
Eins og allir alvöru fjölmiðlar ætlar Kryppan.com að gera viðtali VB við Björgólf Thor góð skil. En í þessu viðtali segir Björgólfur að hann sé ekki eins og allir hinir þjófarnir sem stálu öllu sem þeir gátu stolið. Hann hafi bara verið svona ræningi sem stal frá þeim ríku og gaf fátækum. Ekki ósvipað og Hrói höttur í ævintýrunum.
“Ég var aldrei að stela frá almenningi á Íslandi. Icesave var ekki mér að kenna og ég vissi bara aldrei neitt um þann pakka. Það var síðan einhver blaðamaður sem hringdi í mig og spurði, ætlar þú að borga Icesave? Ég svaraði bara á móti Leonci hvað? Nei, Icesave, þú veist þetta sem þjóðin á að borga vegna innlána Breta og Hollendinga í bankann þinn!”
“Þegar þessi maður var búinn að fræða mig um Icesave varð ég alveg brjálaður út í Sigurjón bankastjóra. Hvernig honum hefði dottið í hug að taka peninga af fólki án þess að ég fengi neitt. Að vísu hafði ég tekið einhverja þúsund milljarða út úr bankanum en það voru allt lögleg viðskipti, viðskipti, skilurðu??”
“Ég hélt bara að Íslendingar hefðu verið svona duglegir að leggja inn peningana sína. Þeir treystu mér og pabba gamla. Lítil börn með baukana sína og fermingastelpur með aleiguna. Talandi um fermingastelpur. Veistu hvað ég geri þegar ég heimsæki fátæk lönd þar sem fólk á varla til hnífs og skeiðar? ”
“Er viðtalið ekki búið, ég þarf að flýta mér að ræna frá þeim ríku til að gefa íslensku þjóðinni.”

vegna thess ad fjolmidlar vinna sina vinnu ut fra politisku sjonarhorni! nakvaemlega eins og stjornmalamenn koma ordum einstaklega vel ut fra ser (einnig er thetta lika fafraedi og hugleisi i fjolmidlafolki… En svo lengi sem sindri sindrason aelir i islandi i dag thrifa vinnuveitendur hans aeluna hans (eda hvada frettamanns sem er) adur en hun er birt! aela a ad vera stor! Efnismikil! Og hafa hreinsandi ahrif a likaman… ekki trua hvada aelum sem er jr… Spillingin og lygin er tilgangurinn sem helgar medalid hinna riku!
Svá góðr
2
Hvers vegna talar engin fjölmiðill við Lalla Johns, og fáið að vita hvers vegna hann er alltaf settur inn ?????????
Hvað er að íslensku fjölmiðlafólki ?????
Eina sem fólk langar að vita um þennan glæpamenn, hvenær hann verður settur í gapastokkinn !!!!!!!
Svá góðr
2
eg skal aela med ther! Thvi fleiri sem aela thvi betra! Kominn timei til ad drekkja spillinguni i aelu =)
Svá góðr
0