Breytti NIST myndefni til að fela?

Samtökin International Center for 9/11 Studies hafa þvingað NIST til að gera opinber meira en 3 terabæti af ljósmyndum og kvikmyndaefni úr rannsókn þeirra vegna hrunsins á turnunum þremur í New York.

Svo virðist sem NIST hafi klippt fjölmörg myndbönd af hruni byggingar 7 til að fela gögn sem benda til verkfræðilegs niðurrifs.

Samtökin eru farin að birta sum þessara myndbanda og mynda á netinu, af hörðum diski sem merktur er “NIST WTC Investigation Cumulus Video Clips”.

Hér er fyrst myndband sem hefur verið opinbert árum saman.  Í því er hægt er að heyra háværar lágtíðinidrunur rétt áður en þakhýsið á austurhluta (vinstri á myndinni) byggingar 7 fellur, áður en byggingin sjálf fellur svo inn á sig.

En í þeim myndböndum sem NIST hefur nú gerð opinber, sem eru tekin nær og ættu því að sýna enn betur þessi furðuteikn, þar vill svo til að þessi hluti hrunsins er klipptur á klaufalegan og augljósan hátt í burtu.

“Mörg myndskeiðana úr Cumulus gagnagrunninum eru augljóslega klippt.  Í eftirfarandi tveimur myndskeiðum hér að neðan er hrun þakhýsis World Trade Center byggingar 7 klippt út úr myndskeiðinu.  Það vill svo til að þessi myndskeið eru tekin nálægt WTC7 og skarta hágæða hljóðrás sem hefði skjalað vel þau hljóð þegar burðarvirki byggingarinnar var sprengt, sérstaklega sprengingarnar í fyrra myndbandi,” segja samtökin.

Í enn einu myndbandi vantar hljóðrásina af öllu hruninu, en það kemur svo aftur eftir að byggingin er að fullu hruninn.

http://www.ic911studies.org/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: