
Mannréttindahópurinn “Náms- og fræðimenn gegn níði stórfyrirtækja” gerði leynilega rannsókn á aðstæðum kínversks verkafólks í leikfangaverksmiðjum og birta nú nokkrum vikum fyrir jól hina döpru skuggahlið á ódýru góssi frá stórfyrirtækjunum.
Stórfyrirtæki eins og Disney, Lego og Marks & Spencer greiða aðeins brotabrot af útsöluverði þessara leikfanga til verksmiðjanna sem framleiða leikföngin. Síðasta sumar var megnið af leikföngum fyrir þessa jólavertíð framleitt og þá fóru útsendarar náms- og fræðimanna á stúfana og könnuðu aðstæður svo lítið bar á. Í aðalatriðum komust þeir að eftirfarandi:
Verkafólkið vann allt að 140 tíma í yfirvinnu á mánuðu (frá 8 til 22 daglega, alla daga).
Það fékk oft greidd laun mánuði of seint.
Það vann með hættuleg verkfæri, vélar og ómerkt og hugsanlega hættuleg efni án þjálfunar eða öryggisbúnaðar.
Fólkið varð að vinna í algerri þögn og var sektað um allt að 5 ensk pund fyrir að fara á klósettið án leyfis.
Með svona mikilli vinnu (og lélegum launum) fylgir hliðarverkun sem fáir átta sig á í fyrstu. Fjölskyldulífið er fyrir bí. Foreldrar hafa varla tíma til að talast við, hvað þá að sjá um börnin sín, afsakið, barnið sitt. Fólkið sér ekki barnið sitt nema fáeina daga á ári.
Lesið þessa dapurlegu jólasögu á Guardian, og reynum svo að kaupa ekki góss af stórfyrirtækjunum.
http://www.guardian.co.uk/world/2011/dec/04/chinese-toy-factories-christmas-disney

Comments
Powered by Facebook Comments