Bóluefni við áhyggjum

Hefurðu áhyggjur af Icesave?  Ertu reið(ur) IMF  fyrir að ræna okkur sjálfræði og sjálfsbjörg?  Er húsið á uppboði og makinn að halda framhjá?  Hjálpa áhyggjur og óhamingja eitthvað, eða væri bara betra að fá bólusetningu og lifa í hamingju og sinnuleysi?

Góðar fréttir fyrir fábjána.  Nú getur þeir unað glaðir við þunga vinnuskyldu og aldrei reiðst eða lyft hendi til að verja sig þó allar hörmungar heimsins dynji yfir þá og börn þeirra.  Skólastjórinn deitar 12 ára dótturina, konan heldur framhjá með IMF landstjóranum, Finnur frændi kemur í hverri viku og ryksugar allt fé úr veskinu og Baba the Gimp hefur nokkrum sinnum snúið þá niður í Öskjuhlíðinni á leið heim úr vinnunni og látið vaða í bílskúrinn. 

En fíflin geta ekki lengur reiðst, þau taka öllu með ómannlegu sinnuleysi, því þeir tóku bóluefni með erfðabreyttum herpes vírus, sem ekki ræðst á varir og kynfæri lengur, heldur á heilann, já hann ræðst á heilann og étur í burtu það sem mikilmennin telja að sé okkur til trafala. 

Slíkt bóluefni verður að sjálfsögðu vinsælt hjá stjórnmálamönnum, fyrir kjósendur þeirra að sjálfsögðu, og væntanlega gert að skyldu að taka, eða laumað í önnur bóluefni sem auðtrúa fávitar láta gabba inn á sig og börnin sín.

Jab that could put a stop to stress without slowing us down

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: