
Efnahagsbatinn svokallaði er minni en búist var við og hagkerfið virðist leita í hægan vöxt sem ekki er nægur til að minnka atvinnuleysið, segir í frétt Washington Post.
Þar er ekki talað mikið um gríðarlega “atvinnusköpun” ríkisins við að ráða fólk í skamman tíma til að ganga í hús og safna gögnum fyrir manntalið, störf sem svo gufa upp eftir mánuð eða tvo, en fólkið dettur út úr tölum um atvinnulausa um skeið vegna þessa.
Vonir um góða botnspyrnu eftir samdráttarskeiðið eru gufaðar upp segir Bart van Ark, hagfræðiforingi Conference Board rannsóknarnefndarinnar. Við sjáum ekki tvídýfu í spilunum, en teljum þó að vöxturinn hægi enn á sér á síðari hluta ársins.
Í raun benda vaxtatölur í kring um 2 prósentin til þess að efnahagskerfið rétt nái að troða marvaðann. Fólksfjölgun og tækninýjungar tryggja framleiðsluaukningu upp á 2,5 til 3 prósent og því þarf hraðari vöxt til þess að slá á atvinnuleysið og koma verkefnalausum verksmiðjum aftur í rekstur.
Íslenska trúmenn á “batann” má minna á að kreppan kom upphaflega að utan og óraunsætt að halda að við skjótumst upp úr þessum svelg, ein þjóða.
http://www.infowars.com/u-s-recovery-hopes-fade-as-economic-growth-dips/
Comments
Powered by Facebook Comments