Börn drepin af Bahrainstjórn, hvar er NATÓ?

Friðsöm og siðsöm mótmæli í Bahrain, mynd CC Al Jazeera English

Svona lítur andlit hryðjuverka ríkisins út í konungsdæmi Bahrain, sem nýtur stuðnings bandarískra og breskra stjórnvalda.  Dauðagríma 14 ára drengs sem lést eftir að lögregla skaut táragasi á mótmælendur af litlu færi.

Síðasta fórnarlamb stjórnvalda í Bahrain er 14 ára drengur, Ali Jawad Ahmad, sem óeirðalögreglan drap þann 30. ágúst 2011 þegar hún skaut táragashylki í hóp ungmenna af stuttu færi.  Það átti að vera hátíðisdagur, endi Ramadam föstunnar.

Enn eitt áfallið fyrir almenning í Bahrain sem heldur að það sé arabavor hjá sér, en hvar er NATÓ og íhlutun þeirra?  Á vesturlöndum er þessu tekið með stóískri ró af stjórnmálahyski og vændismiðlum þeirra.  Það eru ekki alvöru mótmæli nema þeim sé stjórnað af al-Qaeda og sérsveitarmönnum NATÓ í leynierindum.

Íslendingar, jafnt sem aðrir vesturlandabúar skilja ekki valdið sem felst í ströngum lögum og hervaldi sem beitt er af geðþótta gegn sumum, meðan aðrir njóta friðhelgi.  Við viljum berja niður það sem við teljum “óréttlæti”, eins og sósíalblómaríki Gaddafis, við viljum auka eftirlit og skatta og svo framvegis, en við skiljum ekki nógu vel að þessum þrengingum er svo beitt gegn frjálsri samkeppni og “óþekkum” ríkjum, sem kannski eru betri en “við” í mörgum þáttum.  Til dæmis bauð Gaddafi “harðstjórnin” upp á ókeypis rafmagn fyrir almenning og hafði notað þjóðarauðinn að mun stærri hluta fyrir sameiginlega hagsmuni fjöldans, heldur en til dæmis á Íslandi.  Allavega sé ég ekki ókeypis heilbrigðisþjónustu og menntakerfi hér, né ókeypis rafmagn fyrir almenning, eða bensínlítrann á 18 krónur.

Stærsta óréttlætið er að skipta sér af annara þjóða innanríkismálum, jafnvel gegn vilja stærsta hluta þjóðarinnar sem við þykjumst vera að hjálpa.  Þannig skilja óháðir fjölmiðlar Líbíustríðið, afsakið, friðarflugið, þar sem 8.000 sprengiárásir voru gerðar á fólkið í Líbíu.

http://www.infowars.com/bahrain-us-ally-kills-children%E2%80%A6-so-when-is-nato-intervening/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments