Bláa kortið, ókeypis fyrir lesendur

Glöggir lesendur Kryppu.COM muna frétt frá í vikunni um 50 milljónir Afríkubúa sem verða svo heppnir að fá Bláa kortið og geta stormað inn í Evrópu í leit að evrópska draumnum og betra lífi fyrir sig og fjölskyldur sínar.

Margir íslendingar hafa tekið þátt í árlegu lottói amerísku innflytjendastofnunarinnar um græna kortið, en nú er komið sambærilegt kort fyrir Evrópu, Bláa kortið, sem veitir innflytjendum leyfi til að vinna og búa í gamla heimalandinu.

Mað sérstökum samningum hefur dvergmiðlinum Kryppa.COM tekist að útvega lesendum sínum þetta kort, langt á undan fyrstu Afríkubúunum.  Nú er ekkert annað fyrir Evrópu elskandi lesendur að gera, nema panta gám og hringja í Barrúsó, velja eitthvað blómlegt land og drífa sig af stað.

Leiðbeiningar: Prentið myndina hér að neðan út, aftaná skrifið þið nafn ykkar og einhverja upp-peppaða evrópufrasa, plastið svo herlegheitin og þar er það komið, sjálft Bláa kortið.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments