
Nýr furðufréttavefur btb.is hefur hafið göngu sína á netinu. Ritstjórinn er enginn annar en Björgólfur Thor Björgólfsson. Þessi þarna sem bar enga ábyrgð á því sem fram fór í fyrirtækjunum hans. Hann bara átti þau.
Eftir lesturinn væri kannski nær að kalla þetta grínvef án allrar alvöru. Því ekki sparar Björgólfur sjálfshólið eða hroka gagnvart íslensku þjóðinni. Öllu eru snúið á haus eða upp í grín. T.d. segir ritstjórinn að hann sé ekki í sama hópi og gauranir sem bjuggu til endalausa loftkastala. Hann hafi komið með beinharða peninga inn í íslenska hagkerfið.
Hvernig væri nú að þessi nýi ritstjóri og pabbi hans kláraðu að borga skuldir sínar. Væri það ekki lágmarkið áður en hann montar sig af öllum afskriftunum sem hann fær en almenningur ekki!

Comments
Powered by Facebook Comments