Bjóða hórum upp á afmellunarmeðferð

Fasystur vöktu mikla athygli í vikunni þegar þær þrömmuðu um í búrkum og með frekju og látum og kölluðu sig stóru systur okkar allra og heimtuðu að við létum öll í minni pokan fyrir stórusysturvaldi sínu, jafnvel þó við séum ekki systkyni þeirra og jafnvel eldri en þær.

Það er margt sem ég næ ekki að skrifa um þessa dagana og þá er alltaf gott að finna grein frá öðrum sem segir nánast allt með sama eða betri hætti en ég hefði sjálfur viljað gera.  Eva Hauksdóttir hefur reynslu af því að vera stóra systir í frekjukasti og deilir því með okkur á bloggsíðu sinni ‘sápuóperu’.  Fyrir utan skemmtilega umfjöllun, þá hefur hún smíðað (eða fundið) fjölmörg skemmtileg orð sem hjálpa sjokkeraðri þjóð til að sjá hversu kjánaleg hegðun þessara sjálfskipuðu stórusystra er.

Kú-klúx-búrku-systur vísar í kuflaást kúklúxklan, auk þess að vísa í óheppilegt fataval þeirra systra, sem vilja vera andlits og nafnlausar (ég skil það svo sem), en kjósa sér búrkulega klæðnað, í stað t.d. smartra og sexí anarkistabúninga, sem gæfi þá gröðum og grömum karlræflum eitthvað í sárabætur fyrir gabbið. 

Af-mellunar-meðferð er ný þjónusta fyrir druslur sem bera enga virðingu fyrir líkama sínum og heiðri, og finnst betra að blása lífi í kynlíf óaðlaðandi karla gegn greiðslu, frekar en að skeina öldruðum, þrífa upp annara ælu eða grafa hendur sínar í daunillum annara manna klamedíusýktu píkum til að kreista bólur eða sinna öðrum heilbrigðisvandamálum.

Nærbuxna-feministar eru þeir feministar sem fatta ekki hið gríðarlega vald sem felst í vulvunni og vilja friða hana.  Ég held að það sé sami hópur og lítur strangt til tekið á allt kynlíf með körlum sem nauðgun þeirra á konum.

Búrku-systur er styttri og þjálari útgáfa af KKBS, ekki alveg jafn ögrandi en má nota til að hamra á búrkutengingunni, og þá í bland við kú-klúx-búrkur, önnur stytting á KKBS.

Fasystur er svo snilldarorð sem á vel við, en orðið fasisma tengja felstir við yfirgang og stjórnsemi ‘að ofan’.

Eva tæklar þetta mál frá mörgum hliðum, hún íhugar lögmæti aðgerðanna en jafnframt rétt borgaranna til að grípa inn í og leiðrétta rangláta lagasetningu eða afskiptaleysi stjórnvalda af sumum afbrotum.  Hún spáir fyrir næstu skrefum í aðgerðaáætlun búrkusystra og segir

…næsta skref stóru systur hlýtur að vera að stoppa litlu systur í því að fara sér að voða. Við getum reiknað með að næst þykist þær vera þokkalega múraðir vændiskúnnar og mæti í búrkunum sínum á hóruhúsin til að bjóða fórnarlömbum feðraveldisins upp á afmellunarmeðferð. Og ef það dugar ekki til, má líklega reikna með að þær klagi í foreldra þeirra eða ef þær eru útlendingar að þær birti myndir af þeim í blöðunum svo við getum öll hjálpast að við að passa upp á að þær haldi nærbuxunum upp um sig.

Lesið Evu Þegar stóra systir fær frekjukast

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments