Það líður varla sá dagur að ekki birtast neikvæðar fréttir um Íran. Algjör tilviljun fyrir þá sem trúa svoleiðis vitleysu. Nú í vikunni fékk allur heimurinn að vita um seinheppna kökuþjófinn sem dómstólar í Íran dæmdu í fangelsi og til að missa hendina. Úff, það er ekkert grín að stela kökum í Íran og sýna mótþróa við handtöku en samkvæmt fréttinni sem birtist á RUV þann 18. okt. fékk hann að halda litla vininum og losnar úr fangelsi eftir eitt ár eða svo.
Önnur frétt sem var að birtast í DV segir okkur frá þremur fótboltapjökkum sem eiga fangelsisdóm yfir höfði sér fyrir að kyssa einhverja konu. Heimild DV er frétt úr Telegraph þar sem lítið sem ekkert kemur fram um málið annað en þjálfarinn er að reyna að halda mönnunum í liðinu. Svo er sjálfum Ahmadinejad blandað í fréttina þó hann komu þessu ekkert við og fréttin endar á að síðustu kosningar í Íran séu sennilega tómt svindl.
Þann 17. okt. birtist síðan þriðja fréttinn um Íran. Við fyrstu sýn virðist hún vera hlutlaus en svo er nú alls ekki. Fréttin segir okkur frá afgönskum hermönnum sem voru handteknir fyrir að elta Talibana yfir til Írans. Bara svona smá frétt um þetta litla sæta stríð. Nei, bullandi áróður því ef eitthvað er marka þessa frétt þá streyma vopn og sprengjur frá Íran til Talibanana. En Írönsk stjórnvöld, samkvæmt fréttinni, gera ekkert í því bara handtaka illa borgaða Afgana sem eru í vinnunni.
Sjá nánari úttekt á málinu á Gagnauga.is


Comments
Powered by Facebook Comments