Í nýlegu bréfi sem José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sendi forseta Evrópuþingsins útlistar hann stefnu stjórnar sinnar til næstu ára. Bréfið er einskonar áttaviti sem bæði þingið og framkvæmdastjórnin geta fylgt eftir. Stefnan er háleit og sýnir glöggt á hvaða hraðferð Barroso og félagar eru á. En þeir vilja m.a. nota slagkraft ESB til að verja hagsmuni stórfyrirtækja á erlendri grundu. Byggja upp eitt dreifikerfi fyrir gas og rafmagn. Taka þátt í alþjóðasamstarfi fyrir hönd allra landa ESB og síðast en ekki síst að spinna saman þræði ríkisrekstar og einkaframtaks á frumlegan hátt.
Bréf Barroso er nokkuð ítarlegt og kemur því vel til skila að ESB er ríkjabandalag með miðstjórn en ekki samstarfsvettfangur sjálfstæðra ríkja. Bréfið er að vísu skrifað áður en Írar samþykktu Lissbon sáttmálann en Barroso gengur aldrei út frá neinu öðru en að hann öðlist gildi. En gefum nú José Manuel Barroso orðið.
“Ég vil vinna náið með þinginu að velsæld og öryggi Evrópu sem byggir á styrk sameiginlegs markaðar, evrunni og okkar evrópsku þjóðfélagsgerðar.” Hvort hér er átt við Norræna velferðarmódelið eða eitthvað nýtt sameiginlegt ESB módel þar sem lægsti samnefnarinn ræður ríkjum á eftir að koma í ljós en Barroso heldur áfram og segir. “Þetta eru ekki neinir venjulegir tímar. Það sem Evrópa þarfnast er stefnuskrá umbreytinga. Aðeins með því að vinna saman getur Evrópa haft nauðsynlegan slagkraft. Við stöndum frammi fyrir tveimur valkostum. Annað hvort mótum við nýja heimsmynd saman eða Evrópa hættir að skipta máli.”
Haldið ykkur nú því hér kemur mest djúsí kaflinn. “Ég er sannfærður um að Evrópa getur og ætti ásamt samstarfsaðilum (UN, Coca Cola, KÍNA, Rockefeller?) að veita alþjóðavæðingunni nauðsynlega forystu. Til að geta leikið sitt hlutverk þarf Evrópa að viðurkenna að allur heimurinn er tengdur í eina órjúfanlega heild. Með sameiginlegan markað, stofnanir og 27 aðildarlönd hefur Evrópa þann slagkraft sem þarf til að halda á lofti okkar gildum og verja hagsmuni okkar. Evrópusambandið er sérstaklega vel til þess fallið að taka að sér þetta hlutverk vegna reynslu okkur í að koma á fót yfirþjóðlegum stofnunum og reglum. ESB hefur haft næstum sextíu ár til að þróa og gera tilraunir með yfirþjóðlega samvinnu. Þessi reynsla gerir sambandið sjálfkrafa að meistara í stjórnun á heimsvísu.
Barroso heldur síðan áfram og ræðir ítarlega um stefnu sína næstu fimm árin eða svo. En auðvitað er meira gaman að lesa hvað kappinn skrifar sjálfur en ómerkilega íslenska þýðingu.
credit NATO photos

Comments
Powered by Facebook Comments