Bandarískur Jón Frímann spáir hamförum

Jón Frímann hefur getið sér gott orð í notkun andlegra spákvista til að sjá fyrir jarðfræðilega atburði þó sérfræðingar veðurstofu og RÚV sofi á verðinum.

Í Bandaríkjunum er það youtube karlinn ‘dutchsinse’ sem einnig virðist hafa ófreska eiginleika til að lesa úr gögnum og sjá þar mynstur sem færustu sérfræðingar og fjölmiðladólgar nenna ekkert að tengja saman.  Hann sá fyrir öldu hvirfilbylja, sem meðal annars lögðu borgina Joplin í rúst nú í vor út frá HAARP mynstrum í opinberum gögnum frá veðurratsjám.

Nú hefur dutchsinse áhyggjur af hrinu jarðskjálfta sem herja á landgrunn Púerto Rico.  Að auki er allur eldhringurinn í kring um Japan í uppnámi.  Hann sýnir þetta vel í myndbandinu hér að neðan.  En þessi gögn túlkar hann þannig að jarðskorpuhreyfingar séu framundan, að flekarnir muni færast til, jafnvel verulega og land muni annaðhvort rísa, eða hníga í sæ á svæðinu suð-austan við Bandaríkin.

Ef það gerist, segir dutchsinse, þá er sama hvort land sekkur eða rís, það verður stór bylgjuhreyfing í hafinu og flóðbylgja gæti þá stefnt á suðausturströnd Bandaríkjanna og Mexíkó.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: