Smiley face
stor.augu.cc.orangeacid

Mest lesnu greinarnar árið 2011

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fiður og kusk

Mynd CC orangeacid

5.

Fimmta mest lesna greinin á Kryppu árið 2011 fjallar um sjálf grýlu, Bin-Laden.

Samkvæmt Kastljósi kvöldsins vill Bin Laden fá íslenskan ríkissborgararétt.  En kappinn hefur uppi miklar hugmyndir um heimsyfirráð og telur legu landsins nýtast sérstaklega vel.  Hópur íslenskra athafnamanna hefur sent Alþingi bréf og óskað eftir ríkisfangi fyrir Bin Laden.  Í bréfinu stendur að Bin Laden vilji  byggja tvær moskur og fjárfesta í vistvænum gagnaverum fái hann ríkisborgararéttinn.

Bin Laden vill ríkisborgararétt


4.

Fjórða sætið vermir grein Björns um Vantrúarvitleysuna.

Þegar kemur að ranghölum netsins má alltaf finna kynlega kvisti.  Einn slíkur heitir Óli Gneisti og telur sér það til tekna að vera Vinstri Grænn og alveg trúlaus.  Hvorugt telst þó vera eftirsóknarvert hjá vinnandi fólki og getur verið beinlínis hættulegt geðheilsu viðkvæmra sálna.

Óli Gneisti hét maður


3.

Þriðja vinsælasta greinin á Kryppu fjallar um Rögnu Erlendsdóttur og Ellu Dís, og lætin í bólumúgnum sem þolir enga neikvæða umræðu um bólusetningar.

Það er ljóst á viðbrögðum múgsins við því að Ragna skuli dirfast að véfengja bólusetningar, að samkennd og samúð eru gleymdar dyggðir á nýja Íslandi.  Þó hún hefði rangt fyrir sér, má hún samt ekki segja sögu sína og útskýra hvers vegna hún telur bólusetningar hafa valdið hrottalegum taugasjúkdóm í barni sínu?

Bólumúgurinn kallar á blóð Ellu Dísar


2.

Í öðru sæti er frétt um spjallsíðu sem allir virðast hata

Internetið er þyrnir í augum þeirra sem telja sig eiga að hafa vit fyrir öðrum.  Þeir sem vilja ritskoða, leiðrétta, tína illgresið af internetinu eru drukknir af réttlætiskend og dæma aðra hart.

Ritskoða spjall en klámið fær frið


1.

Vinsælasta kryppugreinin árið 2011 fjallar um ritskoðunartilburði stjórnvalda á Internetinu:

“Þetta er fyrst og fremst gert… fyrir almenning,” segir Haraldur A. Bjarnason, smáforingi í fjármálaráðuneytinu.  Hann blikkar ekkert rosalega mikið eða sýnir önnur augljós lygamerki meðan hann segir þetta, heldur pumpar orðin út úr munni sínum með umfangsmiklu handapati.  “Til þess að auðvalda þeim … lífið, gera það einfaldara, auðveldara, og öruggara, þægilegra, og spara þeim sporin.”

“Vegabréf á internetið” – hvers vegna?

sadistic.smile1

Glaðlegt einelti með bros á vör

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fiður og kusk, Ísland

Öfgahópurinn ‘Vantrú’ lýsti ‘heilögu stríði’ á hendur stundakennara við Háskóla Íslands og söfnuðurinn, sem hlýtur að teljast þrýstihópur á íslenskann mælikvarða, með sína 200 skráðu meðlimi og tugi háværra jámanna fylgdi fordæmi foringja sinna og notaði öll tækifæri til að ‘dóminera’ umræðu um aumingja stundakennarann, auk þess að svo virðist sem þeir sjálfir telji sig hafa kúgað siðanefnd Háskólans til að ganga erinda sinna gegn manninum.

Þetta kemur fram í óvenju bitastæðri grein eftir Börk Gunnarsson í stórstraumsmiðlinum ‘mbl.is’.  Börkur segir frá upphafi hins heilaga stríðs, eftir að meðlimur safnaðarins sem var við nám í Háskólanum í annari deild tekur kúrs hjá Bjarna Randveri Sigurvinssyni, hvattur til þess af Óla Gneista Sóleyjarsyni, sem er einn af leiðtogum Vantrúarsafnaðarins.

Í einhverskonar netspjalli gefur nemandinn Óla Gneista stutta og ónákvæma lýsingu á því hvað sé kennt og tekur á endanum glærur sem notaðar eru í námskeiðinu og kemur þeim til Óla Gneista.

Reynir Harðarson sálfræðingur sem er þá tekinn við formennsku í félaginu skrifar á innri vef félagsins hinn 12. febrúar 2010: „Kæru félagar. Klukkan 15.00 í dag lýstum við yfir heilögu stríði á hendur Bjarna Randveri og guðfræði í Háskóla Íslands.“

Í framhaldinu leggur söfnuðurinn fram kæru til siðanefndar HÍ sem byggð var á getgátum um að Bjarni hafi fjallað um heilaga Vantrú “með móðgandi hætti” í fyrirlestrum sínum.  Siðanefnd HÍ virðist svo telja það eðlilegt að allt námsefni í Háskólanum skuli hreinsað af móðgandi umfjöllun um Vantrú og þá væntanlega líka Vísindakirkjuna, Múslima, Sjálfstæðisflokkinn og ASÍ.  Pólitískt rétt og pólitískt hreint, tær sannleikur án þess að móðga eina einustu sál í heiminum.  Afsakið notkun á gildishlöðnu orði (sál) – en við erum ekki pólitískt geldir hér á Kryppunni .

Vantrú virðist hinsvegar ekki telja sína starfsemi bundna af heiðursreglum pólitískrar rétthugsunar, þeir láta svívirðingarnar rigna yfir ”óvini” sína, hvort sem það er Kryppan, kristnir eða bara einhverjir aðrir sem voga sér að ógna kreddum safnaðarins. 

Siðanefndin virðist svo skipuð Vantrúarmönnum, eða einhverjum af þessum tugum aðdáenda safnaðarins, sem ekki greiða félagsgjöld en eru eins yxna unglingsstelpur utan í heitasta strákabandinu í plássinu, því hún tekur strax kúrsinn á að eyðileggja starfsferil Bjarna Randvers í akademíunni.  Nefndin samþykkir samstundis að hafa samband við Vantrúarsöfnuðinn, en ekki hinn kærða, sem veit ekkert af málinu meðan það gerjast vikum saman.

Þórður Harðarson [formaður siðanefndar] býður formanni Vantrúar, Reyni Harðarsyni, til fundar við sig á heimili sínu hinn 7. apríl 2010. Á innri vefnum greinir Reynir félögum sínum í Vantrú nákvæmlega frá klukkutíma löngum fundi sínum með Þórði og segir að hann hafi sagt sér að líkleg niðurstaða nefndarinnar verði að Bjarni hafi gerst brotlegur að því er fram kemur á innri vef Vantrúar. En þarna var ekki enn búið að hafa samband við Bjarna og ekki enn búið að afla gagna í málinu þótt rannsóknarskylda siðanefndarinnar sé rík. 

Siðanefndin sætir á síðari hluta málsins nokkurrar gagnrýni fyrir ófagleg vinnubrögð og þá segir formaður af sér, en hinir tveir meðlimir nefndarinnar sitja áfram og fá nú fleiri til liðs við sig.  Nýja nefndin virðist enn áköf í að komast að upphaflegri og að því virðist, fyrirframgefinni niðurstöðu.

Um haustið 2010 fær Bjarni óvænt í hendur útprentun af samræðum félagsmanna á innri vef Vantrúar þar sem það fæst staðfest að ekki aðeins hefur verið um skipulagða herferð af hálfu Vantrúar að ræða heldur einnig að fulltrúar siðanefndarinnar og fólk í stjórnsýslu háskólans hafa verið í nánum samskiptum við félagsmenn Vantrúar um að koma höggi á hann.

Á reykfylltum neðanjarðarvef Vantrúar eru safnaðargestir hlakkandi og telja sig hafa eitthvað hreðjatak á siðanefndinni:

Á innri vef Vantrúar skrifar Reynir Harðarson hinn 18. maí 2010: „Ef ný siðanefnd verður skipuð má segja að hún verði að komast að því að siðareglur hafi verið brotnar því annars er hún óbeint að dæma fyrri siðanefnd fyrir óheilindi og þóknast kvörturum innan HÍ. Við höfum því þumalskrúfurnar á henni …líka.“

Heilagt einelti – með bros á vör

Grein Barkar sýnir vel hvernig söfnuðurinn stóð þétt saman í að skipuleggja herferð gegn starfsheiðri stundakennaranns, og hvernig einnig var gefinn út aukaveiðiheimild á Stefán Einar Stefánsson viðskiptasiðfræðing, en hann virðist hafa legið vel við höggi.

Reynir skrifar strax: „Go for it. Megum ekki skilja svona plebba útundan í einelti okkar.“

En þegar umræðan úr byrgi Vantrúar lekur út með rafrænum hætti, þá hafnar Vantrú því “alfarið” að um einelti af þeirra hálfu sé að ræða. 

Reynir Harðarson segir í bréfi til Siðanefndar HÍ 4. janúar 2011: „Ég hafna því alfarið að um einelti af okkar hálfu sé að ræða, hvað þá heilagt stríð… Þetta er hreinn þvættingur og meiðyrði.“

Slíka staðhæfingu þarf að setja í samhengi, kannski meinar hann þegar hann segir “einelti af okkar hálfu” að “okkar” sé kaffikannan sín sem hann kallar “okkar”, eða einhver álíka útúrsnúningur.  Það er raunar sama vörn og Matthías Ásgeirsson, annar æðstistrumpur úr miðstjórninni, notar til að afsaka óviðeigandi ummæli sín um annan söfnuð (presta þjóðkirkjunnar), sem hann kallar barnaníðinga.

…segir hann að í fyrsta lagi þurfi að skilja á milli þess hvenær menn eru sagðir kynferðislegir barnaníðingar og barnaníðingar hugans.

Svo fylgir fljótlega önnur réttlæting af svipuðum toga:

Aðspurður hvað honum finnist um það að samtökin hafi lýst yfir heilögu stríði gegn stundakennara í háskólanum, svarar hann strax: „Þú gerir þér grein fyrir því að tal um „heilagt stríð“ var djók – er það ekki? Það var hlæjandi broskarl og allt með athugasemdinni. Á að nota það gegn fólki að það slái á létta strengi í einkasamræðum?“

Í grunnskólum læra flestir eineltislistina.  Það byrjar venjulega á því að einhver “öðruvísi” er sigtaður út og svo byrja strákarnir að grínast, og stelpurnar að baktala á reykfylltum skólagöngum.  Mikilvægt er að einangra fórnarlambið, því það er miklu skemmtilegra, broslegra, heldur en stríðsátök milli fylkinga.  Krakkarnir hafa gaman af þessu, allavega langflest í innsta hring, önnur þora ekki að taka afstöðu, vilja ekki “verða öðruvísi”, gefa færi á sér sem ný skotmörk.  Það er helst fórnarlambið sem er eitthvað að væla og með skeifu á vör.  Á netinu nota krakkarnir áreiðanlega marga broskalla í kring um kvikyndislegar athugasemdir um fórnarlömbin á mis-opnum spjallrásum og bloggsíðum.

Er það í lagi, bara ef það er skemmtilegt og hlaðið brosköllum?

Nei, einelti er ekki fallegt, ekki heldur hjá fullorðnu fólki.  Vantrú er orðljótur og að því virðist frekar illa innrættur söfnuður sem ætti að sýna fólki með aðrar skoðanir meira umburðarlyndi. 

 

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/12/04/heilagt_strid_vantruar/

http://www.visir.is/banntruarmenn/article/2011712059985

tannkrem colgate

Kæri Matti Tannálfur

Höfundur bjorn þann . Flokkur Fiður og kusk, Klórað í yfirborðið

Takk fyrir að lesa ekki síðuna okkar og ekki vera með okkur á heilanum.  Það er líka voða sætt að blokka kryppuna svo þú stelist ekki óvart til að lesa hana í vinnunni, ha ha.  Guð forði þér frá slíkum hremmingum!!  Ertu alveg örugglega ekki með okkur á heilanum?

Nei, ég sé að Þórður vinur þinn fattar þetta.  Þú ert með þúsund samsæriskenningarugludalla á heilanum ekki bara Kryppuna.

“Semsagt þessir þöngulhausar héldu að þú værir að tala einungis um þá en ekki almennt um þá þúsundi sem tilheyra 11. september-samsærisliðinu.”

Besti brandari dagsins er síðan þessi hérna:

“Ég er saklaus af því að senda þeim tölvupósta og hef aldrei, hvorki hér né annars staðar, hótað þeim lögsóknum eða barsmíðum. Veit ekki til þess að nokkur hafi gert eitthvað slíkt.”

Auðvitað er þetta bara fyndið og alveg sérstaklega komandi frá einhverjum sem segist ekki hafa lesið færsluna þar sem þessar meintu ásakanir koma fram.  Það bara stendur ekki neitt um að sjálfur Tannálfurinn hafi skrifað þessa tölvupósta.

Hvaða máli skiptir það síðan hvort þú veist til þess hvort einhver hafi gert það.  Er það einhver algildur mælikvarði á erfðasyndina?

630.alex.police.state4

Alex Jóns á leið í Frelsislundinn

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fiður og kusk

Hann laumaðist inn árið 2000, sendi menn í eftirfylgni árið 2005, aðstoðaði stórstraumsmiðil í fyrra og nú virðist hann vera mættur aftur á upphafsdegi sumarbúðanna í Frelsislundi, þar sem um 2.000 mektarmenni úr bandarísku þjóðfélagi ásamt völdum gestum frá öðrum löndum sprella saman í áfengis og dulspekivímu um rúmlega tveggja vikna skeið, meðan þeir leggja á ráðin gegn almenningi.

Greiningardeild Kryppunnar hefur komist að þeirri niðurstöðu að Alex Jóns sé á leið í Frelsislundinn, eftir að hafa skoðað vísbendingar í nýju myndbandi á Youtube rás útvarpsmannsins.  Það nefnist “lending í helvíti” og er tekið á litla videomyndavél út um flugvélarglugga, og kappinn les inn athugasemdir um mengunina sem hangir yfir Los Angeles um leið og vélin flýgur aðflug að alþjóðaflugvellinum LAX.

Mun hann reyna að smygla sér aftur inn?  Ósennilegt, þar sem hann er orðin það þekktur í Bandaríkjunum, að stór hluti lögreglu, TSA öryggisvarða og svo bara almennings þekkir hann í sjón.  En hann mun áreiðanlega verða með eitthvað innskot í útvarpsþætti sínum í dag, sem hefst klukkan 4 að íslenskum tíma. 

Það verður spennandi að sjá hvað Alex grefur upp í þetta sinn!

 

kim

Justin Bieber vs Kim Jong il

Höfundur bjorn þann . Flokkur Fiður og kusk, Fólk, Tónlist

Það rann upp fyrir mér að heimurinn er galinn.  Justin Bieber æðið sem tröllríður smástelpum um þessar mundir er náskylt frægðarsól Kim Jong il, leiðtoga Norður Kóreu.  Báðir sækjast þeir í ungar táningsstelpur og eru liðtækir tónlistarmenn.  Justin Bieber hefur þó eitt með sér sem Kim hefur ekki.  Hann er töluvert yngri og gæti þess vegna átt eftir að verða frægari.  Sem ástsæll leiðtogi heillrar sveltandi þjóðar og titlaður höfundur af nánast öllum læsum bókum í Norður Kóreu er eilífð frægð Kims þó alveg örugglega tryggð.

Kim hefur því í dag vinninginn.  Hvað varðar hæfileika þá má segja að reynsluleysi herra Bieber hái honum örlítið í þessari samkeppni.  Eftir vinsæl Youtube skot þar sem Bieber sönglaði einhverja gamla prumppopp slagara gaf hann út sína fyrstu kvikmynd.  Til að spara framleiðslukostnað lék hann sjálfur öll aðalhlutverkin.  Myndin gekk vel og sló víst einhver met og var líka í 3D og allt.

Þessu var Kim búinn að svara fyrir nokkrum árum þegar hann rændi frægasta leikstjóra Suður Kóreu.  En Suður Kórea er landið við hliðana á Norður Kóreu.  Eitthvað svelgdist leikstjóranum á þegar hann vaknaði einn vondan morgundag i bólinu hjá Kim með atvinnutilboð saumað fast á vinstri rasskinnina.  Í kjölfarið fylgdu margar vondar áróðursmyndir sem flest fólk hefur aldrei séð.

