Ný gögn hafa komið í ljós sem sýna að Breska herleyniþjónustan rak leynilega deild í Írak þar sem fangar voru niðurlægðir og pyndaðir. Skjöl sýna að hettur voru settar á fanga langtímum saman í miklum hita og þeim varnað svefni af upplýsingafulltrúum varnarliðsins. Þessir fulltrúar sögðust aðeins svara skipunum frá London.
Þetta bætist ofan á skömm bresku stjórnarinnar sem í síðasta mánuði neyddist til að birta skjöl sem sanna að þau vissu um pyndingar á grunuðum hryðjuverkamanni en breskum ríkisborgara, Binyam Mohammed, í Pakistan.
British military intelligence ‘ran renegade torture unit in Iraq’

Comments
Powered by Facebook Comments