Smiley face

Blandað efni á opnum fundi Hreyfingarinnar

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Ísland

Í gærkvöldi hélt hreyfingin opin fund á Kaffi og veitingahúsinu Sólon. Gullvagninn slökkti á sjónvarpinu og pantaði kaffi.

Dagskráin var eftirfarandi:

1. Stofnun nýrra samtaka launafólks – Jón Jósef Bjarnason
2. Eineltismál – Helga Björk Grétudóttir
3. Icesave – Birgitta Jónsdóttir
4. Málfrelsismiðstöð á Íslandi – Julian Assange
5. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis – Birgitta Jónsdóttir

Verkalýðsfélög

Jón Jósef (sá er færði þjóðinni www.rel-8.com) vann um árabil fyrir skattstjórann og sagði frá árangurslausum tilraunum sínum til að fá að starfa þar utan aðildar að verkalýðsfélagi. Þar náði hann þeirri lendingu að fá að vera utan verkalýðsfélags, en greiða samt gjöld til þess. Á meðan hann starfaði fyrir skattinn þá reyndi hann að fá nokkrar úrbætur vegna yfirgangs launagreiðenda, meðal annars varðandi greiðslur fyrir yfirvinnu og ágang á matartíma starfsmanna. Hann leitaði á náðir verkalýðsfélagsins, sem sagði honum að tala við trúnaðarmann, en trúnaðarmaðurinn trúði því að hann væri trúnaðarmaður launagreiðandans

Eftir framsögu Jóns Jóseps voru nokkrar umræður um málið og fundarmenn virtust almennt á þeirri skoðun að úrbóta væri þörf, líkt og verið er að reyna innan VR.  Gullvagninn telur sjálfur að bestu úrbæturnar væru að gefa aðild að stéttarfélögum frjálsa.  Miðað við frammistöðu þessara félaga og ASÍ upp á síðkastið, þá er launafólk síst verr sett utan þessara hagsmunasamtaka, enda virðast þau ekki vera að gæta hagsmuna launafólksins, þó þau telji sig geta talað í þeirra nafni.

Einelti

Furðulegt innlegg á þessum tímum þar sem brýn mál er varða efnahagslegt sjálfstæði og lýðræði þjóðarinnar þarfnast allrar þeirrar athygli og vinnu sem fæst, en vissulega er einelti eitrað og þarf að gera eitthvað til að uppræta.  Tillaga Helgu Bjarkar Magnúsardóttur Grétudóttur er að gefa ‘sérsveitinni’ opinber völd til að sneypa kennaralið þeirra skóla sem ekki standa sig í að koma í veg fyrir einelti.  Það var áhugaverður punktur að hún og hennar félagar telja að einelti viðgangist innan starfsliðs skóla og kennarasamtaka.  Sé það rétt er engin furða hversu illa gengur að uppræta þennan vágest.

 

Icesave

Birgitta Jónsdóttir blómstrar og er að stimpla sig inn sem Jón Sigurðsson 21. aldarinnar.  Hún vill að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram, svo fordæmi skapist fyrir því að þjóðin taki beinan þátt í að ákveða úrlausn sinna stærstu málefna, en svo virðist sem margir á þingi vilji að Davíðstrixið verði notað, lögin dregin til baka og málið leyst á einhvern annan, ólýðræðislegan hátt.

Málfrelsismiðstöð

Julian Assange er maðurinn á bak við Wikileaks vefinn.  Hann kynnti hvernig fjölmiðlar heimsins, sérstaklega þeir bresku, eiga við fargan reglugerða og lögfræðikvoðu að etja og hvernig fréttir eru gjarna þaggaðar með svokölluðum ‘gag’ skipunum, eða lögbanni á birtingu.  Fjölmiðlamenn eiga einnig erfitt með að vernda þá er veita þeim upplýsingar sem veldur því að færri þora að koma fram með viðkvæm mál.

Hér er tækifæri fyrir Íslandinga að bæta ímynd sína með því að vera í fararbroddi með löggjöf sem lýtur að málfrelsi og vernd fjölmiðla.  Þannig gætu til dæmis bresk blöð stofnað útibú á Íslandi þaðan sem viðkvæmustu fréttirnar væru birtar á internetinu.  Julian telur að það land sem brýtur ísinn í þessu máli muni fá straum af fjölmiðlafyrirtækjum til að setja upp útibú í landinu og það myndi efla stöðu landsins sem miðstöð gagnadreifingar á internetinu.

Lyklar:, , , , , , ,

Gullvagninn

Miðaldra fjölskyldumaður sem sinnir jaðarblaðamennsku í frístundum. Hóf ritferilinn á moggablogginu í ágúst 2007, en skipti yfir á Kryppu þegar vefritið var stofað í janúar 2010.

Skrípó