Assange réttlætir ritskoðun

Júlían Assange er notaður til að réttlæta ritskoðun á internetinu, segir bandaríski útvarpsmaðurinn Alex Jóns.  Tvö frumvörp í burðarliðnum á bandaríska þinginu þar sem fréttamenn verða fangelsaðir, ef þeir nota trúnaðarskjöl sem lekið er til þeirra. 

Sænskar stelpur

Allavega önnur sænsku kvennanna, Anna Ardin, sem hefur kært Assange fyrir kynlíf með fullu samþykki beggja aðila, tengist CIA verkefni gegn Fidel Castro þar sem 73 létu lífið árið 1976 og er feminískur aðgerðasinni, sem hefur bloggað uppskrift að því hvernig konur geti hefnt sín á körlum, með því að nota hinn feminíska skilning á að allt kynlíf sé í raun nauðgun á kvenfólki.

Wayne Madsen telur að fyrst Assange gaf sig fram við lögreglu í Bretlandi út af þessum fáránlegu ásökunum sænsku kvinnanna, þá hafi CIA nú aðgang að honum.  Hann segir “verndarlögin” sem verið er að koma á koppin séu í raun öfug vernd, vernd fyrir stjórnvöld til að makka í leyni í friði fyrir fréttamönnum.

Þessi löggjöf er í raun “föðurlandslöggjöf” fyrir internetið, en “föðurlandslöggjöfin” (Patriot Act) er einhver hroðalegasta afleiðing atburðanna 11. september 2001, þar sem vestrænum réttindum almennra borgara gegn ríkisvaldinu var sópað í burtu og nú er hægt að halda fólki án laga og réttar og án þess að láta fjölskyldur þeirra vita, árum saman í leynifangelsum á borð við Guantanamó.

Mynd CC christianisthedj
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments