Arnold Svakalegi barnar fóstruna

Í fréttum er það helst að Arnold Schwarzenegger hélt framhjá eiginkonu sinni til margra ára með fóstrunni sem passaði börnin hans.  Hver hefði trúað því að þessi graðfoli hefði haldið framhjá eiginkonunni og ekki nóg með það heldur barnað hana líka.  Ekki ég að minnsta kosti og greinilega ekki eiginkonan því hún er sögð sár og móðguð yfir öllu saman.

Það sem er nú skrítnast við þetta mál er ekki að kallinn dúllaði sér við fóstruna þegar frúin var ekki heima.  Heldur að fóstran var og er gömul og ljót a.m.k. á íslenskan mælikvarða.  Ef ég væri Arnold Svakalegi og gæti vaðið í flottar kellingar án þess að borga fyrir það fóstrulaun hefði ég valið eitthvað annað.  Helsta puntudúkka Íslands, Tobba deitdrottning , segir meira að segja að húshjálpin líkist gömlum kalli.

Að taka sénsinn á að eyðileggja fjölskyldina fyrir “gamlan kall” á sér þó kannski einfalda skýringu.  Arnold taldi sig frekar komast upp með þessi ástaratlot heldur en t.d. ef hann hömpaði einhverja ljósmynda ljósku.  Sem færi beint í blöðin eftir að hafa mjólkað nokkrar millur fyrst.  Fóstran var líka bara við hendina og þar að auki skemmtilega ólík eiginkonunni.  Suðræn og seyðandi og pínu þybbin ólíkt eiginkonunni sem lítur út eins og frænka Skeletors úr He-Man.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments