Það er engan vegin auðvelt að sjá á bak við tjöldin varðandi hryðjuverkið við endamörk Boston maraþonsins. Allskyns hópar virðast hafa verið að þvælast með bakpoka og aðra burðarpoka með þrýstisuðupottum í kring um marklínuna. Yfirvöld voru við það að lýsa yfir að þau hefðu sökudólginn í haldi þegar þau skyndilega aflýstu öllum fréttamannafundum og þverneituðu því að sprengiæfingar hafi átt sér stað, eftir að jaðarfréttamenn náðu skriði með greiningu á fjölda mynda sem ganga á milli fólks, háskerpumynda sem fólk á staðnum tók og birti á internetinu.
Alex Jóns útskýrir hvers vegna myndin er svona flókin. Baktjaldamenn fá allskyns hópa til að taka þátt í “æfingum”, þeir mæta á staðinn, múslimar, hægri öfgamenn, flotaselir (sérsveitin), uppgjafarhermenn, teboðsfólk, baráttumenn fyrir byssufrelsi, svertingjar, hvítingjar og svo framvegis. Þá eru til margar samhliða sögur til að grípa til. Þeir voru búnir að velja eina, en jaðarmiðlarnir höfðu afhjúpað hana áður en hún fór í loftið. Þá bara grípa þeir í næstu sögu, sem gæti passað við þau gögn sem liggja fyrir.
Það sem vinnst með þessu er svo margþætt. Ekki bara að viðhalda hryðjuverkagrýlunni, sem var farin að dala, heldur í leiðinni er tækifærið notað og heilu hverfin í stórborg sett undir heraga, herlög, þar sem ferðafrelsi er takmarkað og gengið hús úr húsi án húsleitarheimildar undir því yfirskini að leita að sprengimanni fyrir atvik sem stjórnvöld settu nánast örugglega sjálf á svið. Fólk lætur þetta yfir sig ganga vegna þess að það er í sjokki yfir atburðunum. Í leiðinni er sett fordæmi fyrir því að yfirvöld þurfi bara að sprengja einhverja kínverja, nú eða henda handsprengju í hóp af fólki, þeim er nokkuð sama, til að geta lokað heilu borgarhverfunum að geðþótta.
Bandaríkjamenn hafa verið varaðir við því af mönnum eins og Alexi Jóns, að það sem þeir láta viðgangast í sínu nafni á útrásarsvæðunum, Bagdad, Afganistan, Pakistan, Líbíu og svo framvegis, það komi að lokum heim í hérað. Það er að rætast, því þessi herlög sem sett eru í bandarískri borg jafnast alveg á við það sem gert er á þessum voluðu vígvöllum heimsveldisins.
Fyrirtækjamerki The Craft málaliða og öryggisþjónustunnar. Minnst fimm starfsmenn fyrirtækisins voru að störfum í Boston maraþoninu þar sem sprengjur voru sprengdar til að skaða fólk og greiða leiðina fyrir ofríki stjórnvalda undir yfirskini þess að “vernda” fólk fyrir hryðjuverkum sem þau oftast standa sjálf fyrir.
Jaðarmiðlarnir fremstir, en stóru miðlarnir taka annarlega hagsmuni framyfir og klóra frekar yfir tilvist gæðamynda af öryggisstarfsmönnum með svarta bakpoka á sprengistaðnum.
eftir Paul Joseph Watson Infowars.com 18. apríl, 2013
Myndir sem infowars fréttastofan fékk frá Anonymous af mönnum sem grunaðir eru um Boston sprengitilræðin hafa vakið mikla athygli á internetinu eftir að Drudge Report fréttasíðan birti þær í gær. Lögreglan hefur staðfest að myndirnar séu af þeim sömu og lögrelan hefur grunaða og leitar nú að, en yfirvöld hafa ekki tjáð sig um aðrar myndir sem sýna sennilega starfsmenn einkavædds öryggisfyrirtækis bera stóra svarta bakpoka á sprengistaðnum.
Á myndunum sem ganga milli lögreglumanna sést einn maður bera stóran bláan burðarpoka. Hinn ber svartan bakpoka á fyrstu myndinni frá 10:53, en pokinn sést ekki á annari mynd af honum sem tekin er kl. 12:30, segir í frétt New York Post.
Ljósmyndin er sú sama sem birt var í gær á Infowars.com af tveim mönnum sem virðast af arabískum ættum, annar með hvíta derhúfu og hinn í blárri treyju.
“Þessum myndum er dreift ef ske kynn að hægt sé að auðkenna mennina í hringjunum,” segir í tölvupósti sem blaðið komst yfir.. “Gjörið svo vel að áframsenda til kollega ykkar.”
Þrátt fyrir það er hvergi í tilkynningum lögreglu eða miðstýrðu miðlanna minnst á aðrar myndir sem teknar eru við marklínu Boston maraþonsins en þar sjást einn hvítur maður og annar af arabískt útlítandi í samskonar fötum sem bera stóra bakpoka og blaðrandi í farsíma örstuttu eftir sprengingarnar.
Infowars fréttastofan sagði frá því í gær (17.4) og það var svo staðfest af Anthony Gucciardi, að þessir tveir menn væru líklega starfsmenn Craft International öryggisfyrirtækisins, sem er af svipaðri tegund og Blackwater málaliða og leiguöryggisfyrirtækið alræmda.
Önnur mynd sýnir að því virðist sama hvíta manninn, eða hugsanlega þriðja starfsmaðurinn í svipuðum klæðnaði með svart tæki í hönd eftir sprenginguna.
Hvernig þessir menn bera sig og atferli þeirra á myndunum bendir sterklega til þess að þeir séu þátttakendur í einhvers konar æfingu, sem myndi passa við framburð vitna sem tóku þátt í hlaupinu um að æfing í viðbrögðum við sprengjuhótun hafi verið í gangi og að þátttakendum hafi verið tilkynnt um æfinguna um gjallhorn eða hátalara og sagt að vera rólegir vegna þessa.
Lögreglan hefur neitað því að slík æfing hafi verið í gangi eða að lögreglan hafi fengið upplýsingar um hættu á sprengitilræði í hlaupinu.
Klæðnaður mannanna virðist merktur flotaselunum (Navy Seals sérsveitinni) en það er samskonar hönnun og notuð er af Craft International sem einkennisbúningur starfsmannanna.
Miðstýrðu málpípufjölmiðlarnir virðast ákveðnir í að skella skuldinni af tilræðinu á hvíta hægri-öfgamenn, en strax og ljósmyndir af grunuðum sprengimanni sem lítur út eins og arabi fara á stjá, þá eru sögusagnir af handtöku á grunuðum sprengimanni dregnar til baka og FBI aflýsir fréttamannafundi sem boðaður hafði verið.
Opinbera sagan af Boston blóðbaðinu er nú í algeru uppnámi eftir að þessar ljósmyndir voru birtar á internetinu í gær.
Engin skynsamleg skýring virðist tiltæk á því hvers vegna tveir (eða þrír) starfsmenn einkaöryggis- eða málaliðafyrirtækis væru á staðnum að bera stóra dökka bakpoka sem svipar til þeirra sem notaðir voru í tilræðinu, nema þeir hafi verið þátttakendur í einhverskonar æfingu þar sem sprengitilræði er sett á svið á sama tíma og raunverulegt sprengitilræði á sér stað.
FBI ætti að leggja áherslu á að leita þessa menn uppi og fjölmiðlar ættu að kalla sig hása eftir svörum, en þess í stað láta þeir eins og ekkert sé.
Þar að auki hefur komið í ljós að eftir óvæntan fund milli Barack Obama forseta og prinsins Saud al-Faisal utanríkisráðherra Saudi-Arabíu í gær er verið að vísa Saudi-arabanum Abdul Rahman Ali Alharbi sem var einn af þeim fyrstu sem grunaður var um tilræðið úr landi á grundvelli “þjóðaröryggis”.
“Það er mjög athyglisvert, því þannig er málum einmitt háttað þegar kemur að Sádi-arabíu. Við handtökum aldrei hryðjuverkamenn þeirra,” sagði hryðjuverkafræðingurinn Steve Emerson við Fox News í gærkvöldi. “Við vísum þeim úr landi, því þeir vilja ekki láta gera lítð úr sér, og við spilum með þeim í þessu.”
Ali Stevenson tók þátt í Boston maraþoninu eins og svo mörgum áður. Hann sagðist aldrei hafa séð annan eins viðbúnað yfirvalda í þeim hlaupum sem hann hefur tekið þátt í hingað til. Við ræsilínuna voru sprengjusérfræðingar með sprengjuleitarhunda og uppi á þökum voru vaktmenn sem höfðu gætur á mannhafinu. Þeir tilkynntu um hátalara að um æfingu væri að ræða og báðu fólk að hafa ekki áhyggjur. Svipaður viðbúnaður virðist hafa verið við endamarkið. Stevenson segir yfirvöld hljóta að hafa haft veður af einhvers konar sprengiógn, en lögreglan neitaði í samtali við fréttamenn infowars að slíkar upplýsingar hafi legið fyrir.
Æfingar þar sem hryðjuverk eru “sett á svið” á sama tíma og nákvæmlega samskonar hryðjuverk eiga sér stað eru eitt af einkennum innanbúðarverka, eða “false flag” aðgerða, þar sem fólk er hrætt, meitt og myrt af útsendurum stjórnvalda til að skapa stemmningu fyrir alræðislegum viðbrögðum, svikamylla sem stundum er nefnd “problem – reaction – solution”, vandamál er búið til, beðið eftir viðbrögðum almennings (hvað ætlið þið að gera til að koma í veg fyrir fleiri svona voðaverk?) og þá er “lausnin” kynnt, oft einhver lagabálkur, eins og “föðurlandslöggjöfin” (Patirot Act), eða innrás í land sem hefur ekkert með hryðjuverkið að gera og svo framvegis.
Þó margir eigi erfitt með að trúa því, þá vita allir grúskarar í alvöru sagnfræði, þar sem leitast er við að finna raunverulega atburðarás, en ekki endurtaka söguna sem “sigurvegararnir” vilja skrifa í áróðursblöð sín og bækur, að eftirfarandi er staðreynd:
Stjórnvöld nýta sér krísur. Stundum bara með því að beina óróanum og umræðunni sem skapast í kjölfar hörmunga í farveg sem fleytir þeirra verkefnum áfram, í öðrum tilfellum sjá þeir til þess að hörmungarnar verða að veruleika, með aðgerðaleysi vegna einhvers sem þeir vita að er á leiðinni, eða með því að aðstoða klikkhausa til að framkvæma illa skipulögð og vonlaus hryðjuverk, eða bara skipuleggja og framkvæma frá A-Ö einhverja atburðarás sem endar með hörmungum og hjálpar til við að réttlæta innrásir, árásir, afvopnanir almennings, njósnir eða hvert svo sem verkefni dagsins er hjá þeim.
Því bíða nú jaðarfréttastofur með öndina í hálsinum eftir því að sjá hvernig stjórnvöld ætla sér að nýta þessi nýjustu ódæði sem langsennilegast (þó ekki sé nema tölfræðilega séð) eru á ábyrgð stjórnvalda sjálfra.
Íslensku fréttastofurnar gefa okkur hugmynd. Þeirra fréttaflutningur tyggur “talking point” (áróðurslummu) um að ekki sé vitað hvort gerendur séu útlendingar, eða bara Bandaríkjamenn sjálfir. Það má teljast nokkuð líklegt að þessar hörmungar verði notaðar til að fleyta áfram þeirri herferð sem núverandi stjórnvöld hafa staðið í um skeið, sem er að sannfæra Bandaríkjamenn um það að stjórnvöld þurfi að afvopna landsmenn, taka af þeim byssurnar sem stjórnarskráin tryggir þeim. Hvers vegna tryggir stjórnarskráin þeim byssufrelsi? Það var einfaldlega vegna þess að byssufrelsi var séð sem einn helsti varnaglinn gegn ofríki ríkisins, ógnar og harðstjórn eins og viðgekkst undir breska konungsveldinu. Byssurnar voru því vörn almennings gegn stjórnvöldum, ekki einhver sportveiðiréttur, heldur rétturinn til að vopna sig gegn stjórnvöldum og útsendurum þeirra.
“You never let a serious crisis go to waste. And what I mean by that it’s an opportunity to do things you think you could not do before.” – Rahm Emanuel, former White House Chief Of Staff to Barack Obama
Ýmis kennileiti innanbúðaraðgerða að koma í ljós. Bróðir eins fréttamanns Infowars keppti fyrir hönd herdeildar sinnar. Var fjarlægður úr hlaupinu, skipað að hætta og fara á sjúkahús því hann hafi ofþornað. Fréttir berast af “sprengileitaræfingum” á vegum stjórnvalda á svæðinu. Slíkar “æfingar” fylgja gjarna innanbúðaraðgerðum, því ef eitthvað fer stórlega úrskeiðis, til dæmis sprengimenn stjórnvalda uppgötvast og hætt er við aðgerðina, þá er alltaf hægt að bera því við að þeir væru hluti af æfingunni.