
Plastílát undir matarleyfar seljast nú orðið verr í Bandaríkjunum þegar neytendur verða meðvitaðri um BPA lekann sem er algengur úr plastefnum og kaupa nú frekar glerílát.
BPA, eða Bisphenol-A, er eitthvað efni sem finna má í nánast öllum plastumbúðum og plasthlutum, og þá sérstaklega í því plasti sem ætlað er undir mat. Jafnvel pappaumbúðir, eins og fernur, eru gjarna húðaðar með smá plasti og BPA, svona til að allt sé nú “öruggt”.
En hvað er vandamálið við BPA? Jú, það líkist kvenhormónum svo mikið að það setur allt í uppnám í líkömum okkar, og ekki síst hjá börnum. Stelpur fara fyrr á gelgjuskeiðið, strákar verða stelpulegri, mýkri menn, auðsveipari, meðfærilegri. Frjósemi minkar hjá báðum kynjum, sérstaklega hjá strákunum og til að toppa allt saman, þá aukast líkur á krabbameini og öðrum kvillum.
Neytendasamtökin hafa lengi fjallað um BPA í blöðum sínum og á vefsíðu, en fólk hefur ekki haft miklar áhyggjur. Það treystir á föðurlegar ríkisstofnanir til að vaka yfir heilsu sinni, eins og þær vöktu yfir fjármálastofnunum og stjórnkerfi í aðdraganda hrunsins.
Í sumar birtu Neytendasamtökin eftirfarandi frétt:
Danir hafa nú fyrstir Evrópuþjóða bannað hið umdeilda efni BPA (Bisphenol-A) í pelum og öðrum vörum ætluðum ungbörnum. Fleiri Evrópuþjóðir munu nær örugglega fara að dæmi Dana og má t.d. nefna mikinn þrýsting frá sænskum neytendum á þarlend stjórnvöld. Í Kanada hefur BPA einnig verið bannað í pelum.
Í framhaldinu hvetja Neytendasamtökin foreldra til að velja pela og plastglös án BPA, og Kryppan getur tekið undir það og hvatt fólk að takmarka ekki þessa útskúfun á BPA við barnavörur, heldur reyna að sneiða hjá þessu jukki með öllum ráðum við öll tækifæri.
Gullvagninn rakst á þetta ágæta Pyrex dollusett í Nettó í gær. Í því eru 8 glerílát af þremur stærðum, passleg undir afganga og annað sem oft lendir í plastdollum inn í ísskáp. Þetta sett kostar aðeins 7.000 kall, sem er ekki svo slæmt verð miðað við stykkjaverð á hitaþolnum glerílátum, sem oft kosta 1500 til 2000 krónur stykkið.
Í kaupbæti fylgja BPA laus plastlok á ílátin og þessum glerílatum (án BPA lausra plastloka) má svo skjóta beint inn í ofn til að hita afgangana síðar.
Comments
Powered by Facebook Comments