Barnaperrar í Pentagon

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur neitað að rannsaka kaup starfsmanna þess á barnaklámi.  Samkvæmt fréttum vinna yfir 260 barnaperrar fyrir ráðuneytið og undirstofnanir þess.  Upp komst um perrana þegar Pentagon bar niðurstöður annarar rannsóknar saman við starfsmenn sína.

Margir háttsettir menn voru á listanum t.d. starfsfólk ráðherra, ýmsir undirverktakar og einn yfirmaður hjá DARPA stofnunni.  Þrátt fyrir öll þessi nöfn hefur Pentagon aðeins rannsakað 52 og örfáir verið kærðir í kjölfarið.  Herforinginn Gary Grant var einn af þeim heppnu og játaði hann brotið sitt eftir að barnaklám fannst á tölvunni hans.

Ónafngreindur heimildarmaður tjáði fréttamanni að mannekla væri vandamálið.  Stríðið gegn hryðjuverkum hefði algjöran forgang og á meðan hefðu barnaperrar frjálsari hendur í bókstaflegri merkingu.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments