Smiley face

Okrað á bændum

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Erlendar fréttir

Monsanto hefur náð góðu einokunar- kverkataki á bandarískum bændum sem rækta þær tegundir jurta sem hefur verið erfðabreytt, sérstaklega þeim fjórum hafa náð mestri útbreiðslu, það eru soja, maís, bómull og kanóla.

Í síðustu viku féll dómur í hæstarétti sem talinn er enn eitt dæmið um hversu vilhallir dómstólar í Bandaríkjunum eru stóru erfðabreytingarisunum þegar þeir deila við bændur (eða aðra).  Málið, Bowman gegn Monsanto, snérist um að bóndinn hafi sáð erfðabreyttum fræjum sem hann keypti ekki af Monsanto.

Margir þekkja þann einokunarsamning sem bændur verða að undirrita þegar þeir sá erfðabreyttu ‘hugverki’ Monsanto, þar sem þeir lofa að safna ekki fræjum, og nota aldrei aftur neitt annað en erfðabreyttu fræin.  Sumir vita einnig að bændur sem vilja bara nota hefðbundin fræ sem ekki koma með slíkum hlekkjum, heldur hafa verið eign allra sem vilja í þúsundir ára, þeir bændur eru ofsóttir af útsendurum Monsanto, sem taka sýni á ökrum þeirra til að sjá hvort erfðabreytt fræ hafi fokið inn á akra, jafnvel fokið af bílum gerðum út af Monsanto sem aka um með erfðabreytt fræ á opnum palli til að tryggja þessa mengun, og svo er bóndinn sem vildi nota hefðbundnu fræin dregin fyrir dóm fyrir brot á ‘hugverkalögum’ og honum gert að greiða sekt og undirrita þrælasáttmálann, þar sem hann lofar að planta ekki öðru en erfðabreyttu.

En Bowman málið er eitt dæmi enn um það hvernig Monsanto kúgar og okrar á bændum.  Bowman hafði undirritað þrælasáttmálann og kaupir Monsanto sojafræ á tvöföldu verði til að sá að vori.  En eftir sumaruppskeru vildi hann reyna að ná annari uppskeru en fannst það of áhætusamt til að kaupa fræin á tvöföldu okurverði.  Hann keypti því fræ sem ætluð voru sem dýrafóður.  Þessi fræ eru nánast öll erfðabreytt Monsantofræ, því yfir 90% af allri sojauppskeru í Bandaríkjunum er af erfðabreyttu ‘hugverki’ og því má segja að hann hafi ekki brotið þrælasáttmálann um að nota aðeins Monsanto fræ.  En hann keypti þau bara ekki frá einokunarkaupmönnum Monsanto, og fyrir það var hann dæmdur.

 

Bowman v. Monsanto: The Price We All Pay for Roundup Ready Seeds

Watergate Óbama, mun hann segja af sér?

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Erlendar fréttir

Þetta er af hamfarastærðargráðu, segir Alex Jóns í inngangi sínum að viðtali við Wayne Madsen, fyrrum öryggisforingja hjá NSA og núverandi fréttamanni á sínum eigin pólitíska fréttamiðli Wayne Madsen Report, sem útlistaði Benghazi málið strax á fyrstu vikunni nákvæmlega eins og það er nú að koma í ljós þegar vitni stíga fram og hætta eigin starfsframa og hugsanlega fleiru við að segja sannleikann fyrir rannsóknarnefnd þingsins.

Eða er þetta kannski tilraun til að dóminera almenning á sama hátt og melludólgur gerir við tíkurnar sínar, að beygja okkur undir sig með svívirðilegum yfirgangi og frekju?  Mun Óbama kannski næst fara að taka börn af lífi á lóð Hvíta hússins með rakhnífi?  Mun hann fá friðarverðlaun fyrir hvert barn sem hann drepur með hamarshöggi á höfuðið?  Hversu fáránlegt mun þetta verða áður en honum verður gert að víkja?

Wayne svarar og segir þetta snúast um 400 kílóa górilluna í kaffiboðinu sem enginn þykist sjá.  Það er að segja, þetta snýst um stuðning bandarískra stjórnvalda við al-Quaeda þegar Gaddafi var bolað frá með hjálp hryðjuverkamanna og með stuðningi við þá.

Benghazi fréttabomban

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Erlendar fréttir

Nú stendur yfir rannsókn þingnefndar á atburðunum í Benghazi þann 11. september 2012 og er þar heldur betur að draga til tíðinda.

Sagan er flókin og margþætt, en til að stikla á stóru má nefna að ljóst er orðið að Súsan Rice sendifrú fór í bandarísku fjölmiðlana með bullsögu um að árásin á sendiráðið hafi verið vegna mótmæla (friðsamra auðvitað) sem fóru úr böndunum og því hafi verið um ákveðna diplómatíska krísu að ræða sem ekki var hægt að afgreiða með inngripi sérsveita.  Raunin var sú að árásin var hreinræktuð hryðjuverkaárás á vegum al-Quaeda.  Hillary Clinton afsakar bullsögu Rice og samvinnu áróðurfjölmiðlanna sem um langa hríð reyndu að blekkja þjóðina með því að utanríkisráðuneytið hafi ekki vitað þetta, ekki viljað grípa inn í rannsókn FBI og hafi því ekki getað talað við fólk sem var á staðnum og fengið rétta mynd af atburðunum.

 

The top official in Libya after Amb. Chris Stevens died in the attack, Hicks said he was never consulted about the administration’s talking points that puppeteered Rice’s remarks: “I was personally known to one of Rice’s staff members,” he said. “Even on Sunday morning, I could have been called, and, you know, the phone call could have been, ‘Hey, Greg, Amb. Rice is going to say blah, blah, blah,’ and I could have said, ‘No, that’s not the right thing.’ That phone call was never made.”

Svo virðist einnig sem stjórnvöld hafi fylgst vandlega með árásinni á sendiráðið.  Tveir Predator drónar sveimuðu yfir, radarnjósnavél var í 200 km fjarlægð og hægur vandi að senda inn sérsveitina til að hjálpa til við varnir sendiráðsins.  Samt var ekkert gert í átta klukkustundir nema fylgjast með og sjá hvað gerðist.

Þessi saga hefur verið að þróast núna á síðustu dögum, en íslensku miðlarnir virðast ekki hafa fengið veður af þessu máli, sem þó gæti haft verulega afleiðingar í stjórnkerfi Bandaríkjanna.  Hillary gæti þurft að segja af sér og fleiri stórlaxar gætu þurft að axla ábyrgð.  Petraeus njósnaforingi er sagður hafa hætt og borið við hjákonunni (sem allir vissu af) vegna þess að hann vildi ekki taka þátt í að hylma yfir.

Alex Jóns fer yfir málið í þessu athyglisverða fréttaskoti frá því í gær.  Þar minnist hann meðal annars á tíuþúsund flugskeyti sem Bandaríkjastjórn mun hafa látið vígamenn al-Quaeda í Líbíu hafa, en hann vill meina að þau verði notuð á næstunni til að skjóta niður vestrænar flugvélar í Evrópu.

Ísrael ræðst á Sýrland

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Erlendar fréttir, Stríð

Ísraelar réðust á svæði í útjaðri Damaskus í gærmorgun og laugardag.  Meðal skotmarka voru vopnageymslur og kjúklingabú sem framleiðir mat fyrir herinn.  Kjúklingabúið er á almennu, borgaralegu svæði og þar varð tjón á bensínstöð, steypustöð og sorpflokkunarstöð, svo eitthvað sé nefnt.

Árásin var af fyrra bragði og til aðstoðar við hryðjuverkamenn al-Quaeda sem vilja steypa landinu í upplausn og koma á öfgastjórn múslímabræðra eða álíka hópa.  Hæpið er að sýrlensk stjórnvöld geti svarað í sömu mynt, því slíkt væri hægt að nota til að réttlæta innrás herafla heimsveldisins sem situr um landið.

Unprovoked Attack on Syria: US-backed Israel Commits Egregious International Crime

Israel Helps Its Al-Qaeda Ally With Attack on Syria

Israeli Air Strike Targeted Chicken Farm, Civilian Infrastructure

 

Syria Declares Israel Attack An “Act Of War’, While Israeli Defense Forces Close
Northern Airspace

 

Gasþrútnar maígöngur í sæluríki ESB

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Erlendar fréttir

Spánn: Þúsundir þramma á strætum Madríd með skilti gegn niðurskurði. Það hefur aldrei verið ríkari ástæða þann fyrsta maí til kröfugangna, segir Candido Mendez, foringi UGT verkalýðsfélagsins á útifundi. Atvinnuleysi er komið í 27% og efnahagslífið hefur dregist saman í sjö samfellda ársfjórðunga.

Tyrkland: Táragas og brunaslöngur voru notaðar af óeirðalögreglu í tyrknesku borginni Istanbúl til að dreifa kröfugöngufólki sem vildi komast á Austurvöll borgarinnar.  Minnst 12 meiddust samkvæmt fréttum AFP, þar á meðal ljósmyndari stofunnar.  Lögreglan handtekur verkalýðinn.

Grikkland: Ferjur og lestar ganga ekki í Grikklandi í dag vegna verkfalls í tilefni 1. maí.  Hundruðir Grikkja eru að safnast saman í göngur þar sem mótmælt er hæsta atvinnuleysi í ESB auk harkalegs niðurskurðs.

May Day rallies and strikes: LIVE UPDATES

Skrípó