
George Orwell (Eric Blair) mynd CC NCMallory
Persenska deild BBC hefur loks viðurkennt þátt sinn í því að steypa lýðræðislega kjörinni stjórn Mósaddeghs af stóli árið 1953, en aðgerðin felldi landið aftur undir algera eðal- alræðisstjórn Mohammad-Reza Pahlavi, sem síðar varð undir í íslömsku byltingunni árið 1979.
Í heimildarmynd sem sýnd var 18. ágúst í tilefni afmælis samsærisins viðurkenndi Persíudeild BBC á látlausan hátt í fyrsta sinn að hafa verið áróðursarmur breskra stjórnvalda í Íran.
Sem sé, ekki endilega hlutlausar og fagmannlegar fréttir, heldur pólitískt réttar fréttir og viðhorf. Alveg eins og í dag, og alveg sama gildir fyrir RÚV, og hina íslensku báknfjölmiðlana sem ýmist taka stjórnmálalegum bendingum, eða eru áróðurspípur þeirra hagsmunahópa sem gera þá út, oft þrátt fyrir bullandi tap. Hagnaðurinn er ekki af sölu auglýsinga eða áskrifta, heldur af því að stýra almenningsálitinu í hagsmunamálum.
Ekki að uppfræða almenning og vakta stjórnmálamenn og stórfyrirtæki, heldur þveröfugt, forheimska almenning og vakta hagsmuni stórfyrirtækja og spilltra handbenda þeirra á þingi og í stjórnkerfinu.
http://www.presstv.ir/detail/195008.html

Comments
Powered by Facebook Comments