Borgir Egyptalands breytast í vígvelli


Vondur á vondri ráðstefnu - CC World Economic Forum

Í höfuðborg Egyptalands ríkir upplausn, mótmæli halda áfram þó ríkisstjórnin hafi sagt af sér, gripdeildir í söfnum, skriðdrekar á strætum Kaíró, lögreglan skýtur á mótmælendur, minnst 62 eru látnir og 2.000 særðir.

Á hliðargötunum safnast mótmælendur aftur saman, eftir að hafa verið gasaðir á breiðstrætunum.  Fólk í íbúðunum fyrir ofan kastar vatnsflöskum til mótmælendanna svo þeir geti skolað óþverra úr augunum.  “Vaknið Egyptar, þögn ykkar er að drepa okkur,” kalla mótmælendurnir niðri.  Aðrir kalla “Egyptar, komið niður og hjálpið okkur.”

Fólkið streymir úr fjölbýlishúsunum, “Við erum sjálf drifkraftur breytinganna,” og “Gamal [Múbarakson], segðu pabba þínum að Egyptar hati hann,” hrópar fólkið.

Svo streyma mótmælendurnir áleiðis á hið fræga Haram breiðstræti, sem teygir sig allt að pýramíðunum.  Þar bætast tugir þúsunda við og þeir ganga fram hjá þunnildislegum varnarlínum valdstjórnarinnar.

“Sjáið þið nú hvað vald Múbaraks er lítið,” sagði ungur maður, og hóstaði gassárum hálsi í trefilinn sinn.  “Í dag er upphaf nýs Egyptalands, frjáls Egyptalands.”

Ungur lögreglumaður sem fyrir andartaki var í góðum gír að berja mótmælendur með kylfu sinni var allt í einu einn, fleygði frá sér óeirðaskildi og hjálmi og reyndi að flýja.  Tveir mótmælendur á svipuðu reki tóku gírinn upp og réttu löggunni og sögðu, “Við erum sama fólkið, komdu í lið með okkur.”

“Ég missti af tækifærinu til að gerast uppreisnarmaður þegar ég var ungur,” sagði Dr. Gihad El Nahary, 52 ára prófessor við Kaíróháskóla.  “Ég ætla ekki að gera sömu mistökin aftur.”

Tveir lögreglutrukkar höfðu einangrast og nokkrir varðliðar voru umkringdir af hundruðum mótmælenda.  Nokkrir vildu ráðast á þá, en meirihlutinn hélt aftur af þeim blóðþyrstu.

Einn lögreglumaðurinn pataði vonleysislega að þvögunni í kring um sig og kallaði; “Ég er ekki hræddur við ykkur… ég er hræddur um að missa vinnuna og eyðileggja lífsviðurværi fjölskyldu minnar.”  Mótmælandi kallaði til baka, “Múbarak er í höllinni sinni og ætlar þér að deyja.  Láttu hann sigla sinn sjó og komdu með okkur.”

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments