Teymi vísindamanna á spena hergagnaiðnaðarins hefur gert vél sem hefur virkni sem svipar til mannsheilans og gæti gert drónum kleift að hugsa og framkvæma á eigin forsemdum. Það er
National Defence Magazine sem segir frá þessu og ræðir við James K. Gimzewski efnafræðiprófessor við háskólann í Kaliforníu í Los Angeles.
Þeir nefna kerfið líkamsgreind (physical intelligence) og það getur án nokkurrar forritunar í ætt við það sem hefðbundnir drónar þurfa, framkvæmt aðgerðir svipaðar og fólk gerir, og þar með opnast möguleikinn á fyrstu kynslóð dróna sem geta starfað algerlega sjálfstætt, án innlagnar frá mönnum.
Það sem setur þetta tæki algerlega í sérflokk eru nanóvírar sem bjóða upp á milljarða tenginga eins og eru til staðar í mannsheilanum og þannig getur tækið ”munað” upplýsingar, skrifar Sandra I. Erwin. Hver tenging er synthetísk taugamót. Taugafrumur nota taugamót (synapse) til að senda raf eða efnaboð til annarrar frumu. Vegna flækjustigsins á þessu ferli þá hefur sjaldan tekist að líkja eftir því með hefðbundinni gervigreind.
Hugsið ykkur bara Predator dróna sem sveima yfir okkur og skjóta flugskeytum að geðþótta á þá sem þeim þykja leiðinlegir. En það er auðvitað gott að vissu marki, þessi óskapnaður mun áreiðanlega ekki hafa neina samvisku til að gera hann geðveikann eftir að hafa framið stríðsglæpi í þágu alþjóðlegu bankamafíunnar á vígvöllum dagsins, sem í dag eru miðausturlönd og Afríka, en vafalaust rata þessir drónar fljótlega heim til Bandaríkjanna og Íslands.
Eflaust er svo hægt að framleiða nýjar tegundir dróna til að taka að sér önnur verkefni sem leggjast þungt á samvisku sérsveitamanna, lögfræðinga og annarra þjóna sem enn bera þó einhvern guðlegan neista mannsandans og samkenndar í brjósti. Löggæsludrónar, starfsdrónar í pyndingastöðvum og bólusetningadrónar koma upp í hugann.
Vísindahórkarlar hergagnaiðnaðarins vinna að þessu mikilvæga verkefni í ýmsum stofnunum og með allskonar nálgunum.
Þannig hafa aðrir ötulir púkar fundið leið til að tengja saman tvo (eða fleiri) rottuheila í “ofurheila” sem getur þá væntanlega tekist á við flóknari verkefni en meðalrottan getur leyst. Þannig gætu stýriflaugar framtíðarinnar fundið skotmörk sín með hjálp samstillts hóps samtengdra rottu og apaheila.