Hollywood handrit að blóðbaði

Kvikmyndin Machete er væntanleg í september.  Þar er kynnt undir kynþáttafordómum fólks af rómönskum uppruna gegn hvítum með vísindalegum hætti.  Í mexíkanskri menningu er sveðjan sama tákn og heykvíslar og kyndlar hjá okkur, merki um blóðþyrstann skríl sem lætur fordómana ráða og tekur lögin í sínar hendur.  Machete er heykvíslamynd.

Handriti myndarinnar hefur verið lekið til Alex Jones og hann fer yfir málið í vandaðri fréttaskýringu hér að neðan.

Í myndinni eru allir hvítir hel-illir kúgarar, Machete er frelsari, bókstaflega, fólkið biður til hans eins og dýrlings.

Þetta er dagskráin.  Að deila og drottna, láta almenning eyða orku sinni í að hatast hver út í annan meðan baktjaldamakkararnir gleðjast og eru áfram ósýnilegir.  Fólk er órólegt og reitt, það vantar réttlæti og lífskjörin hrynja á sama tíma og allar þjóðir heims axla uppdiktaðar skuldir alþjóðlegu bankamannanna og handbenda þeirra.  Þá kemur Hollywood inn með útrás fyrir reiðina, fólk ræðst hvert á annað í heimskulegum fordómum í stað þess að sameinast um að losna við blóðsugurnar úr stjórnkerfi, fjármálakerfi og einokun auðhringja.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments