Söngkonan Lauryn Hill stimpluð “samsæriskenningasmiður”
Lauryn Noelle Hill, fædd 1975, er bandarísk listakona sem hefur fengist við söng, tónsmíðar, rapp, leik og hljómplötuútgáfu. Hún var lék í Sister Act 2, var aðalsöngkona Fúgees hópsins, gaf síðar út sólóplötu sem seldist í meira en 8 milljón eintökum og vann 5 grammíverðlaun, en alls hefur hún sópað að sér 8 grammíum.
Hér fyrir neðan má finna söngverkið Doo-Wop (That Thing) frá 1998 sem sýnishorn af verkum hennar.
Í gær var Lauryn dæmd í 3ja mánaða fangelsi og í framhaldi af því, þriggja mánaða stofufangelsi vegna þess að hún kaus að fresta skattgreiðslum. Það gerði hún eftir að fjölskyldunni var hótað og í kjölfarið ákvað hún að láta lítið fyrir sér fara.
Lauryn hefur verið dugleg við að reyna að vara ungt fólk við blóðsugum poppiðnaðarins og segir list og frjálsa tjáningu ekki liðna í bransanum, heldur þurfi listamenn að fara í einu og öllu eftir dutlungum blóðsuganna, sem vilja lágmarka sköpun og innblástur en hámarka viðskiptavæðingu og hvetja ungviðið til heilalausrar neyslu og hjarðhegðunar.
Dómarinn notaði tækifærið fyrst hann var með klærnar í listakonunni til að fyrirskipa meðferð og heilaþvott hjá sálgæsluprestum til að uppræta hugmyndir hennar um illt innræti tónlistariðnaðarins.










