Aukin geislavirkni í Evrópu

Geislun er að aukast um alla Evrópu, joð 131 ísótópinn mælist í litlu magni í Tékklandi og víðar í kring, þó uppsprettan þurfi ekki endilega að vera í Tékklandi.

Joð 131 samsætan verður til við kjarnasundrun.  Hún hefur skamman helmingunartíma, aðeins 8 daga, þannig að þegar hún mælist í umhverfinu er það vísbending um nýlega kjarnasundrun og geislun sem lekur út í umhverfið, oftast úr kjarnaofnum, en hugsanlega úr kjarnorkusprengjum sem sprengdar eru í tilraunastigi, eða úr kjarnorkuúrgangi sem aftur verður “krítískur”, það er að segja, keðjuferli kjarnasundrunar hefur hafist að nýju.

Þessar fréttir eru vandlega hunsaðar af öllum eftirlits og fréttastofnunum um þessar mundir.  Alex Jóns segir hnitmiðaðar fréttir af málinu í þessu myndskeiði úr Infowars Nightly News frá því síðasta föstudag.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments