DV vefmiðillinn er hlaðinn alvöru fréttum þegar ég kíki þar inn nú í hádeginu. Bankok brennur, talað um borgarastríð, er ein fréttin.
Björgvin G er sagður segjast “liggja í blóði sínu”, fórnað af flokknum í hvítþvottaskyni. Það ætti að vera þingmönnum og ráðherrum lexía í því að halda trúnaði við fólkið, ekki flokkinn. Hann á ekkert inni hjá okkur eftir lina vakt í brúnni, og það væri bara spilling ef flokkurinn fer að púkka upp á hann með opinberri gerfistöðu eða álíka.
Svo er það flottasta fréttin sem ég sé í fljótu bragði hjá DV:
Lofar 28 grömmum af gulli fyrir þann sem finnur Sigurð
Þar er auðvitað átt við eina únsu af gulli, sem vinur okkar Max Keiser lofar þeim sem gæti komið Sigurði í klærnar á yfirvöldum!

Comments
Powered by Facebook Comments