
BP á í brasi með amatör fréttamenn sem láta ekki að stjórn eins og stórstraumsfjölmiðlarnir og rannsaka efni og gagnrýna BP, þrátt fyrir að þeir séu ekki með pressu passa og séu því ekki ‘alvöru’ fréttamenn.
Á síðustu dögum hefur BP þurft að svara fyrir furðulegar myndir úr stjórnstöð sinni sem þeir birtu fyrir skömmu síðan. Hópur bloggara fylgist með efni sem birtist á heimasíðu BP og bendir á alla þá bjögun og spunasirkus sem fyrirtækið stendur fyrir.
Stórstraumskórinn fjallar ekki mikið um efnið, en Washington Post, sem er jú undir stjórn Hermikráku verkefnisins, tók þó að sér að reyna að spinna söguna í betri þráð fyrir BP. Samkvæmt þeirra skilningi, þá var slökkt á nokkrum skjám í aðgerðamiðstöðinni og ljósmyndarinn tók upp á því að sjoppa inn einhverjum góðum myndum á þá skjái. Amatör fréttamennirnir láta einnig tuktarlega með þær eðlilegu skýringar og spyrja: Hvers vegna var slökkt á skjám í aðgerðamiðstöðinni í miðri krísu? Kaffipása? Þeim finnst einnig að fótósjopp vinnan hjá þessum atvinnuljósmyndara sé frekar sloppý, þeir segja 12 ára börn geta gert betur. Er hægt að skila slíkri vinnu til risastórs viðskiptavinar eins og BP? Myndi ljósmyndari taka upp á því á eigin spítur að feika myndir fyrir svo mikilvægan kúnna?
Svo virðist einnig að í hrágögnum myndarinnar leynist upplýsingar um að myndin væri tekin 6. mars 2001. Verður næsta lína frá BP sú að ljósmyndarinn kunni ekki að stilla klukkuna í myndavélinni sinni?
En burtséð frá þessum ruglsirkusi, hvers vegna er BP að láta feika fyrir sig á ódýran hátt myndir úr aðgerðastöð olíulekans?
Eru þeir yfirleitt að reka einhverja aðgerðastöð vegna olíulekans? Eða telja þeir sig geta sleppt því? Láta nægja að stórstraumsgöbbelsinn ljúgi að fjærlýðnum, meðan þeir meðhöndla nærlýðinn með símaveri, öryggisvörðum og fjárhagslegum þvingunum? BP virðist hafa svipaða stöðu á þessum slóðum og til dæmis Fjarðarál í Fjarðabyggð. Það er ekki auðvelt fyrir heimamenn að gerast háværir gegn slíkum aðilum, sem nánast halda öllu efnahagslífi staðarins á floti.
En slíkir einstaklingar finnast þó. Þar á meðal er Kindra Arnesen, sem kom fram í fréttaþáttum, ein, þegar aðrir þögðu í kúgun. BP reyndi að gera hana að meðspilara, gaf henni fullan aðgang að fundum og starfi olíufélagsins á svæðinu. Það var afleikur hjá þeim. Flestir hefðu væntanlega orðið upp með sér, þegar þeim er gefin slíkur aðgangur og kóngameðferð. Henni hefði væntanlega verið boðin góð staða hjá félaginu ef hún hefði spilað með.
En hún spilaði ekki með, heldur notaði sáttahönd BP til að kippa þeim betur í svaðið.
Hver er þá heildarmyndin af BP og olíulekanum? Ef fólk skoðar þau gögn sem eru til og hunsa heilalausann og gangslausann stórstraumsmiðilinn, þá er eftirfarandi ljóst:
BP þarf ekki að greiða háar sektir og er ekki gert ábyrgt í neinu samhengi við skaðann sem þeir hafa valdið
Olíulekinn varð fyrir glæpsamlega vanrækslu BP, eða var hreinlega skemmdarverk unnið af fyrirtækinu
BP á gríðarlega mikla hagsmuni bundna í því að verslun með Co2 kvóta komist á. Þeir hafa fjárfest í kvótum, kauphöllum og fyrirtækjum sem munu græða ef sú svikamylla kemst á koppinn.
BP er ekki að sinna hreinsunarstarfi, nema rétt svo fyrir myndavélarnar. Þeir ætla að mjólka þessar hörmungar til að koma græna fasismanum aftur á skrið, eftir strandið í Kaupmannahöfn og Climategate hneykslið.
http://www.americablog.com/2010/07/bp-photoshops-fake-photo-of-command.html

Comments
Powered by Facebook Comments