
Það er ekki lengra síðan en í fyrradag að við vorum kölluð vænisjúk fyrir að benda á sjúkleika nektarskima og augljósa möguleika misnotkunar, hvort heldur sem er á vegum starfsmanna eða hins opinbera.
Þetta eru engin geimvísindi. Fólk er misjafnt og það er misjafnt fólk í öllum stéttum. Eina vörnin er að fólk láti aldrei ganga á frelsi sitt og virðingu undir yfirskini ‘öryggis’. Flugvellirnir eru í fremstu röð með að setja fordæmi fyrir alvöru, hard-core lögregluríki þar sem borgarar eru vesælir þrælar sem má niðurlægja, pynda, fangelsa án dóms og laga og drepa, en andi eftirlitsins smýgur út í almennt samfélag eins og sjá má í frétt okkar frá í gær, þar sem sagt er frá fólki sem veittst er að í verslunarmiðstöðvum vegna pólitískra skilaboða á stuttermabolum, svo sem “Prófum nú friðinn” (Give peace a chance).
Boston Herald segir í frétt frá 10. mars: Barnanauðgari hristir upp í TSA. Starfsmaður á Logan flugvelli sem þreifar á flugfarþegum í öryggishliði var í gær tekinn höndum og kærður fyrir ýmsa kynferðisglæpi á stúlku undir lögaldri.
Við handtökuna blossuðu upp ásakanir aðgerðasinna sem berjast fyrir friðhelgi farþega sem segja málið staðfesta áhyggjur þeirra vegna nektarskima á Logan alþjóðaflugvellinum.
sjá einnig Glæpsamlega flottir Levi Strauss bolir

Comments
Powered by Facebook Comments