Smiley face

Rapp betra en sögubækur

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólk, Tónlist

Sumar plötur Immortal Technique hip-hopp rabbaranns eru innihaldsmeiri en heilu sögubækurnar sem notaðar eru til kennslu.  Þetta segir þula RT í inngangi að viðtali við kappann, en heimildarmynd um hann verður frumsýnd í júlí á þessu ári.

gareth.icke

Munum hver við erum…

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Tónlist

Hann er söngvari, lagahöfundur, útvarpsmaður, strandboltaleikmaður og rithöfundur frá Englandi.  Hann er sennilega líka sonur Davíðs Icke.  En á sama tíma er hann ekkert af þessu.  Þetta eru hlutverkin hans, persónuleikinn, fronturinn.  Innst inni er hann meðvitund.  Ódauðleg og óendanleg.  Eitthvað guðlegt.

Það sama á við mig og þig.  Ef við slítum okkur frá áróðri stríðsæðingafjölmiðlanna í smá stund, þá tengjumst við aftur raunveruleikanum, við áttum okkur á því að við viljum ekki stunda pyndingar, drepa konur, börn eða jafnvel karlmenn þó þau séu af öðrum þjóðflokki og þúsundir kílómetra í burtu.  Við viljum ekkert hafa með Icesave eða NATÓ, eða leynifangelsi og fangaflug.  Við þekkjum rétt og rangt, án nokkurra sérfræðiálita.  Við viljum ekki sitja og gera ekki neitt, jafnvel þó það geti kostað okkur eitthvað, háðsglósur frá samborgurunum, eða jafnvel eitthvað miklu meira.
 

020911-N-4868G-052

Heimurinn breyttist 11. september 2001

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Hryðjuverk og fölsk flögg, Tónlist

Tónlistarmaðurinn og We Are Change meðlimur í Chicago, Swizzlesteve, hefur gefið út myndband við lagið sitt “Our World Changed”. 

Við vitum að atburðirnir breyttu heimi okkar verulega, en við vitum ekki nákvæmlega hvað gerðist þennan örlagaríka dag.  Við megum ekki við þessari óvissu lengur.

inferno22

Evrusvæðið eins og helvíti

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Efnahagsmál, Tónlist

 

Það er ekki oft sem RÚV spilar tónlist í fréttatímum sínum, en í dag ákváðu meistararnir að spila smá bút úr lagi Eagles, Hotel California, til að reyna að seyða fram einhvern misskilinn poppljóma við ómögulega lélega valkosti.

Hlustendur áttu væntanlega að skilja við þessa frétt RÚV með þá hugmynd að evrusvæðið væri poppað og kúl, en það eru bara þeir heilalausu sem gabbast af slíku.  Því miður eru þó margir með óvirkan heila.

Í stuttu máli fjallar frétt RÚV um það hvernig Grikkland hefur ekki haft neitt skjól af evrunni, heldur hefur hún eyðilagt fjármálakerfi landsins og gert landinu ómögulegt að bjóða erlendum ferðamönnum góð kjör á sumarleyfisferðum á sama tíma og nauðsynjavörur í landinu hafa hækkað upp úr öllu valdi en launin staðnað.

Þrátt fyrir “aðstöð” evrópska seðlabankans sem aðstoðaði grísk stjórnvöld til að skuldsetja grísku skattborgarana enn frekar þó það væri það síðasta sem þeir þyrftu, þá er Grikkland enn á leið í þrot.

Einvherjir vildu þá sparka Grikkjum úr evrusamstarfinu, en það vill grískur almenningur væntanlega líka (þó stjórnvöld vinni gegn þjóð sinni þar, eins og víðar er siður), en þá kom babb í bátinn.

Talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins lagði hinsvegar á það áherslu í morgun að samkvæmt Lissabon-sáttmálanum væri ekki hægt að reka ríki úr myntbandalaginu. Aðild að evrusvæðinu væri óriftanleg eins og Stephane Doe, hagfræðingur hjá UBS-bankanum sagði í vikunni. Hann vísaði þá í lag hljómsveitarinnar Eagles, sagði evrusvæðið eins og „Hotel California“. Menn gætu fengið þar inni, en aldrei komist þaðan burt.

Evrusvæðið er eins og Hótel Californía með Eagles.  Það er ekkert hótel sem er sungið um í þessu lagi.  Það er einhvers konar helvíti sem þeir félagar syngja um, þó sjálfir segi þeir ekki um bókstaflegt helvíti með Satan og félögum. 

Hér fyrir neðan er ágæt heimild um lagið Hótel Kaliforníu þar sem ummæli Eagles manna í gegn um tíðina eru tekin saman.  Þar er einnig skemmtileg túlkun sem hljómar mjög vel, þar sem Hótel Kalifornía er sögð lýsa leit hinna fráskyldu að fyrstu og sönnu ástinni, en það ástand sakleysis og hvolpaástar er ekki framar í boði, eftir að sambandið raknar upp.

Sjálfir segja Eagles menn textann fjalla um skuggahliðar ljúfa lífsins og frægðarinnar, um óhóf í bandarísku þjóðarsálinni.

On November 25, 2007 Henley appeared on the TV news show 60 Minutes, where he was told, “everyone wants to know what this song means.” Henley replied: “I know, it’s so boring. It’s a song about the dark underbelly of the American Dream, and about excess in America which was something we knew about.” 

En hvað það var sem þeir hugsuðu þegar þeir skrifuðu textann við Hótel Kaliforníu, þá er hverjum hugsandi manni ljóst að það sem sungið er um er ekki ástand þar sem fólk vill vera. 

Hver vill til dæmis svona konu?

Her mind is Tiffany-twisted, she got the Mercedes Bends
She got a lot of pretty, pretty boys she calls friends
How they dance in the courtyard, sweet summer sweat.
Some dance to remember, some dance to forget

Hún eltist við dýra draslið, hugur hennar beygist að Bensunum (bends to Mercedes), hún umgengst heilu skaflana af ungum folum sem hún segir “vini sína”.  Gæfulegt.

Eða hver vill vera í svona bandalagi?

Mirrors on the ceiling,
The pink champagne on ice
And she said ‘We are all just prisoners here, of our own device’
And in the master’s chambers,
They gathered for the feast
They stab it with their steely knives,
But they just can’t kill the beast

Alveg sama hve margar undirskriftir eða hve margir mæta á Austurvöll, við getum stungið skrímslið með þúsund stálhnífum, en við getum aldrei drepið þennan skratta.

Þá panikkar karlinn og ætlar á burt:

Last thing I remember, I was
Running for the door
I had to find the passage back
To the place I was before
‘Relax,’ said the night man,
‘We are programmed to receive.
You can check-out any time you like,
But you can never leave!’  

Þú getur gefist upp hvenær sem er, en þú sleppur aldrei frá þessu skrímsli.  Það er sem sé Hótel Kaliforníu ljóðlínan sem RÚV kýs til að poppa upp á hryllilega yfirlýsingu skriffinnanna, sem segja í raun það sama:  Það þýðir ekkert að reyna að fara út úr þessu samstarfi, það þýðir ekkert að reyna að henda öðrum út úr þessu samstarfi, aðild að evrusvæðinu er óriftanleg.

http://money.msn.com/business-news/article.aspx?feed=OBR&date=20110908&id=14238248

http://www.ruv.is/frett/oanaegja-med-grikki

http://www.songfacts.com/detail.php?id=1121

Skrípó