Barnaklám í grínþætti

Það heitir ‘normalísering’ og fólk á miðjum aldri getur auðveldlega munað tímana tvenna í viðhorfum til kynvillinga.
Normalíseering fer þannig fram að fólk er smám saman vanið við nýjar hugmyndir og það sem áður þótti öfugsnúið í meira lagi fer smám saman að verða kunnuglegt og þolanlegt. Í tilfelli kynvillinganna, þá voru þeir (og þær) algerir öfuguggar og fólk grínaðist á ævintýralegan pólitískt rangan hátt með kynhneigð þeirra og ætlaðan perraskap. Nema í þá daga var það ekki pólitískt rangt, heldur var það pólitískt rangt að bera blak af þessu fólki.
Eins og það er pólitískt rangt að bera blak af barnaníðingum í dag.
Alan Watt er mikill heimspekingur og fræðimaður um baktjaldaplott og aðferðir elítunnar. Frá því að ég byrjaði að hlusta á hann einhverntíma löngu fyrir hrun, þá hefur hann annað slagið sagt frá því hvernig það er á dagskránni að normalísa barnaníð og jafnvel dýraníð. Það er verið að brjóta alla siðferðisþröskulda niður, þeir eru gamaldags, eins og gömlu þröskuldarnir eru teknir um leið og skipt er um gólfefni og í staðin kemur “fljótandi gólf”, þá erum við á leiðinni í siðferðislega fljótandi gólf.
Hann segir barnaníð verða normalíseruð og farið verði að tala um inter-generational relationships, kynferðisleg sambönd milli fólks af ólíkum kynslóðum.
Mér verður hugsað til Alan Watts þegar ég sé frétt eins og þessa. Grínþátturinn “Angry Boys” gerir grín með að láta sirka fimm ára stelpu drekka úr drykkjaríláti sem lítur út eins og þrútinn limur í fullri reisn.
Er þetta í alvöru fyndið?

http://www.breitbart.com/Big-Hollywood/2012/04/13/HBO-Children-Sex-Toys
Lyklar:börn








