tobacco Blamed for Birth Defects

 

Mynd CC expertinfantry

Herinn birgir sig upp af geislavarnarpillum

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Mengun

Mynd CC expertinfantry

Birgðadeild varnarliðs Bandaríkjanna hefur ákveðið að endurnýja birgðir sínar af geislunarvarnarpillum og vísar til Fúkúskíma og möguleika á geislavirku úrfelli sem helstu ástæðu þessarar aðgerðar.

Samkvæmt vefsíðunni FedBizOpps.gov er herinn að ganga frá 400.000 dollara innkaupum af potassion iodide (kalíum-joð) pillum, sem koma í veg fyrir að skjaldkirtill taki upp geislavirkt joð með því að metta kirtilinn.

Leiðindunum í Fukushima eru nefnilega hvergi lokið og ástandið gæti versnað með litlum fyrirvara.

Army Stockpiles Anti-Radiation Pills To Protect Against Fukushima Fallout

Skrípó