Smiley face

Hörður Torfa aftur á Austurvelli

Höfundur Starfsmenn þann . Flokkur Fundir og mannfagnaðir, Innlendar fréttir

Fréttatilkynning:

Raddir fólksins boða til útifundar um stjórnarskrármálið næstkomandi laugardag, 19. janúar klukkan 15.00 á Austurvelli.

Alþingi ber að virða skýran vilja kjósenda, eins og hann kom fram í þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október. Meiri hluta Alþingis ber að láta þann vilja ná fram að ganga.

Ræðumenn:

Illugi Jökulsson, rithöfundur og blaðamaður
Sigríður Ólafsdóttir, lífefnafræðingur

Á undan fundinum mun Svavar Knútur flytja nokkra söngva sinna.

Fundarstjóri: Hörður Torfason

Raddir fólksins.

Pírataskóli um helgina

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fundir og mannfagnaðir, Grasrótin

Grasrótarmiðstöðin, Brautarholti 4, kl 12:30

Píratar ætla að halda stjórnmálaskóla helgina 12.-13. janúar. Hér er um að ræða frábært tækifæri fyrir þá sem ætla að leggja framboðinu lið í vor, hvort sem þeir ætli að bjóða sig fram eða vinna á bak við tjöldin. Verið er að vinna í dagskránni sem verður nánar auglýst síðar. M.a. verður farið yfir málefnastarf, stofnun félagsdeilda og hvernig starfið mun fara fram fram að kosningum.

Planið er svo að lyfta sér upp eftir daginn og skemmta sér. Þannig að þetta er fínt tækifæri fyrir okkur öll til að kynnast hvoru öðru.

Í framhaldi af stjórnmálaskólanum er stefnt á að félagsdeildir í Reykjavík og SV-kjördæmi verði stofnaðar.

LAUGARDAGUR 12. JANÚAR
12:00 Setning, húsið opnar.
12:30 Stefán Vignir –Svona fer málefnastarf fram.
13:00 Birgitta Jónsdóttir –Af hverju ætti venjulegt fólk að fara í framboð og hvernig virkar Alþingi og hvað er eiginlega IMMI?
14:30 Hlé
14:45 Jón Þór Ólafsson –Stjórnmálaleikurinn
15:30 Hlé
16:00 Birkir Fannar Einarsson –Áhrif og áróður
18:00 Deginum lokið.

SUNNUDAGUR 13. JANÚAR
12:00 Húsið opnar
12:30 Herbert Snorrason –Stofnun félagsdeilda
13:15 Smári McCarthy –Fljótandi lýðræði og miðlun vilja
15:15 Matarhlé
16:00 Birkir Fannar Einarsson –Að koma vel fram (vinnustofa)
18:00 Slit.

Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn í Pírötum, en fyrir aðra er 1.000 kr. aðgangseyrir. Tekið verður við skráningum og frjálsum framlögum á staðnum.

Athugið að skráning fer fram í tölvupósti á piratar@piratar.is.

 

Heilbrigðisþjónusta og húsbyggingar

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fundir og mannfagnaðir

Eru heilbrigðismálin á villigötum?  Erum við að fara í mikla fjárfestingu í húsnæði á röngum forsemdum?  Á að hætta að veita heilbrigðisþjónustu í kring um Reykjavík og flytja hana til nýs og stærra hátæknisjúkrahúss þó hver sambærileg þjónustueining muni kosta allt að tíu sinnum meira með því fyrirkomulagi?  Eða er kannski vitlaust reiknað, eins og velferðarforinginn Guðbjartur Hannesson og hans fólk í ráðuneytinu vill meina?

Guðrún Bryndís Karlsdóttir, sjúkraliði og verkfræðingur, hélt afar fróðlegan fyrirlestur um stöðuna í heilbrigðismálum hér á landi á fundi sem var haldinn á vegum stjórnar SAMSÖÐU-Reykjavík á mánudagskvöld (16.11.12).  Fundurinn fór fram að Ofanleiti 2. Þó hann væri frekar fámennur, ekki nema um tuttugu manns, þá spunnust afar fróðlegar umræður í kjölfar erindis hennar.

2+2=5

Meistaraprófsritgerð: Staðsetningarvörpunarstuðli beitt til að meta gæði grunnplana legudeilda sjúkrahúsa

 

Kynna nýjan banka í dag

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fundir og mannfagnaðir

Samfélagsbankar

Annika Lauren bankastjóri „Ekobanken“ í Svíþjóð flytur erindi í sal Norræna hússins í dag, sunnudag 18. nóvember, á stuttri ráðstefnu um hugmynd og veruleika samfélagsbanka sem hefst klukkan 15 og stendur í um 90 mínútur.

Samfélagsbankar eru viðskiptabankar, sem hafa samfélagsleg markmið og sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Mikilvægur þáttur í rekstri þeirra er algjört gagnsæi þar sem gefið er upp til hvaða verkefna þeir lána fé. Útlán eru eingöngu fjármögnuð með innlánum og ekki er stunduð spákaupmennska á fjármálamörkuðum.

Hitnar undir verðtryggingunni

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fundir og mannfagnaðir

Hagsmunasamtök Heimilanna boða til borgarafundar í kvöld í Háskólabíó og hefst fundurinn klukkan 20.

Á dagskrá: Málsókn gegn verðtryggingu

Guðmundur Ásgeirsson varaformaður Hagsmunasamtaka Heimilanna er einn frummælenda og í pallborði er sjálfur Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforinginn (eini?) frá Akranesi.  Aðrir frummælendur og pallborðsmeðlimir eru Pétur Blöndal, Þórður Sveinsson lögmaður, fulltrúar þingflokkanna, talsmaður neytenda, fulltrúi ríkisstjórnarinnar og formaður HH.

Málsókn gegn verðtryggingu beinist gegn framkvæmd verðtryggingar í neytendalánum. Húsnæðislán einstaklinga falla undir lög um neytendalán frá desember 2000. Verðtrygging er ósamrýmanleg lögum um neytendalán þar eð hún m.a. getur ekki rúmast inna árlegrar hlutfallstölu kostnaðar.

 

Skrípó