
Síðasta ár var Raphaël Sirjacobs og Béatrice Dupont erfitt undir lokin því þau þurftu að fylgjast með níu vikna dóttur sinni, Stacy Sirjacobs, tapa í baráttunni fyrir lífi sínu aðeins einni viku eftir fyrstu bólusetninguna. Örvinglaðir foreldrarnir eru sannfærðir um að bólusetningarnar og lækningamistök séu orsakir dauða dóttur þeirra.
Stacy og tvíburasystir hennar Lesly voru teknar mánuði fyrir tímann með keisaraskurði og fyrstu fjóra dagana voru þær í hitakassa á gjörgæslu. Stacy var tæpari til heilsunnar og þurfti að endurlífga hana eftir keisaraskurðinn.
Samkvæmt læknisráði ákváðu foreldrarnir að láta bólusetja tvíburana. Stacy var dálítið kvefuð daginn sem hún var bólusett, en læknar fullvissuðu foreldrana um að í lagi væri að bólusetja hana.
Tvíburarnir fengu Prevenar bóluefni með heilahimnubólgu og lungnabólgu, svo Infanrix Hexa, sex bólur í einni sprautu með barnaveiki, stífkrampa, mænusótt, kíghósta, lifrarbólgu B og Haemophilus B, og að lokum Rotarix bólu með iðrabólgu.
Viku eftir bólusetninguna varð Stacy veik með 39.9 stiga hita á celcius. Fyrst reyndu foreldrarnir hitalækkandi lyf en fóru svo með barnið á spítala. Þar greindi starfsliðið Stacy með dálítla sýkingu í brjóstkassa ásamt sýkingu í blóði og sögðu foreldrum að hafa engar áhyggjur, þetta væri ekki alvarlegt. Stacy fékk lyf og næringu í æð og var undir eftirliti á spítalanum.
Faðir hennar sagði að öllum getgátum um tengsl við hinar 9 bólusetningar og veikindin hafa verið vísað á bug af miklum þjósti.
Í framhaldinu tekur svo við furðuleg saga þar sem starfsliðið sem ef til vill leit á þau hjónin sem einhverja vandræðaseggi fyrst þau minntust á bólusetningarnar, gerði hver mistökin á fætur öðrum að því virðist.
Stacy hafði hjartslátt upp á 200-230 slög á mínútu, en barnalæknir sagði foreldrum að það væri ekkert til að hafa áhyggjur af, hún væri sennilega bara með iðrabólgu (einn af þeim kvillum sem hún var bólusett með fyrir viku).
Foreldrarnir voru ekki alveg rólegir, þrátt fyrir æðruleysi starfsliðsins, og viku ekki frá sjúkrabeði dóttur sinnar. Um kvöldið létu þær hjúkku vita að dóttir þeirra væri með niðurgang, en þeim til mikillar furðu, þá var þeim sagt að búið væri að skipta á dóttur þeirra og þau ættu bara að lofa henni að sofa þar til hún myndi vakna.
Um nóttina hélt óeðlilegur niðurgangurinn áfram og þrátt fyrir örvæntingarfull köll foreldra, þá þverneitaði hjúkkan að sinna barninu, þó Stacy væri orðin óróleg og liði greinilega mjög illa. Faðir Stacy tilkynnti hjúkrunarliðinu að barnið væri þakið rauðum útbrotum og ætti í erfiðleikum með andardrátt án þess að vekja samúð eða athygli þeirra.
Einhverntíma um kvöldið eða nóttina [frumtexti er á belgísku eða frönsku, ég þýði úr ensku, þetta er dálítið óljóst] er beðið um leyfi til að gera mænuástungu og gefa þar fúkkalyf, en þeirri beiðni er hafnað. Skömmu síðar lést Stacy.
Skráð dánarorsök Stacy er heilahimnubólga, önnur sýki sem hún var einnig bólusett með.
Starfsliðið vísar öllum tengslum við bólusetningarnar á bug, en þessar síðustu stundir í lífi barnsins þá er hún greind með tvo af þeim sjúkdómum sem sprautað var inn fyrir skinnið fyrir aðeins viku síðan.
Bólusinnar benda væntanlega á að tvíburasystirin er enn á lífi og telja það sönnun þess að um tilviljun og óheppni sé að ræða. En Stacy var veikari fyrir og auk þess kvefuð þegar hún var bólusett.
Er það til of mikils mælst að fólk í það minnsta íhugi hvort allar þessar bólusetningar séu ef til vill álag fyrir ónæmiskerfi barnsins? Að þær séu það almennt? Að ef til vill geri þær meiri skaða á ónæmis og taugakerfinu heldur en þær verja, ef þær þá verja yfirleitt?
Stacy’s father says: (translated from French by Google translate)
“The nurse 23h phone to the pediatrician to inform him that the little Stacy is worse, this one happens to 11:45 p.m. ET begins to make attempts at resuscitation. He informed at the time the parents that the baby is not breathing on their own, and asks them to leave the room. Would follow three hours, during which everything is sought to revive the girl, who is declared dead at 3am. But in fact, the heart stopped beating Stacy at midnight.
The pediatrician then began to explain to parents that the little one died of sepsis and meningitis, while in order to make such a diagnosis, it would have had to do a lumbar puncture which was not performed, or that would have required at least one blood culture or stool, the results will not be known until 3 or 4 days”.
Lesið meira:
http://www.infowars.com/baby-dies-after-9-vaccines-in-one-day/
Ítarefni:
1. Citizen Action for Uncensored Vaccine Information and Freedom of Vaccination Choice – 20th January 2012http://sanevax.org/citizen-action-for-uncensored-vaccine-information-and-freedom-of-vaccination-choice-20th-january-2012/
2. Daily Paul reporting on The Times of India article written by Ron Paul http://www.dailypaul.com/166249/128-kids-died-after-vaccine-in-2010-govt-cant-say-why-the-times-of-india
3. Neil Z Miller http://ebookcashstreams.com/HotNewsBlog/2011/03/2000-babies-died-in-the-united-states-after-receiving-vaccines/
4. New Study: More Vaccines Increase Infant Mortality Rateshttp://het.sagepub.com/content/early/2011/05/04/0960327111407644
5. The Pourcyrous Study The Journal of Pediatrics http://www.jpeds.com/article/S0022-3476%2807%2900185-0/abstract
6. Daily Mail – New vaccine against deadly meningitis B ‘will be available in the spring’ by Jenny Hopehttp://www.dailymail.co.uk/health/article-2088176/New-vaccine-deadly-meningitis-B-available-spring.html#ixzz1jpErW3Ff