Bandaríkin kynna nýja vítisvél

Kaós-deildin sprengir C4 á æfingu, mynd CC DVIDSHUB

Flotarannsóknardeild Bandaríkjahers hefur prófað nýja tegund af sprengiefni í vítiseldflaugar sínar en efnið skapar öflugara helvíti á lendingarstað sínum heldur en eldri sprengitækni.

Þessi nýja og spennandi tegund sprengiefna sem dúxaði prófið á föstudag blandar málmum og fjölliðum (oxunarefnum) og kemur af stað efnahvörfum þegar sprengjan springur.  Sprengingin er eins sterk og álhnefi og eins efnismikil og stál.

Flotinn segir að með þessari nýju tegund vítisvéla þurfi þeir kannski bara að skjóta einni eldflaug í stað þriggja og það spari dollara á sama tíma og ógæfan leggist fremur á vondu karlana heldur en saklausa áhorfendur (þetta er einhver flotaspeki sem ég skil samt ekki).  Ef þeir hitta ekki, þá geta þeir alltaf skotið fleiri vítiseldflaugum.

“Með HDRM efnaferlisvítisvélinni getum við vonandi bara skotið einu sinni og gefið okkur svo tíma til að skoða ógæfuna.  Við getum alltaf skotið annari vítisflaug.  En það spara mikinn pening ef hægt er að steindrepa skotmarkið með einni vítiseldflaug í stað þriggja,” segir Dr. Bedford, vísindamaður sem hefur unnið að aukinni ógæfu í meira en fimm ár.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: