Innræting kelinna smápía

Mamma, ég vil verða kynlífskettlingur þegar ég verð stór!

Angie er bara 16 ára þegar hún klippir þetta myndband.  En hún er meira með á nótunum, heldur en margar fullorðnar konur, sem gefa dætrum sínum andlegt rusl og stuðla að innrætingu huga þeirra án þess að hafa hugmynd um það.

Hún segir í kynningu með myndbandinu:

Þetta myndband tekur á MK Ultra heilaþvætti fjölmiðla og kynlífsvæðingu barna.  Ég er enn hálfgerður krakki, bara 16 ára :)

Hvað um það, hér eru nokkur atriði sem ég hef tekið eftir í bratz auglýsingum, auglýsingum fyrir allskyns nammi sem þarf að sjúga, sérstaklega með push-pop sleikjó, sem eru talsvert typpalegir í laginu.

Takið eftir hvernig bratz auglýsingarnar sýna alltaf eldri stúlkur, sem virðast 15+ ára að leika með dúkkurnar, þó þær séu ætlaðar fyrir 5-12 ára stelpur.

Skoðið hvaða persónu btraz dúkkan var byggð á og uppruna hennar…

Ég er algerlega á því að um sambland heilaþvottar fjölmiðla og uppeldi sem leiði til þessa ýktu kynferðisvæðingar, foreldrar gefa eftir þegar börnin biðja um vörurnar og sumir foreldrar ýta þessu dóti að börnunum, strengjanærbuxum og fyllibjrósthöldum fyrir börn allt niður í 6 til 7 ára, með öðrum orðum:

ÞROSKA ÞRENGT UPP Á ÞAU!

Kynlíf og ofbeldi eru meðal helstu áhrifavalda á tilfinningar okkar, því þær eru almennt séð, innbygðar eðlishvatir.

Þeir geta því notað kynlíf og ofbeldi með blöndu af bendingum (triggers) og táknum sem geta sannfært undirmeðvitund okkar, eða jafnvel meðvitund, um að gera ákveðna hluti, eða kaupa ákveðnar vörur.

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments