Smiley face
sp111

Barnavændishringur elítunnar upprættur

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Stjórnun, Tekknókratar

Enn einn barnavændishringur elítunnar hefur verið upprættur þegar upp komst um Önnu Gristina, 44 ára gamla og fjögurra barna móður, sem rak vændishring frá heimili sínu í New York.

Rekstur vændisþjónustunnar fór fram frá íbúð í New York, heimili Önnu, en hún treysti á aðstoð og ‘vernd’ lögreglunnar við að sjá auðugum viðskiptavinum fyrir ólögráða einstaklingum til kynmaka.

Meðal viðskiptavina voru valdamiklir stjórnmálamenn, toppar í lögreglunni, áhrifamiklir lögfræðingar, bankamenn, forstjórar úr skemmtanaiðnaðinum, viðskiptamenn úr Fortune 500 fyrirtækjum auk þónokkurra vellauðugra evrópskra viðskiptavina, segir New York Post.

Sum þessara viðskipta voru ekki aðeins með ólögráða einstaklinga (yngri en 18), heldur hreinlega með börn, samkvæmt Charles Linehan, aðstoðarsaksóknara á Manhattan.

Fréttasíðan infowars.com hefur um árabil rakið mál og bent á hvernig alþjóðlegir barnavændishringir eru aðallega reknir vegna eftirspurnar frá ríku elítufólki og valdamönnum.  Dæmi eru til um slíkt frá Portúgal, Austurríki, Frakklandi, Chile, Belgíu og Bosníu, og öll benda þau til þátttöku áberandi einstaklinga í vændishringjum, sadómasókísku kynsvalli og jafnvel morðum.

Í nánast öllum tilvikum kynlífsþrælkunar á börnum eru mál felld niður eða þau færð á aðrar brautir (villigötur) þegar tengsl við elítufólkið koma í ljós.

Á tíunda áratug síðustu aldar byggði dæmdur barnaníðingur að nafni Marc Dutroux leynilega dyflissu í kjallara sínum í bænum Charleroi og þar hélt hann ungum stúlkum í gíslingu samkvæmt boðum frá því sem hann kallaði “stóra glæpahringnum,” sem talinn var tengjast sumum af topp pólitíkusum, dómurum og lögreglumönnum Belgíu.  Ástæða þess hve seint gekk að ná Dutroux var einmitt sú að sömu aðilar hindruðu rannsókn og vernduðu hann.

Lylilvitni í þeim réttarhöldum lýsti “kynlífsteitum með börnum þar sem meðal gesta voru dómarar, stjórnmálamenn, bankamenn og meðlimir konungsfjölskyldunnar.”  Fórnarlömb sem komust af, en flest voru drepin eftir nauðganirnar, staðfestu þessar sögur.

Lögreglan heimsótti meira að segja heimili Dutroux meðan á rannsókn málsins stóð og heyrði hjálparóp barnanna sem læst voru niðri í kjallara hans, en tóku samt skýringu Dutroux gilda, en hann sagði hrópin koma frá börnum að leik úti á götu.

Dutroux var að lokum dæmdur fyrir verk sín, en tengsl elítunnar við vændishringinn voru aldrei rannsökuð af neinni alvöru.

Fleiri, fleiri sögur á infowars.com.

New York Prostitution Ring Provided Minors For Wealthy Elitists

 

Lyklar:, ,

Gullvagninn

Miðaldra fjölskyldumaður sem sinnir jaðarblaðamennsku í frístundum. Hóf ritferilinn á moggablogginu í ágúst 2007, en skipti yfir á Kryppu þegar vefritið var stofað í janúar 2010.

Skrípó