Smiley face

Læknir ákærður fyrir hrikalegar fóstureyðingar

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Erlendar fréttir, Fólksfjöldi

Lítið fer fyrir fréttum hér á landi og jafnvel í Bandaríkjunum af réttarhöldum sem nú standa yfir Dr. Kermit Gosnell, 72 ára lækni sem sakaður er um að hafa rekið fóstureyðingarmiðstöð þar sem reglum Fíladelfíuríkis var ekki fylgt, heldur boðið upp á fóstureyðingar á nánast fullburða börnum auk þess að konur þurftu ekki að bíða í sólarhring áður en fóstureyðingin fór fram, eins og reglur kveða á um.

Málið hefur verið í ferli í tvö ár og ákæran er morð af yfirlögðu ráði.

Saksóknarar segja lækninn hafa skaðað örvæntingarfullar og oft fátækar konur og táninga með því að láta ófaglært starfsfólk sitt framkvæma fóstureyðingar og sjá um svæfingu.  Þeir segja hann einnig hafa hagnast vel á þessari framkvæmd undirmálsfóstureyðinga.  Lögreglan fann 250.000 dollara í seðlum á heimili læknisins, segir aðstoðarsaksóknarinn Joanne Pescatore.

Gosnell notaði gamaldags lyf og aðferðir, lét konur fæða fóstrin lifandi og kom þeim svo fyrir kattarnef með skærum, sagði Joanne.  Venjulega er fóstrið drepið í móðurkviði.

Gosnell er sakaður um að hafa drepið sjö börn sem fæddust lifandi auk Karnamaya Mongar, 41 árs flóttakonu frá Bhutan.  Gosnell er sagður hafa drepið konuna með of stórum skammti af svæfinga og verkjalyfjum í fóstureyðingu árið 2009.  Verjendur segja konuna hafa látist af slysförum, hún hafi sjálf tekið einhver lyf fyrir fóstureyðinguna, hugsanlega til að reyna að eyða fóstrinu sjálf, hún hafi verið veik í lungum og ekki talað ensku.

Yfirvöld hafa mynd af sjötta barninu sem á að hafa verið á 31. viku og lík þess sjöunda.  En verjandi segir hvorugt barnið hafa andað af sjálfsdáðum, eða verið fætt á lífi samkvæmt lögfræðilegum skilningi.

Starfslið stöðvarinnar samanstóð af tveimur læknanemum án réttinda.  Konan sem sinnti svæfingum hafði flosnað upp úr grunnskólanámi og kann varla að lesa né skrifa.  Að auki starfaði ein 15 ára stúlka við stöðina og aðstoðaði við aðgerðir og á vöknun.

Verjandinn segir Gosnell hafa veitt fátækum í samfélaginu þarfa þjónustu og finnst óþarfi að krefjast samskonar gæðastandards á fóstureyðingarmiðstöð Gosnells og á stóru spítölunum.  Gosnell framkvæmdi um 1.000 fósturyeðingar á ári og um 16.000 á ferlinum.

Fulltrúar FBI fundu stöðina óvart þegar þeir hófu rannsókn á því hvort Gosnell stæði í sölu á læknadópi vegna mikilla ávísanna á verkjalyf.  Þess í stað fundu þeir sex konur í fóstureyðingarferlinu.  Sumar virtust mjög kvaldar og voru sendar með sjúkrabílum á spítala, en Gosnell var leyft að ljúka fóstureyðingum annarra.

Eftir aðgerðirnar settist hann niður, enn með blóðuga latexhanska á höndum og fékk sér kvöldsnarl meðan fulltrúarnir yfirheyrðu hann.

Ótrúlega viðbjóðslegar sögur hafa svo flotið um internetið upp á síðkastið, án þess að stóru miðlarnir miðli þeim, þar sem starfsmenn stöðvarinnar segja frá hryllilegri reynslu sinni, til dæmis þegar móðir fæddi barn á klósettinu, og barnið synti um í skálinni og var að reyna að bjarga sér.

Draumaland Gates og Andra Snæs

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólksfjöldi, Pistlar

Í páskablaði DV (og vef) er að finna smáfrétt um að Bill Gates vilji fjármagna hönnun á betri smokkum:

Bill Gates eyðir sífellt meiri tíma í að hjálpa öðru fólki með tíma sínum og fjármunum. Nú hefur hann fengið í lið með sér færa vísindamenn í því skyni að framleiða smokka sem bæði konum og körlum „líður vel með.“

Þeir sem fylgjast með og gera það með vakandi og gagnrýnum hætti (eins og allir ættu að temja sér) hafa vafalaust tekið eftir því að nafn Bill Gates kemur nú oftar fyrir í sambandi við eitthvað annað en stýrikerfi og hugbúnað.  Raunar virðist karlinn engann áhuga hafa lengur á tölvum og hugbúnaði, nema þá sem tækjum til að leysa önnur vandamál.

Það sem Gates og frú er hugleiknast er að fækka öðru fólki.

Þegar þessi staðhæfing er höfð til hliðsjónar, þá eru allar þessar furðufréttir af Bill Gates algerlega rökréttar.  Hvers vegna vill Bill Gates hanna betri smokka?  Svo fólk noti þá frekar og þar með dragi úr óvæntum þungunum.  Hvers vegna vill Bill Gates bólusetja þróunarlöndin?  Vegna þess að hægt er að koma við “slysum” í framleiðslu bóluefnanna þannig að fólk verði ófrjótt í leiðinni.  Hvers vegna vill Bill Gates erfðabreyta moskítóflugum þannig að þær “bólusetji” fólk (geri ófrjótt) um leið og þær dreifa sjúkdómum og dauða?  Er það ekki augljóst?  Hvers vegna vill Bill Gates styrkja Monsantó og þeirra ónýta erfðabreytta óskapnað?  Vegna þess að eins og óháðar rannsóknir hafa leitt í ljós, þá valda þessi matvæli sjúkdómum, stytta æviskeið og skemma erfðaefni sem dregur úr frjósemi og möguleikum neytenda til að eiga afkomendur.

Hér er stutt myndskeið frá vel fjármagnaðari áróðursstofu Bill Gates, varðandi matvæli, og þá fer að koma að honum Andra okkar Snæ:

Í þessu myndbandi er þeirri vitleysu haldið að grunlausum áhorfendum að hugnur á jörðinni stafi af of mörgum munnum, dýra og manna.  Gefið er í skyn að ef við myndum ekki fyrst fóðra dýr svo hægt sé að fóðra fólk, þá hefðum við nóg að borða handa öllum.

Villan er sú að við hendum nú þegar miklu meiri mat en þarf til að fóðra þá hungruðu.  Þá er ég ekki að tala um bullið sem haldið er að okkur um að við eldum of mikinn mat og hendum leifunum, heldur er ég að tala um að við hendum hreinlega mat frekar en að selja ódýrt.  Samanber urðun okkar Íslendinga á lambakjöti fyrr á árum.  Það var gert til að koma í veg fyrir lækkun á verði vörunnar.  Sama lógík er í gangi í heiminum öllum og veldur því að fátækir fá ekki nóg að borða.

Það er sem sé ekki fæðuskortur, heldur sér kerfið engan hangnað í að fóðra “ómagana”.  Það er ekkert að því að borða kjöt og henda afgöngum.  Við erum ekki að éta bræður okkar út á gaddinn með því.  Það skiptir engu máli.  Kraft, Pepsí, Conagra og hinir auðhringirnir verða ekki skyndilega siðprúðir ef neysla okkar dregst saman.  Þeir bara hækka verðið til að halda í sinn gróða, enda eru þessir auðhringir langt komnir með að ná einokunarstöðu í heiminum.

Hvað er þá hægt að gera til að fæða þá hungruðu?

Ein leið væri að hjálpa þeim að verða sjálfbærir, auðvelda þeim að byggja upp eigin landbúnað (í samkeppni við verksmiðjubúin) og þróa eigin iðnað og atvinnu.

Hin leiðin er að sósíalvæða ómagana, safna peningum á Íslandi og víðar til að kaupa hnetumassa og vatnsflöskur til að dreifa til bágstaddra, svo þeir geti haldið áfram að vera bágstaddir og upp á einhverja kommissara komnir um næstu máltíð.

Andri Snær tæklaði þessa spurningu út frá öðrum vinkli í Daumalandinu.  Hann talar um óhagkvæmnina af því að borða kjöt og hvert sú stefna að hámarka hagkvæmni og hugsa ekki um önnur gildi leiðir.  Í stað landbúnaðar gætum við haft verksmiðjubúskap, tvö risafjós á Íslandi, hundrað verkamenn, verksmiðjustjóra og tæknifræðing til að reka próteinframleiðslu sveitarinnar.  Eða bara skammta hverjum og einum 100 kg af loðnumjöli og sleppa öllum landbúnaði.

Hér er svo draumaland Bill Gates, lýst af Andra okkar Snæ:

Öll íslenska þjóðin hefur verið færð í eina risablokk.  Á hverri hæð eru nokkur 8 fermetra íverurými (Agenda 21 style), blár eða bleikur samfestingur handa hverjum og einum.  Í hverri stíu væru svo þrír kranar:  Heitt vatn, kalt vatn og stútur fyrir mjólkurblandað loðnumjöl.

Getur þú ímyndað þér þetta draumaríki?  Hver er þá tilgangur íbúanna (okkar)?  Varla væri hagkvæmt að við ferðuðumst um út frá blokkinni.  Það myndi bara blása út kolvetni (sem er enn einn villumælikvarðinn á illsku) án nokkurs ávinnings.  Næstu skref eru augljós.  Í fyrsta lagi stöðva fjölgun, svo ekki þurfi að byggja fleiri blokkir.  Í annan stað, skera niður þessa  loðnumjölsétandi ómaga sem hvort sem er sitja bara í stíum sínum og bíða þess að deyja.

Tilgangur okkar í þessari heimsmynd er bara að reka loðnumjölsframleiðsluna fyrir þrælana og svo takmarka alla óþarfar aðgerðir þeirra.

Nei, það er einn annar tilgangur.  Að þjóða forréttindastéttinni.  Bill Gates og frú, Al Gore, alþjóðlegu bankaelítunni og alþjóðlegu auðmönnunum.

Það er draumaland Bill Gates.

 

barbie.cc.Charles-dollstuff.net

Krabbameins-Barbí

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólk, Fólksfjöldi

Mynd cc Charles

Krabbamein eru í tísku og Mattel dúkkurisinn er með “vinkonu Barbí” á leiðinni, en vinkonan er sköllótt vegna aukaverkana krabbameinslyfjameðferðar.

Yfir 157 þúsund manns hafa undirritað Feisbúk áskorun til Mattel um að gera nýja Barbí dúkku sem líkist fórnarlömbum krabbameins.  Fréttasíðan News.com.au segir dúkkuna koma á markað á næsta ári og koma með ýmsum höfuðbúnaði og klæðnaði sem fórnarlömb krabbameina nota.

Tíðni krabbameina er greinilega í svo miklum vexti í Bandaríkjunum, jafnvel meðal barna, að ákveðnir aðilar vilja að Mattel gefi út krabbameinssjúka dúkku svo börnin geti tileinkað sér þessa tísku.  Þetta fólk virðist með öðrum orðum styðja heilshugar við furðulega efnishyggjuvæðingu einnar helstu dánarorsakar Bandaríkjamanna með barnaleikfangi.

Á Íslandi höfum við rétt sloppið út úr hinum hryllilega ‘Mottumars’ krabbameinsfélagsins, sem gerir svipaða hluti og ótrúlega margir íslenskir karlmenn láta teyma sig í þessa furðulegu dýrkun á sjúkdómum og peningaplokk tengt þeim.

It’s trendy to have cancer: Barbie to roll out ‘cancer doll’ with bald head, chemo side effects

klosettpappír 630

Ekki kúka dagurinn í dag

Höfundur bjorn þann . Flokkur Fólksfjöldi, Grín dagsins, Matvæli, Veðurfarsbreytingar

Eins og flestir lesendur Kryppunnar vita þá er “Ekki kúka” dagurinn í dag.  Dagurinn er haldin hátíðlegur út um allan heim og taka yfir 3000 borgir og bæir þátt í honum.  Markmið skipuleggjanda dagsins er að fá sem flesta til að hætta að kúka í einn dag og vernda þannig umhverfið og búa til mat handa svöngu fólki.

Við lifum á viðsjáverðum tímum þar sem ágangur okkar mannfólksins er að ganga að jörðinni dauðri.  Gríðarlegir þurrkar hrjá Evrópu og Sahara ásamt miklum vatnsskorti út um allan heim.  Ekki má heldur gleyma svanga fólkinu sem fær stundum ekki mat dögum saman.  Vegna vatnsskorts og fátæktar.

Allir sem geta haldið í sér eru því hvattir til þess.  Þannig spörum við gríðarlegt magn af vatni sem mætti nota til að vökva aldingarða og rækta mat handa öllum.  Ef allir íbúar jarðarinnar notuðu ekki klósett gætum við vökvað landsvæði á stærð við Alaska.  Sem mætti síðan nota undir sjálfbæran landbúnað og rækta lífrænt ræktaðan mat.

Í tilefni dagins hefur Jón Gnarr borgarstjóri skipað öllum borgarstarfsmönnum að halda í sér.  Þeir sem geta haldið í sér út vikuna fá einnig sérstök heiðursmerki með mynd af grænum fingrum og dolla vatnsdropa, lukkudýri dagins.  “Ég vona að sem flestir geti haldið í sér sem lengst og bjargað þannig jörðinni.” Sagði Jón í viðtali við fjölmiðla.   Hann ætlaði sjálfur að hætta að kúka í mánuð ef það gæti bjargað litlu þorpi í Afríku en aðrir í fjölskyldu borgarstjórans ætluðu bara að hætt að kúka ef það gæti bjargað Ísafirði.

china.baby

Hryllileg einbirnisstefna Kína

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólksfjöldi

Svona er ásýnd hins hryllilega eins barns harðræðis sem framfylgt er í Kína, en fræðimenn og þrýstihópar vilja að verði tekið upp á vesturlöndum. 

Myndin sýnir 9 mánaða barn, látið í fötu eftir nauðafórstureyðingu framkvæmda af fulltrúum ríkisins í bænum Moshan í Shandong sveit.

Af því foreldrar barnsins áttu barn fyrir og áttu ekki pening til að liðka til í kerfinu, þá voru þau elt uppi og neydd til að virða alræðislega stefnu Kína um eitt barn á fjölskyldu.  Móðirin fékk eitursprautu sem kom fæðingu af stað og átti að drepa fóstrið, en eftir að barnið var slitið út eins og eitthvað kjötstykki, þá var það enn á lífi og fór að gráta þar til “læknar” fleygðu því í fötu þar sem varnarlaust ungabarnið lést.

Tímamerkingin á myndinni sýnir að barnið var drepið á mánudag, en myndin kom upp á yfirborðið í fyrradag, 29. mars, á Weibo vefnum, sem er kínversk útgáfa af Twitter með um 260 milljón notendur.  Fréttin hefur vakið öldu andstyggðar á “fjölskylduhjálp” Kína (family planning authorities) sem eru ábyrg fyrir morðinu á barninu.

Það er okkur hollt að kynna okkur hvernig þetta byrjaði allt í Kína.  Það tók dálítinn tíma og áróður, fjármagnaðann af “mannúðarstofnunum” eins og Rockefeller foundation þar til þetta varð almenn regla í landinu.  Sömu lummur eru nú að banka uppá hjá okkur á vesturlöndum.  Lærum við af sögunni, eða gerum við nákvæmlega sömu mistök og Kínverjar?

Tengt þessu eru svo einnig fréttir af vestrænum “siðfræðingum” sem viðra hugmyndina um fóstureyðingar á þroskuðum fóstrum, og ekki nóg með það.  Þeir halda því fram að börn allt að þriggja ára séu í raun ekki orðnar meðvitaðar manneskjur, heldur bara “potential for life”, fóstur utan legsins, sem siðferðilega sé allt í lagi að drekkja í fötu eða aflífa með öðrum hætti, ef foreldrar eru óánægðir með barnið, eða ekki tilbúnir að gegna foreldrahlutverkinu.

http://www.infowars.com/the-shocking-face-of-chinas-brutal-one-child-policy/

Famine_Saratov_1922

Bob Geldof varar Araba við fólksfjölgun

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólksfjöldi

Séra Bob Geldof talað ögn við blaðamenn um fólksfjölgun í Arabaheiminum á föstudag þar sem hann sat á þingi um fæðuöryggi við Persaflóann sem haldin var í Sameinuðu furstadæmunum.

Geldof er nútíma Malthúsmaður og hjá þeim er fæðuöryggi einföld reikningsformúla, enda var séra Malthús uppi tveimur öldum áður en Excel kom til sögunnar og þá þurfti að handreikna svona vísindi.

Fólksfjölgun í arabaríkjunum er hærri en heimsmeðaltalið, segir hann.  Ef fólki heldur áfram að fjölga, þá drekkur það vatnið sem annars hefði verið notað til ræktar, það leiðir til uppskerubrestar, þetta er alveg borðliggjandi samkvæmt Malthús og Geldof, en Malthús hafði einmitt spáð því að fólksfjölgunin yrði orðin svo þungur baggi á jörðinni um aldamótin 1.800 (ath – átján hundruð) að samfélagið myndi hrynja, fólk deyja úr hungri eða draga fram lífið á mannáti.

“Ef 200 milljón konum eru gefnar ókeypis getnaðarvarnir þá kemur það í veg fyrir 80 milljón óviljandi þunganir og þá náum við að stöðva fólksfjölgunina,” segir Geldof og virðist alveg vita nákvæmlega hvaða 200 milljón konum þarf að útvega ókeypis getnaðarvarnir.

“Þetta er mannúðlega aðferðin við að draga úr fólksfjölgun,” segir Geldof og lifnar yfir honum þegar hann lætur hugan reika til annarra úrræða.

Ef ekkert er að gert, heldur hann áfram, þá taka náttúrlegir ferlar við, hungursneyð, drepsóttir og stríð, segir hann, brosir og kinkar kolli.

Fréttamaður spyr hann hvort raunhæft sé að ætlast til að menningarheimur araba taki getnaðarvörnum opnum örmum, og þá setur Geldof fram úrslitakosti fyrir héraðið:

“They either find a cultural way to make this acceptable or they’re going to have an anthropogenic critical event.”

Þeir verða annaðhvort að finna leiðir til að ná sátt um getnaðarvarnir, eða takast á við hamfarir af mannavöldum.

Þannig fer Geldof með gömlu góðu möntru Malthúsarmanna um að jörðin taki í taumana og skeri niður afæturnar ef við gerum það ekki sjálf.

Sheikh Nahyan bin Mubarak, ráðherra Vísinda og Æðri Menntunar í furstadæmunum skaut til baka og sagðist ekki skilja það til fulls hvernig vinningsformúlan geti verið sú að hætta barnseignum, því börnin séu jú framtíðin.

Mynd: Eitt af milljónum fórnarlamba Stóru úkraínsku hungursneyðarinnar 1932-1933, en hún hafði meira með kommúnisma heldur en fólksfjölda að gera.

 

Skrípó