Hvað varðar stíl og útlit þá hefur Justin Bieber vinninginn.  Með sínu barnalega brosi og hárgreiðslu sem allar smástelpur elska samkvæmt Wikipedia.  Má segja að Bieber hafi það sem þarf til.  Það má samt ekki afskrifa Kim alveg.  Líkt og með nýmóðins hárgreiðslu Biebers sem margir strákar skarta og lessusamfélagið hefur fallið fyrir.   Þá er hárgreiðsla Kims einnig vinsæl meðal trukkalessa og á vissum svæðum í Norður Dakóta.

Máltækið segir að fötin skapi manninn og ef það er rétt þá hefur Kim vinninginn í þeirri deild.  Hans föt eru nefnilega alveg einstök og allir þekkja.    Justin Bieber þarf að hafa aðeins meira fyrir hlutunum.  Margir aðrir klæða sig svipað eða jafnvel alveg eins og hann.  Til að standa út úr hópnum og öðlast heimsfrægð gera fötin lítið fyrir Bieber.  Hann gæti þó markaðssett sína eigin fatalínu í fleiri löndum en Kim.  Sem er mjög takmarkaður við grímubúninga og Norður Dakóta.

“Það gæti ekki verið betra þegar ég stari í augun þín..”, syngur Bieber meðan brjóstgóðar smástelpur horfa lostafullum augum á litla vininn.  Frægustu lög Biebers endurtaka þetta sama þema aftur og aftur.  Eitt frægasta lag Kim Jong il sem uppnefnist á íslensku “Ekkert móðurland án þín” og er eftir Kim sjálfan.  Toppar sennilega flest sem Bieber hefur látið frá sér fara hingað til.

Ljóðlínur eins og “Landið getur ekki lifað af án þín.”  og “Framtíð okkur og von veltur á þér.” eru gott dæmi um snilli Kim Jong il.  Meðan Bieber syngur um eina stelpu og hvers vegna hann getur ekki lifað af án hennar semur Kim lög um heila þjóð.  Heila þjóð sem ekki getur lifað af án hans.  Toppaðu það herra Bieber.

Auðvitað er Bieber bara tíu ára eða eitthvað og þarf að temja sér hógværð eftir því.  Það er sennilega fullmikið að semja texta um sjálfan sig og heila þjóð sem getur ekki lifað af án manns, rétt hættur á pela.  En hvað um það hér koma tvö gullkorn eftir þessa miklu snillinga í boði Jútúp.

Bryndreki Óbama, The Beast, mynd CC Randalfino

Bryndreki Óbama strandar á hraðahindrun

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fiður og kusk

Bryndreki Óbama, The Beast, mynd CC Randalfino

Óbama er í heimsókn á Írlandi en bryndreki hans strandaði á hraðahindrun við bandaríska sendiráðið í Dyflinni.

Fyrstu bílarnir í lestinni óku óhindrað út úr bílageymslu svæðisins og út um hliðið án vandræða, en bryndreki Óbama, sem nefnist “Dýrið”, sat fastur eins og hvalur í fjöru.

“Dýrið var á útleið þegar skyndilega heyrist hávær skellur og skrap þegar málmur skrapaðist í málm, og þar með var bíllinn fastur,” segir fréttamaður.

Hjálparstarfsmenn dreif að úr öllum áttum, og Óbama og frú  biðu inni í öryggi Dýrsins, en eftir nokkra stund voru þau ferjuð í aðra bifreið og þaðan ekið í þyrluna “Sjávarvald eitt” sem tók þau hjónin í heimsókn til forföður friðarhöfðingjans, sem var skósmiður í írsku smáþorpi um 1850 áður en hann flutti til Bandaríkjanna í leit að betra lífi.

Dýrið er hannað til að standast allskyns árásir, en hraðahindrun sigraði það í gömlu hryðjuverkaborginni Dyflinni. 

Ætli það hafi verið þreifað á Obama hjónunum af öryggisvörðum áður en þau fengu að fara í næsta bíl?

Obama’s ‘Beast’ vehicle sticks on a ramp in Ireland

Skrípó