Okrað á bændum
Monsanto hefur náð góðu einokunar- kverkataki á bandarískum bændum sem rækta þær tegundir jurta sem hefur verið erfðabreytt, sérstaklega þeim fjórum hafa náð mestri útbreiðslu, það eru soja, maís, bómull og kanóla.
Í síðustu viku féll dómur í hæstarétti sem talinn er enn eitt dæmið um hversu vilhallir dómstólar í Bandaríkjunum eru stóru erfðabreytingarisunum þegar þeir deila við bændur (eða aðra). Málið, Bowman gegn Monsanto, snérist um að bóndinn hafi sáð erfðabreyttum fræjum sem hann keypti ekki af Monsanto.
Margir þekkja þann einokunarsamning sem bændur verða að undirrita þegar þeir sá erfðabreyttu ‘hugverki’ Monsanto, þar sem þeir lofa að safna ekki fræjum, og nota aldrei aftur neitt annað en erfðabreyttu fræin. Sumir vita einnig að bændur sem vilja bara nota hefðbundin fræ sem ekki koma með slíkum hlekkjum, heldur hafa verið eign allra sem vilja í þúsundir ára, þeir bændur eru ofsóttir af útsendurum Monsanto, sem taka sýni á ökrum þeirra til að sjá hvort erfðabreytt fræ hafi fokið inn á akra, jafnvel fokið af bílum gerðum út af Monsanto sem aka um með erfðabreytt fræ á opnum palli til að tryggja þessa mengun, og svo er bóndinn sem vildi nota hefðbundnu fræin dregin fyrir dóm fyrir brot á ‘hugverkalögum’ og honum gert að greiða sekt og undirrita þrælasáttmálann, þar sem hann lofar að planta ekki öðru en erfðabreyttu.
En Bowman málið er eitt dæmi enn um það hvernig Monsanto kúgar og okrar á bændum. Bowman hafði undirritað þrælasáttmálann og kaupir Monsanto sojafræ á tvöföldu verði til að sá að vori. En eftir sumaruppskeru vildi hann reyna að ná annari uppskeru en fannst það of áhætusamt til að kaupa fræin á tvöföldu okurverði. Hann keypti því fræ sem ætluð voru sem dýrafóður. Þessi fræ eru nánast öll erfðabreytt Monsantofræ, því yfir 90% af allri sojauppskeru í Bandaríkjunum er af erfðabreyttu ‘hugverki’ og því má segja að hann hafi ekki brotið þrælasáttmálann um að nota aðeins Monsanto fræ. En hann keypti þau bara ekki frá einokunarkaupmönnum Monsanto, og fyrir það var hann dæmdur.
Bowman v. Monsanto: The Price We All Pay for Roundup Ready Seeds








